Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 4
Íslendingar og Norð- menn eru jákvæðari í garð sáttmála en áður. Gerendur geta verið samstarfsfólk eða yfirmenn en einnig utanaðkomandi aðilar. Edda Björk Þórðardóttir, lektor í lýð- heilsuvísindum Opinber vettvangur 15,7% 9% 12% 7,4% 13,6% 8,5% 10,7% 6,8% 15% 8,9% 11,8% 7% 13,1% 7,5% 9,8% 6,4% 5,8% Heilbrigðisstörf Stjórnunarstörf Ferðaþjónusta Sala og viðskipti Listir og hönnun Þjónustustörf Lög og réttur Tæknistörf Matvælaframleiðsla Fjármál Veitingastörf Framleiðsla Vísindi Félagsþjónusta Menntun Skrifstofustörf Hlutfall kvenna sem hafa orðið fyrir áreitni eða ofbeldi á núverandi vinnustað Samkvæmt nýrri rannsókn eru konur í mjög mismikilli hættu á að verða fyrir kyn- ferðislegri áreitni eða ofbeldi eftir vinnustöðum. Vakta- vinnukonur eru í meiri hættu en dagvinnukonur. kristinnhaukur@frettabladid.is SAMFÉLAG Konur sem starfa á opin- berum vettvangi eru í mestri hættu á að verða fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Vaktavinna og óreglu- legur vinnutími er stór áhættu- þáttur. Þetta kemur fram í nýrri rann- sókn sem unnin er upp úr gögnum úr verkefninu Áfallasaga kvenna og var birt í heilbrigðismálatímaritinu Lancet í gær. Meginmarkmið hennar var að skoða kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum íslenskra kvenna og áhættuþætti. „Konur sem vinna vaktavinnu eða eru með óreglulegan vinnu- tíma eru líklegri til að verða fyrir kynferðislegri áreitni og of beldi á vinnustað en konur eingöngu í dagvinnu. Konur á slíkum vinnu- stöðum eru líklegri til að vera einar með mögulegum geranda. Það er mikilvægt að huga að þessu þegar við skoðum hvernig hægt er að bæta öryggi kvenna á vinnustöðum,“ segir Edda Björk Þórðardóttir, lektor í lýð- heilsuvísindum við Háskóla Íslands og einn höfunda rannsóknarinnar. Svarendur í rannsókninni voru tæplega 16 þúsund konur úr öllum atvinnugreinum. Hugað var vel að aldursdreifingu, búsetu, tekjudreif- ingu og fleiri þáttum til að endur- spegla samfélagið sem best. „Þær sem svöruðu endurspegla kvenþjóðina vel,“ segir Edda. Um þriðjungur kvennanna sagðist hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í vinnu og 8 prósent á núver- andi vinnustað. Konur á opinberum vettvangi eru í mestri hættu á áreitni eða ofbeldi Hæst er hlutfallið hjá þeim sem starfa á opinberum vettvangi, 15,7 prósent. Þetta eru konur sem starfa til dæmis við tónlist, í sviðslistum, blaðamennsku, íþróttum og stjórn- málum. Í ferðamennsku er hlut- fallið 15 prósent, 13,6 prósent í lög- gæslu og réttarkerfinu, 13,1 prósent í framleiðslu og viðgerðariðnaði og 12 prósent í heilbrigðisgreinum. Lægst mældist hlut fall ið í almennum skrifstofustörfum, 5,8 prósent. Þar á eftir 6,4 prósent í veitinga- og matreiðslugreinum og 6,8 í menntun. „Gerendur geta verið samstarfs- fólk eða yfirmenn en einnig utan- aðkomandi aðilar. Til dæmis við- skiptavinur, skjólstæðingur eða sjúklingur,“ segir Edda. En þar sem Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is áreitnin og of beldið er mest eru konur líklegri til að vera í miklum samskiptum við þriðja aðila. Samkvæmt rannsókninni eru yngri konur í meiri hættu en eldri, hinsegin konur í meiri hættu en gagnkynhneigðar og háskólmennt- aðar í meiri hættu en konur með minni menntun. Rannsóknin er fyrsta lýðgrund- aða rannsóknin af þessari stærðar- gráðu þar sem kynferðisleg áreitni og of beldi er skoðað eftir atvinnu- greinum. Lítið er um eldri rann- sóknir en hlutfall hefur mælst á bilinu 11 til 70 prósent. Fyrri rannsóknir hafa verið smærri í sniðum og oft aðeins bundnar við eina atvinnugrein. Þessi rannsókn brýtur því blað. „Það er sláandi hvað kynferðis- leg áreitni og of beldi er algengt á vinnustöðum hér á landi í ljósi þess að Ísland er í efsta sæti heimslista um kynjajafnrétti,“ segir Edda. n kristinnhaukur@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna mistókst að koma sér saman um alheims- sáttmála um málefni úthafanna. Tveggja vikna samningalotu lauk á miðvikudag í New York. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hafa Íslendingar verið meðal þeirra þjóða sem gerð úthafssátt- málans hefur strandað á. Auk Norðmanna, Rússa og Japana hafa Íslendingar verið tregir til að sam- þykkja reglur um fiskveiðar og fengið gagnrýni umhverfisverndar- samtaka fyrir. Samkvæmt samtökunum World Wildlife Fund, sem fylgjast náið með samningagerðinni, hefur afstaða Íslendinga og Norðmanna hins vegar snúist mest á þessum fundi. Eru þjóðirnar nú mun jákvæðari gagnvart sáttmála en áður. Rússar eru hins vegar enn þá and- vígir mörgum ákvæðum sáttmálans og Kínverjar hafa sínar efasemdir um sum þeirra. Þrátt fyrir að þetta tækifæri hafi runnið út í sandinn eru menn von- góðir um að lausn kunni að vera í sjónmáli. Einkum vegna þess hversu vel gekk að semja um málefni á seinni stigum fundarins. Hafi ríkin einfaldlega ekki haft nægan tíma til að koma saman sáttmála. Sum umhver f isverndarsam- tök, eins og Greenpeace, gagnrýna sendinefndirnar hins vegar fyrir að taka málið ekki nógu alvar- lega. Úthafssáttmáli sé eitt stærsta umhverfismál samtímans, hann geti ekki beðið endalaust heldur þurfi að komast á blað sem fyrst. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti fundur verður en hugsanlegt er að boðað verði til hans undir lok ársins. Vegna þess hversu langt þjóðirnar komust á þessum fundi er búist við að sá næsti verði aðeins ein vika í stað tveggja. n Náðu ekki að gera úthafssáttmála erlamaria@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL „Vinnuaðstæður á bráðamóttökunni hafa verið erf- iðar og óásættanlegar í langan tíma og eðlilega hef ég miklar áhyggjur,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, um fjölmargar upp- sagnir hjúkrunarfræðinga á bráða- móttöku spítalans á síðustu mán- uðum. Í gær fækkaði stöðugildum á bráðamóttökunni um tæplega níu. Runólfur segir ákveðinn víta- hring hafa skapast þegar kemur að vinnuumhverfi. Það geri að verkum að starfsfólk hreinlega gefist upp sökum álags. Samkvæmt tölulegum upplýs- ingum frá Landspítalanum gerir mönnunarlíkan spítalans ráð fyrir 90 stöðugildum hjúkrunarfræðinga Stöðugildum á bráðamóttökunni hefur fækkað um fjórðung Runólfur Páls- son, forstjóri Landspítalans á bráðamóttökunni, en í febrúar voru 84 þeirra fullmönnuð. Síðasta hálfa árið hefur stöðugildum hins vegar fækkað niður í 64, eða um tæplega 24 prósent. „Álagið á bráðamóttökunni er mjög mikið og er búið að vera það í langan tíma. Við höfum verið með marga sjúklinga sem bíða eftir legu- rými og eru í umsjá hjúkrunarfræð- inga sem jafnframt þurfa að taka á móti nýjum sjúklingum, sem fyrir bragðið skapar mikið álag,“ segir Runólfur. Við slíkt álag segir Runólfur hætt við að starfsfólk gefist hreinlega upp og hætti, eins og raun beri vitni. „Okkar stærsta áskorun núna er að snúa þessari þróun við þegar kemur að vinnuumhverfi starfsfólks og við erum að vinna í þeim málum sem stendur.“ n helenaros@frettabladid.is DÓMSMÁL Aðstandendur mannsins sem myrtur var í Barðavogi þann 4. júní krefjast alls fjörutíu milljóna króna í bætur. Magnús Aron Magnússon hefur verið ákærður fyrir manndráp en honum er gefið að sök að hafa ráðist á nágranna sinn, fyrst inni á stiga- gangi hússins og síðan fyrir utan húsið. Hann er meðal annars sagður hafa sparkað í, kýlt og traðkað ítrek- að á höfði mannsins og brjóstkassa með þeim afleiðingum að hann lést. Málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrr í vikunni. n Tug milljóna krafa í manndrápsmáli Magnús Aron Magnússon árið 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI gar@frettabladid.is FASTEIGNIR Ríkinu voru boðnir alls 240 þúsund fermetrar af skrifstofu- húsnæði eftir að auglýst var eftir átta til tíu þúsund fermetrum. „Í f lestum tilfellum er um að ræða húsnæði sem enn hefur ekki verið byggt, en er til afhendingar á næstu 36 mánuðum,“ segir á vef Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna. Tillögurnar verða í framhaldinu metnar, meðal annars út frá stað- setningu, verði og tímasetningu afhendingar húsnæðisins. n Bjóða ríkinu 240 þúsund fermetra 4 Fréttir 2. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.