Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 2
Það er frábært að byrja skólaárið á því að sameinast í dansi. Rebekka Karls- dóttir, forseti Stúdentaráðs Afsláttur af öllum vörum laugardaginn 3. september. Sölusýning á morgun Fimmtíu ár frá útfærslu landhelginnar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur skrifað bókina Stund milli stríða þar sem sögð er saga landhelgismálsins á árabilinu 1961-1971. Bauð Sögufélagið til hófs í tilefni útgáfu bókarinnar í Sjóminjasafninu í Reykjavík í gær en þá voru fimmtíu ár liðin frá því Íslendingar færðu landhelgi sína úr 12 í 50 mílur. Guðni sagði frá verkinu og meðal þeirra sem á hlýddu voru fulltrúar Landhelgisgæslunnar og fyrrverandi formaður Sjómannadagsráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK kristinnhaukur@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Vestmannaeyjavöllur verður tekinn inn í hinn vinsæla tölvuleik Microsoft Flight Simula- tor. Þetta var tilkynnt á miðvikudag en einnig munu bætast við flugvell- irnir í Mumbai á Indlandi og Davao á Filippseyjum. Í tilkynningunni segir að Vestmannaeyjavöllur sé „lítill en áhugaverður völlur“. Leikurinn fagnar nú 40 ára afmæli, en upprunalega kom hann út sem Flight Simulator 1.0 árið 1982. Það var hinn bandaríski Bruce Artwick sem hannaði leikinn fyrir IBM og hafa komið 14 uppfærslur á honum síðan þá, sú nýjasta frá árinu 2020. Alls eru 37 þúsund f lugvellir í leiknum en aðeins í kringum 40 hafa fengið sérstaka meðferð með auknum smáatriðum hjá hönnuð- um og bætist Vestmannaeyjavöllur í þann hóp. Einn íslenskur flugvöllur var fyrir í þeim hóp, flugvöllurinn á Ísafirði. n Eyjavöllurinn í þekktan tölvuleik Vestmannaeyjavöllur á leik. MYND/VESTMANNAEYJABÆR Októberfest hófst í gær eftir tveggja ára hlé vegna farald- ursins. Um fjörutíu tónlist- aratriði verða á hátíðinni og er Rebekka Karlsdóttir, forseti Stúdentaráðs, spenntust fyrir Birgittu Haukdal. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Októberfest hófst í gær og fer hátíðin nú fram í átjánda sinn. Rebekka Karlsdóttir, forseti Stúdentaráðs, segir mikinn spenn- ing fyrir hátíðinni innan háskóla- samfélagsins. „Þetta ætti að vera tuttugu ára afmælishátíð núna en hún féll niður síðustu tvö ár svo við höfum beðið spennt eftir þessu,“ segir Rebekka. Hátíðin fer fram á háskólasvæð- inu í Vatnsmýrinni, þar sem reist hafa verið tvö stór tjöld með sviðum þar sem tónlistaratriðin fara fram „Svo erum við með Símatjaldið þar sem er aðeins öðruvísi dagskrá eins og partí-karókí og silent-diskó og svo er matartjald,“ segir Rebekka. Síðustu ár hefur verið lítið um félagslíf innan háskólans vegna Covid og segir Rebekka Októberfest mikilvægan hlekk í því að byggja félagslífið upp að nýju. „Það var gerð tengslakönnun fyrir og eftir Covid þar sem kannað var hversu marga vini fólk ætti þegar það kom í háskóla og hversu mörg- um það kynntist fyrstu mánuðina. Í ljós kom að fólk var að kynnast mun færra fólki á þessum tíma sem far- aldurinn gekk yfir,“ segir Rebekka. „Þetta er eitthvað sem við í Stúd- entaráði og háskólayfirvöld höfum haft miklar áhyggjur af og tökum því alvarlega að byggja upp þessi tengsl milli stúdenta aftur,“ segir hún. „Það er mikilvægt að kynnast fólkinu sem maður er með í námi og verður síðar kollegar manns.“ Á hátíðinni er boðið upp á um fjörutíu tónlistaratriði og er dag- Dansa í tjaldi á Októberfest Októberfest er sögð mikilvæg fyrir félagslíf háskólanema. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR skráin afar fjölbreytt. Meðal þeirra sem koma fram eru Sigga Beinteins, Birgitta Haukdal, Floni, Friðrik Dór og Lil Curly. Á morgun er svo boðið upp á fjölskylduskemmtun milli klukkan 14 og 16 þar sem í boði verða skemmtiatriði og hoppu- kastali fyrir börnin. „Það sem kjarnar háskólasamfé- lagið er að við getum ekki bara haft eina tegund af tónlist ef við ætlum að höfða til allra háskólanema,“ segir Rebekka. „Atriðin eru því eins ólík og fólkið í háskólasamfélaginu. Þarna getum við öll komið saman og skemmt okkur,“ bætir hún. Hátíðin er öllum opin, ekki bara nemendum í Háskóla Íslands. Allir sem sýna stúdentakort fá afslátt af aðgöngumiða. Spurð hvað hún sjálf sé spennt- ust fyrir að sjá segir Rebekka það vera Birgittu Haukdal. „Ég var með plaköt af henni í herberginu mínu og blóm í hárinu og svo sá ég hana á Októberfest 2017 eða 2018 og það var ógleymanlegt.“ „Ég held að það sé líka haldið í september í Þýskalandi en við höldum þetta talsvert fyrr en Þjóð- verjarnir, það er bara út af veðrinu,“ svarar Rebekka spurð hvers vegna Októberfest fari fram í september. „Og það er frábært að byrja skóla- árið á því að sameinast í dansi í tjöldunum,“ bætir Rebekka við. n helenaros@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Mótorhjólaklúbbur- inn Harley á Íslandi hefur ákveðið að fara í hópakstur á Ljósanótt, sem fer fram í Reykjanesbæ um helgina, án þess að skrá sig líkt og óskað hefur verið eftir. Þetta kemur fram á Facebook- síðu klúbbsins en þar segir einnig að þeir telji skráninguna gróft brot á persónuverndarlögum. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki vita til þess að það sé nokkur vandræða- gangur varðandi hópaksturinn. „Ég hef ekki heyrt af því,“ segir Úlfar. Ef menn skrá sig ekki, þá fara þeir ekki inn á lokaða svæðið.“ Á Ljósanótt hefur tíðkast að aka glæsikerrum niður Hafnargötu en ekið er undir eftirliti lögreglu og björgunarsveita. Til að tryggja öryggi bæði þátt- takenda og áhorfenda þurfa þeir sem taka þátt í hópakstrinum að skrá bíl og ökumann hjá ábyrgðar- mönnum til að öðlast þátttökurétt. Dagskráin á Ljósanótt er að vanda afar fjölbreytt. n Mótorhjólafólk segist neita að skrá sig Atli Bergmann er í stjórn Harley- klúbbsins á Íslandi. MYND/SPESSI 2 Fréttir 2. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.