Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Qupperneq 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Qupperneq 20
20 – Sjómannablaðið Víkingur eins og hlaupatík um allt og redda hlut- um, helst í gær. Ég segi nú bara svona, allavega voru þetta mikil umskipti, en um leið lærdómsrík. Og þegar fór að líða á sumarið fannst mér þetta bara spennandi. Ég var líka með netaverkstæðið okkar og hafði með mér góðan og lærðan neta- mann, Þorstein Benediktsson. Af honum lærði ég alveg helling í netum, en við vorum með eina sex humarbáta í við- skiptum, svo það var oft mikið að gera á meðan bátarnir voru í landi. Hrósi hver Norðmönnum, þó ekki ég Fljótlega kom í ljós ágreiningur á milli okkar og Sjöstjörnubræðra um rekstur togarans, sem alls ekki gekk nógu vel að fiska. Það voru ýmsar ástæður fyrir því. Í ljós komu ýmis svik við endursmíðina, fyrst fór þrýstilega við skrúfuöxul, sem þýddi slipptöku. Næst missti skipið stýr- ið, en þeir gátu komist inn á Keflavík með því að stýra með hlerunum. Og það kostaði nokkra daga í slipp. Síðasta hafaríið var, þegar þeir misstu stýrið í annað skiptið. Þá fengum við fagmenn frá Stálvík í Garðabæ, til að mæla stammann og hælinn á skipinu. Þá kom í ljós að hællinn hafði skekkst við strandið í Noregi. Hrósi hver sem vill Norðmönnum í viðskiptum, en ég get það ekki. Ólafur Sólimann Fyrirtækin voru hálfblönk bæði sem kom ekki að sök á meðan vel gekk. Það varð hins vegar vandameira að eiga við þetta þegar gaf á. Að tillögu Útvegsbank- ans endaði samvinnan með því að við létum Ólaf Sólimann í skiptum fyrir hinn helminginn af Framtíðinni. Þetta gerðist vorið 1976. En það gerðist fleira þetta vor, því að við tókum yfir 60% hlut þeirra frænda í Sandgerði. Sigurði Bjarnasyni var boðin staða hafnarstjóra þar og vildi losna, annars gekk sú sameign vel. Við skírðum bátinn Jón Guðmundsson og hann var með sömu umdæmis bókstafi. Ég var með Óla Sól vertíðirnar ´75 og ´76. Þær voru hvor annarri lélegri og sú seinni sú lélegasta á mínum ferli, bæði mikið bilirí á aðalvél og mun minni fisk- ur á ferðinni. Það er af bátnum að segja að Sjöstjörnubræður skírðu hann Pól- stjörnuna KE 3 Þeir áttu bátinn ekki lengi og seldu hann aflamanninum Hall- dóri Þórðarsyni sem skírði hann Freyju GK 364. Dóra gekk vel að fiska á þennan bát, eins og alla báta, sem hann var með. Hann lét skipta um vél í bátnum og sett var í hann 600 ha. Alpha dísel. Svo þegar kótinn fór að skerðast, seldi Dóri bátinn til Írlands. Síðustu fréttir, sem ég hef af bátnum, fékk ég frá dóttur syni mínum Ingólfi Þorleifssyni á Suðureyri og hann sendi mér mynd af bátnum við bryggju í Króatíu og hét þá Lene. Rotaður og andlitslyfting Ég var svo með Jón Guðmundsson á humarveiðum sumarið ´78 og son minn Ólaf sem stýrimann. Það skeði slæmt slys í fyrsta túrnum. Fórnarlambið var ég sjálfur. Í fyrsta skipti fór ég berhöfðaður á sjó. Þannig var að mér lá svo mikið á að komast af stað, að ég gleymdi derhúfunni minni heima og gaf mér ekki tíma til að sækja hana. Við köst- uðum fyrsta halið í Jökul- dýpinu og það var óklárt. Ég bað strákinn, sem stóð við gálgann að passa sig, því að það gæti komið slinkur á vírinn, en þurfti sjálfur að kíkja út fyrir borðstokkinn og það þurfti náttúrulega að koma slink- ur á hann og sló mig það kirfilega, að ég hentist inn að brú og hálf rotaðist og stykki fór úr höfuðleðrinu. Strákarnir vildu högga á vírana, en ég hélt nú ekki. Þeir settu kompressu á hausinn á mér, það blæddi merkilega lítið úr sárinu. Þeir náðu inn trollinu og fóru með mig inn til Ólafs- víkur og þaðan fór ég með sjúkravél á Borgarspítalann. Þetta tók þrjár vikur að gróa. Kannski hefði húfan mín dregið úr högginu, en hún var með stóran dúsk á toppnum. Ég fékk nú líka frítt facelift út úr þessu. Gátum borgað öllum nema ... Ég var svo reddari við fyrirtækið, þang- að til yfir lauk og var orðinn ansi góður í því starfi, sögðu strákarnir. Af fyrirtæki okkar systkinanna, er það að segja að við hættum rekstri í árslok 1983 en sem betur fer gátum við borgað öllu okkar fólki og viðskiptamönnum, öðrum en Útvegsbanka Íslands. Þar voru talsverðar skuldir. Ég velti þó fyrir mér hvort allir þeir yfirdráttarvextir sem við greiddum bankanum – væru þeir teknir með í dæmið – myndu ekki laga mynd- ina eitthvað. Að minnsta kosti þannig að við yrðum ekki settir á bekk með verstu viðskiptavinum bankans – ég held það. Allavega er ég nokkuð sáttur við endir- inn. Það er af sögu Félagshússins að segja að það var keypt af Keflavíkur Verktök- um til niðurrifs og þar stendur Flughótel í dag og sómir sér vel. Ég keypti sperrur og skammbita úr nýrri endanum og það eru bitar og gluggar í sumarbústað fjöl- skyldunnar í dag og engin þreytumerki á þeim að sjá. Nú hef ég sagt hvað mest af mér, er því mál að linni. En velti aldan þung að þér, þá halda þarftu vöku þinni. Sæhrímnir en um hann fjallaði Arnbjörn aðallega í þriðja þætti en einnig nokkuð í þeim fjórða.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.