Fréttablaðið - 02.09.2022, Side 6
Lilja er augljóslega að
stilla sér upp svolítið
utan við helstu forystu
í ríkisstjórninni, hvort
sem það er viljandi eða
ómeðvitað.
Eiríkur
Bergmann,
prófessor í
stjórnmálafræði
Erfitt er að spá fyrir um áhrif
umdeildrar skipunar á feril
Lilju Alfreðsdóttur, að sögn
prófessors, en pólitísk inn-
eign ráðherrans hafi rýrnað.
Nefnd innan Alþingis mun
ræða málið eftir helgi.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Eiríkur Bergmann, pró-
fessor í stjórnmálafræði, segir að
skipunarmál Lilju Alfreðsdóttur,
ráðherra menningarmála, í stöðu
þjóðminjavarðar komi ofan í f leiri
mál sem hana varði og valdið hafi
usla.
„Lilja er farin að ganga allverulega
á sitt pólitíska kapítal með endur-
teknum skipunum fram hjá þeirri
reglu að auglýsa beri opinberar
stöður,“ segir Eiríkur.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, for-
maður stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis, staðfesti í samtali
við Fréttablaðið í gær að á dagskrá
fundar nefndarinnar næsta mánu-
dag væri kominn liður um ráðn-
ingar embættismanna og 36. grein
starfsmannalaganna. Augljóst er að
ólgan í kringum skipun þjóðminja-
varðar er kveikja þeirrar umræðu.
Félag fornleifafræðinga hefur sent
umboðsmanni Alþingis kvörtun
vegna ákvörðunar Lilju.
Bætist kvörtunin ofan á hörð
viðbrögð úr ýmsum áttum en Lilja
hefur varið ákvörðun sína með hæfi
Hörpu Þórsdóttur, sem hún skipaði.
Eiríkur Bergmann segir erfitt að
segja til um hvort mælirinn sé orð-
inn fullur.
„Ég held að Lilja sé ekki komin
í þannig öngstræti að hún þurfi
að hrökklast undan, en þetta mál
hjálpar henni ekki í því að tryggja
sig í sessi,“ segir Eiríkur.
„Lilja er augljóslega að stilla sér
upp svolítið utan við helstu forystu
í ríkisstjórninni, hvort sem það er
viljandi eða ómeðvitað. Er það til
marks um að hún sé að marka sér
sérstaklega stöðu? Maður veit það
ekki,“ segir Eiríkur.
Þeir sem hafa borið blak af
ákvörðun Lilju, þar á meðal sam-
ráðherrar í ríkisstjórn, benda á
að heimild sé í lögum til að færa
til embættismenn samkvæmt 36.
greininni. Margir telja að undan-
þáguákvæðið eigi ekki við í þessu
máli.
„Ég held að andi þessara laga sé
nokkur skýr. Stöður sem þessar á
að auglýsa,“ segir Eiríkur.
Prófessorinn bendir á að skipan
þjóðminjavarðar sé ekki hefðbund-
in tilfærsla líkt og varði sem dæmi
flutning fólks milli ráðuneyta.
„Þetta er meiri háttar leiðandi
staða í íslenskri akademíu og um
slíkar stöður gilda almennar reglur.
Mér finnst ekki fullnægjandi að
rökstyðja svona ákvörðun með því
einu að viðkomandi sé hæf,“ segir
Eiríkur.
„Þetta er ekki spurning um hvort
manneskjan sé hæf heldur jafna
möguleika fólks á að bjóða fram
krafta og vera metið að verðleikum.
Aðrir eru rændir möguleika á starf-
inu og þar liggur vandinn. Það er
aukaatriði hvort sú sem var skipuð
sé hæf.“
Stundum má líta þannig á mál að
átök um ákvarðanir ráðherra séu
heilbrigðismerki, að sögn Eiríks. Um
það hvort hætta sé á að Lilja missi
traust leiðandi fólks innan menn-
ingargeirans sem ráðherra segir
Eiríkur erfitt að meta það. Það þurfi
ekki að vera slæmt fyrir ráðherra að
eiga í ágreiningi við tilteknar stéttir,
því almenningur ráði afdrifum
stjórnmálamanna en ekki ráðandi
stéttir á hverju sviði fyrir sig. n
Skipun á þjóðminjaverði
fyrir eftirlitsnefnd Alþingis
Lilja Alfreðs-
dóttir, menn-
ingar- og ferða-
málaráðherra
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ræðir mál Lilju Alfreðsdóttur á fundi á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
benediktarnar@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Steinunn Þórðar-
dóttir, formaður Læk nafélags
Íslands, segir óboðlegt að ríkið semji
ekki við lækna á stofum.
Í fyrradag rann reglugerð heil-
brigðisráðherra um endurgreiðslu
vegna þjónustu sérgreinalækna út
án endurnýjunar sem olli því að
sjúklingar þurftu að greiða þjónustu
fullu verði í gærmorgun. Brugðist
hefur verið við þessu og reglugerðin
framlengd til 31. október.
Steinunn segir að þetta sé í þret-
tánda skipti sem slík reglugerð sé
sett. Það skapi mikla óvissu.
„Þetta varpar ljósi á undirliggj-
andi vanda, sem er samningsleysi
sérfræðilækna á stofum við Sjúkra-
tryggingar, sem er nú búið að vara í
tæp fjögur ár. Það býður upp á svona
klúður að vera alltaf með endur-
greiðslureglugerð sem er verið að
endurnýja nokkra mánuði í senn,
sem á að vera algjört bráðabirgða-
úrræði á meðan verið er að semja,“
segir Steinunn. Hvorki hafi gengið
né rekið í samningaviðræðum.
„Þetta er bara komið gott, þolin-
mæði lækna er orðin ansi lítil. Þetta
er óboðlegt ástand.“ n
Þolinmæði lækna sögð vera á þrotum
ninarichter@frettabladid.is
TÓNLIST Tónlistarkonan Unnur
Sara Eldjárn á og rekur kynningar-
stofuna Wrap my Music sem tekur
að sér ráðgjöf við markaðssetningu
fyrir tónlistarfólk.
Hún sagði frá því á Facebook-síðu
sinni að TikTok hefði greitt henni
fyrir notkun á tónlist, og sagði
upphæðina töluvert hærri en þá
sem hún fékk frá streymisveitunni
YouTube, „þrátt fyrir ágætis spilun
þar í hverjum mánuði.“ Hún deilir
kvittun frá TikTok þar sem taldar
eru 1.833 íslenskar krónur í greiðslu
fyrir notkun á tónlist síðustu þrjá
mánuði.
„Maður hélt að TikTok væri bara
frábær auglýsing,“ segir Unnur Sara
og bætir við að greiðslan hafi komið
mikið á óvart. Hún segist ekki hafa
fengið sundurliðun eða upplýsingar
um fjölda spilana að baki upphæð-
inni, en hún segir að um þúsund
myndbönd séu á miðlinum þar sem
notast er við hennar tónlist.
„Það kom mér á óvart að sjá að ég
væri að fá meira frá TikTok en You-
Tube og Facebook, sem er líka með
Instagram. Á Instagram er ég með
1.500 myndbönd, samt er ég að fá
tíkalla þar. Mér finnst það benda
til þess að þau borgi betur á TikTok,
miðað við þessar upplýsingar.“ n
TikTok borgar meira en YouTube
Steinunn
Þórðardóttir,
formaður
Læknafélags
Íslands
Unnur Sara
Eldjárn, eigandi
Wrap my Music
birnadrofn@frettabladid.is
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg hefur
slitið vinaborgarsamstar f i og
sagt upp samstarfssamningi við
Moskvu, höfuðborg Rússlands.
Samstarfssamningurinn á milli
borganna hefur verið í gildi frá
árinu 2007.
Tillaga um slitin var samþykkt
einróma á fundi borgarráðs í gær
en borgarstjóri átti fund með
borgarstjóra Lvív í apríl og sendi-
herra Úkraínu á Íslandi í júní þar
sem rætt var um að slíta samstarfs-
samningnum og vinaborgarsam-
starfinu. Borgarstjóri hefur einnig
fundað um málið með utanríkisráð-
herra sem gerir ekki athugasemdir
við tillöguna. Borgarstjórn Reykja-
víkur hefur áður fordæmt innrás
Rússa í Úkraínu og lýst samstöðu
og stuðningi við fólkið í Úkraínu.
Að ráðgjöf borgarlögmanns verð-
ur leitað viðbragða borgarstjórnar
Moskvu áður en slit, á vinaborgar-
samstarfi og ofangreindum samn-
ingi, verða formleg. n
Fimmtán ára vinasamstarf nú á enda
Reykjavík slítur
vinasamstarfi
við Moskvu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
6 Fréttir 2. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ