Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Page 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur
Endalok kínverskra úthafssiglinga
Eftir fráfall Zhengs He lögðust af landkönnunarleiðangrar Kínverja
og raunar allar úthafssiglingar þeirra. Svo er að sjá sem úthafsflot-
inn hafi verið eyðilagður og einnig flest opinber skjöl um útgerð
hans. Ástæður eru eflaust margar, og mönnum ber ekki saman um
hver vegi mest. Keisaraskipti urðu um þetta leyti, og innan hirðar-
innar virðast menn hafa skipst í tvær fylkingar. Annars vegar voru
geldingarnir, sem valdir höfðu verið úr
hópi efnilegra ungmenna
til þjónustu keisarans og voru áður vanað-
ir. Hins vegar voru svo íhaldssamir emb-
ættismenn sem kenndu sig við heimspek-
inginn Konfúsíus. Þeir voru
einangrunarsinnar og töldu að Kínverjar
þyrftu ekkert að sækja út fyrir landstein-
ana, þar sem geldingarnir virðast, sam-
kvæmt þessari söguskoðun, hafa viljað
opna landið, enda var sjálfur aðmírállinn,
Zheng He, í þeirra hópi. Hafi skriffinnarnir
séð leik á borði, þegar hann féll frá, og
ekki aðeins látið eyða flotanum heldur
einnig flestum ummerkjum um land-
könnun og úthafssiglingar.
En fleira kemur til. Kínverjar sættu um
þessar mundir vaxandi ásókn á landi frá
grönnum sínum í norðri og vestri, en engin
yfirvofandi ógn stafaði að landinu af sjó.
Þar sem útgerð úthafsflotans var mjög
kostnaðarsöm og mannfrek hefur illa verið
hægt að standa undir henni samhliða
nauðsynlegum vörnum á landi. Við þetta
bætist að skipasmíðin kallaði á ókjör af
timbri og vaxandi
óánægja var vegna landspjalla af völdum
skógarhöggs í grennd við skipasmiðjurnar.
Fyrra sjónarmiðið, um ágreining innan
hirðarinnar, virðist einkum vera ráðandi
hjá vestrænum sagnfræðingum. Heima-
Fundur í Félagi skipstjórnarmanna
verður haldinn á Akureyri, að Strikinu, Skipagötu 14, 5. hæð,
föstudaginn 27. desember kl. 14.00
Farið yfir stöðu kjaramála
Léttar veitingar.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Fundur í Félagi skipstjórnarmanna
verður haldinn að Háteigi A, sal á 4. hæð Grand Hótels Reykjavík,
mánudaginn 30. desember. desember kl. 14.00.
Kjaramálin rædd.
Léttar veitingar.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Skipstjórnarmenn
í Félagi skipstjórnarmanna
Heimskortið umdeilda, sem Liu Gang keypti á fornsölu.