Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 18
18 – Sjómannablaðið Víkingur vel, þeir voru í toppnum með afla. Humarveiðin gekk einnig vel, hjá okkur á Óla Sól og Jóni Oddi. Um haustið ´73, fréttu þeir Sjöstjörnu- bræður af skuttogara, sem var í endur- smíði í Stafanger í Noregi, hafði strandað og sokkið og átti að seljast sem nýtt skip. Þeir vildu fá okkur í félag um kaup á skipinu, sem átti að vera klárt í apríl lok ´74. Útvegsbankinn taldi þetta gerlegt fyrir okkur. Þetta var tæplega 300 lesta skip af Storvíkur gerð, smíðað 1970, en endurbyggt veturinn ´74 með 1500 hest- afla vél af MAK gerð. Við fórum út í þetta með þeim fyrirvara að við sæjum um útgerðina og dreifingu á afla. Stofnað var Útgerðarfyrirtækið Fiskmiðlun Suðurnesja HF. Og var yngsti bróðir okk- ar Reynir ráðinn framkvæmdastjóri, en hann var stúdent frá MA og viðskipta- fræðingur frá HÍ. Togarinn hlaut nafnið Framtíðin KE 4 og kom til landsins á lokadaginn 15. maí. Það hitti svo vel á að við á Ólafi Sóli- mann vorum að enda vertíðina, einmitt þennan dag vorum með 693 tonn í 70 róðrum og vorum hæsti bátur með afla þessa vertíð. Það kom gott skot af þorski 12 – 15 mílur í NNV frá Skaganum og við vorum svo heppnir að finna þennan blett og gátum haldið honum fyrir okkur í nokkra daga, vegna brælu og með því að gefa ekki upp áreiðanlega staðará- kvörðun. Þetta stóð yfir um vikutíma, þá var komið mikið af netum og afli tekinn tregast. Mig minnir að við höfum dregið í bátinn allar trossurnar og sett stefnuna á Snæfellsjökul, þetta var 17. eða 18. mars og lögðum SV úr Svörtuloftum seint um kvöldið í miklar loðnulóðn- ingar. Við vorum með eitthvað um 10-11 tonn af fiski eftir róðurinn og stráðum ís yfir aflann. Lágum svo yfir um nóttina. Daginn eftir drógum við 8 trossur og fengum góðan afla. Lögðum þær aðeins vestar, í svipaðar lóðningar. Aflinn eftir báða dagana var um 30 tonn. Næstu tvo dagana, fengum við að mig minnir 25 tonn og tókum netin með okkur heim á leið, eða 27 mílur í VNV frá Garðskaga og lögðum í algerri blindni. Vorum seint á ferðinni, svo að ég gaf frí daginn eftir. Þessi veiði staður var kallaður „Hryggur- inn“ og hefur oft verið gjöfull og svo reyndist í þetta sinn, við fengum um 200 tonn af stórufsa á um vikutíma og það bjargaði toppnum. Mér fannst nú mest gaman að pabbi skyldi fá að sjá nafnið sitt á aflahæsta bátnum, svona rétt fyrir andlátið, en hann andaðist 28. júlí þetta ár. Illa við togara Nú urðu heldur betur breytingar hjá mér, undanfarin fimm ár höfðum við far- ið á humar eftir vertíð og verið á humar- veiðum allt sumarið fram í september, en nú tilkynnti sjávarútvegsráðuneytið að enginn bátur með stærri vél en 400 hest- öfl, fengu leyfi til humarveiða. Vélin í Óla Sól var 600 HÖ. Svo að báturinn var útbúinn á togveiðar. Þar sem ég var alla tíð á móti togur- um og lenti mörgum sinnum í slag við þá og missti veiðarfæri í kjaftinn á þeim, kom ekki til mála að ég færi með bátinn á troll. Var því fenginn annar skipstjóri á bátinn og bræður mínir hefndu sín á mér og gerðu mig að útgerðarstjóra fyrir- tækisins og þar með togarans Framtíðar- innar. Þetta var mikil breyting hjá mér, áður heimtaði maður allt sem mann vantaði, en núna varð maður að vera Ég var alla tíð á móti togurum og lenti mörgum sinnum í slag við þá, skrifar Arnbjörn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.