Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Page 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Page 14
14 – Sjómannablaðið Víkingur Ég og messinn vorum saman um herbergi og þegar inn í það kom, vorum við furðu lostnir yfir íburðinum. Þar voru stór tví- breið rúm, falleg húsgögn, borð og stólar og baðherbergi. Einnig stórar gluggadyr, sem vissu út að stóru torgi. Við opnuð- um þær því að heitt var í veðri. Síðan þvoðum við af okkur ferðarykið og skiptum um föt áður en við gengum niður í mat- salinn til félaganna, sem voru að tínast niður til kvöldverðar. Þetta var fínt hótel og allt fyrsta flokks. Þjónar komu með matseðla fyrir okkur til að velja úr réttunum. En enginn skildi neitt í frönskunni, sem þeir voru prentaðir á og við komumst í vandræði. Þjónarnir skildu ekki ensku, og vorum við ráðalausir. Þangað til einhver kom auga á orðið „Omelette“ á seðlinum, og könnuðust flestir við það, enda enn notað um eggjaköku heima á Íslandi. Stóð það heima og ég held að flestir hafi pantað eggjaköku og orðið gott af. Eftir matinn fórum við út í borgina að skoða næturlífið. En annars gengum við tímanlega til náða. Margir voru þreyttir og við vissum að næsta kvöld mundum við fara af stað aftur og leggja upp í langan og strangan áfanga. Og sumir okkar ætluðu að fara snemma á fætur næsta dag og nota hann eftir föngum til að skoða sig um í París. Við létum verða af þessu og höfðum mestallan daginn til umráða. Þessi skoðun varð þó heldur flaustursleg og alltof hröð yfirferð. París var ákaflega falleg borg, eins og hún er enn, enda kom hún með öllu óskemmd úr stríðinu. Ég man nú ekki eftir öllu, sem við skoðuðum og sáum, en þó man ég eftir ýmsu, og við fórum í Eiffelturninn. En fyrr en varði var tíminn liðinn, sem við höfðum til umráða og við urðum að skunda á járnbrautarstöðina. Suður yfir Alpafjöll Þaðan var lagt af stað suðaustur yfir Frakkland í troðfullri lest af fólki. Var hún að skrönglast mestalla nóttina og það fór ekk- ert vel um okkur marga, að minnsta kosti. Um morguninn komum við að landamærum Sviss og þar var nokkur stans, vegna hefðbundinnar landamæravörslu, toll- og vegabréfaskoð- Glæsihótelið, Grand Hotel Terminus, númer 108 við Rue Saint-Lazare. Þar náttuðu íslensku sjómennirnir sig. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Skrúfupressur lofthreinsibúnaður - loftkútar - loftsíur lofttengibúnaður - loftþurrkarar Ýmsar stærðir! Hafið samand við sölumann.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.