Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur mannfjöldanum. Farþegarnir voru því brátt settir um borð í tvö minni skip og fluttir til lands þar sem þeir fengu að- hlynningu, þurr föt og mat og gistingu. Þegar dagur rann kom í ljós að alls hafði 465 manns hafði verið bjargað, en 1012 fórust. Margir munu hafa lokast inni í klefum sínum, og margir buguðust undan kuldanum í sjónum, en sjávarhiti var rétt yfir frostmarki. Af þeim, sem fór- ust var 51 á fyrsta farrými, 205 á öðru og 584 á því þriðja. 138 börn voru í hópn- um og aðeins 4 björguðust. 16. júní var sjóréttur settur og starf- aði hann í 11 daga. Auk skipverja voru nokkrir farþeganna kallaðir fyrir. Niðurstaðan varð sú, að áhöfninni á Storstad væri um að kenna; skipið hefði breytt um stefnu, fyrsti stýrimaður, sem var í brúnni, bæri ábyrgðina; hann hefði auk alls annars vanrækt að kalla skip- stjóra upp til sín þegar þokan skall á. Norskur sjóréttur var öndverðrar skoðunar. Nú hófust málaferli og út- gerðin gerði kröfu um 2 milljónir dollar og vann. Íslendingur um borð Blaðið Heimskringla í Winnipeg, undir ritstjórn dr. Rögnvaldar Péturssonar, birti hinn 4. júní ítarlega frétt af slysinu undir fyrirsögninni „Empress of Ireland brotin, sokkin.“ Ritstjórinn gat þess ekki, að meðal farþeganna var bróðir hans, Hann- es Pétursson, fasteignasali ásamt konu sinni Tilly. Þau voru á leið til Íslands. Þau hjónin komust af og 11. júní birtist frásögn Hannesar af þessari hræðilegu lífsreynslu í Heimskringlu. Hann segir í bréfinu sem var skrifað í Quebeck 31. maí: „Við notuðum tímann vel fyrir og eftir kveldverð til að skoða og kynna okkur skipið, og kom það að góðum notum síðar.“ Þetta gerði þeim hjónum auðveldara að komast upp á þilfar; má vera, að fæst- ir hafi gert þetta og því verið illa færir um að rata. Hann lýsir árekstrinum: „Klukkan rétt eftir tvö vaknaði ég, og var að staulast fram úr rúminu til að fá mér að drekka, þegar rétt um leið kom voða- rykkur, einsog skipinu væri hálf-lyft upp og fært til út í hliðina. Af því ég er ekki sjómaður, hélt ég að það mundi hafa hvesst meðan ég svaf og þetta væri stór- sjór.“ Þau hlupu fram á náttklæðunum og leituðu uppgöngu og upp komust þau, þótt mannþröngin væri mikil og skipið farið hallast svo erfitt var að fóta sig. Þau komust upp á „prómenaði-dekk“. „Tók ég þá eftir því, að hægt mundi vera að komast upp á efstu þiljur, því ég mundi hvar stiginn var.“ Þeim tókst það Hvaleyrarbraut 27 · 220 Hafnarfjörður Sími: 564 3338 · Fax: 554 4220 GSM: 896 4964 ·898 2773 Kt.: 621297-2529 Storstad eftir áreksturinn. Öryggismál Eftir Titanic-slysið voru gerðar meiri kröfur til öryggis farþega og áhafn- ar en áður hafði verið. Útgerð Em- press of Ireland hafði frá upphafi vega hugað vel að öryggisbúnaði í skipum sínum. Um borð í Empress of Ireland voru 16 stórir björgunar- bátar úr stáli, auk 26 minni, og gátu þeir borið rúmlega 1950 manns, sem var meira en nóg fyrir farþega og áhöfn. Snemma í maí 1914 var Empress of Ireland í höfn í Liver- pool á Englandi og þá var haldin björgunaræfing og það tók aðeins um 4 mínútur að slaka öllum bátun- um niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.