Fréttablaðið - 02.09.2022, Side 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Salan á
Íslands-
banka
snýst um
endurtekn-
ar tilraunir
örfárra
manna til
að sölsa
undir sig
eignir og
auðlindir
þjóðar-
innar.
Sennilega
er VG ekki
eini flokk-
urinn sem
er þarna til
að passa að
ákveðnir
hlutir
gerist ekki.
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars
@frettabladid.is
benediktboas@frettabladid.is
Símafólk mætir ekki
RÚV ræður leiktíma leiks Íslands
og Hvíta-Rússlands. Leikurinn
fer fram klukkan 17.30 í dag en
þegar þetta er skrifað eru um
3.300 miðar farnir en völlurinn
tekur um 10 þúsund manns. Það
vantar því sjö þúsund manns
til að fylla völlinn. KSÍ auglýsti
mikið á samfélagsmiðlum í
aðdraganda leiksins en fór ekki
hinar hefðbundnu leiðir, að
auglýsa í dagblöðum og á öldum
ljósvakans. Það er því ekki furða
að enginn sé að mæta á leikinn
í dag því það er gömul saga og
ný að fólk sem lifir sínu lífi í
gegnum símann er ekki mikið að
borga sig inn á viðburði – þó að
það hafi skoðun á ýmsu.
Skammið RÚV
„Ég held að leiktíminn hafi
ekkert með mætingu að segja
en þið verðið bara að skamma
RÚV,“ sagði Þorsteinn Halldórs-
son landsliðsþjálfari á blaða-
mannafundi í gær en ástæðan
fyrir þessum leiktíma er að
RÚV sýnir beint frá tónleikum
Sinfó strax eftir fréttir og veður.
Aðrir hafa bent á að miðaverð sé
ástæðan en það kostar um 2.000
krónur fyrir börn yngri en 16
ára á fínum stað en þúsund kall
fyrir verri stað. Fimm manna
fjölskylda þarf því að leggja út 14
þúsund krónur ef hún vill sitja á
góðum stað. Og á þá allt hitt eftir
ef hún vill eiga góðan dag. n
Sigurður K. Kolbeinsson ræðir við
ýmsa þekkta og óþekkta Íslendinga
um lífið og tilveruna og sagðar eru
skemmtilega sögur og frásagnir aftur
í tímann sem mörgum kunna að þykja
skemmilegar.
Laugardaga kl. 10.00
www.hotelbokanir.is/lifid-er-lag-hladvarp og á Spotify
Kristján L. Möller er næsti gestur
hlaðvarpsins.
Á fimmta ári stjórnarsamstarfsins er forsvarsfólk
ríkisstjórnarflokkanna þriggja hætt að láta eins og
markmiðið hafi verið að bjóða þjóðinni upp á hlað-
borð af hægri og vinstri pólitík og allt þar á milli, ein-
hvers konar brot af því besta.
Þetta hefur auðvitað legið fyrir lengi. En einhverjir
hagsmunir tengja þessa flokka saman. Sennilega er
VG ekki eini flokkurinn sem er þarna til að passa að
ákveðnir hlutir gerist ekki, svo vitnað sé í orð vara-
formanns flokksins í opnunarræðu hans á flokks-
ráðsfundi VG í síðustu viku. Það er alla vega ljóst að
núverandi ríkisstjórn spilar ekki sókn. Flokkarnir þrír
eru í varnarbandalagi þar sem alið er á hræðslu við
breytingar, jafnvel þær sem yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar kallar eftir.
Varnarbandalagið stendur til dæmis dyggan vörð
um hagsmuni stórútgerðarinnar og vaxandi ítök
hennar í samfélaginu. Passar upp á að kröfu þjóðar-
innar um breytingar verði ekki svarað. Það má engan
mun sjá á því hvort hægrið, miðjan eða vinstrið hafna
af meiri ákefð öllum hugmyndum um að lögmál
markaðarins, framboð og eftirspurn, ráði verðinu
sem útgerðin greiðir þjóðinni fyrir afnot af sjávar-
auðlindinni. Öllum flokkunum þremur virðist henta
frekar nakin ríkisafskipti af heilli atvinnugrein þar
sem stjórnmálamenn leika sér að því að breyta veiði-
gjöldunum eftir hentugheitum.
Í heilbrigðis- og velferðarmálum virðist einkafram-
takið öllum flokkunum jafn mikil ógn með þeim
afleiðingum að biðlistar eftir nauðsynlegri þjónustu
eru lengri en nokkurn tímann hafa sést og staðan á
Landspítala versnar næstum dag frá degi.
Kerfið vex og dafnar við þessar aðstæður. Fögur
fyrirheit um aukið samstarf hins opinbera og einka-
fyrirtækja verða eins og hvert annað grín þegar veru-
leikinn blasir við í formi umfangsmikillar samkeppni
ríkisins við fyrirtæki á samkeppnismarkaði án nauð-
synlegs aðhalds og gegnsæis.
Dæmin eru mun fleiri.
Við þurfum ríkisstjórn sem breytir því sem þarf að
breyta í þágu almannahagsmuna. Ekki ríkisstjórn sem
einsetur sér helst að gera ekki neitt. n
Um hvað er varðstaðan
Hanna Katrín
Friðriksson
formaður þing-
flokks Viðreisnar
Skýrsla Ríkisendurskoðunar mun ekki
segja okkur neitt sem skiptir máli um
söluna á Íslandsbanka. Það er algjör
óþarfi að halda niðri í sér andanum yfir
þessari úttekt. Það er að segja ef blessað
plaggið verður einhvern tímann tilbúið og
Ríkisendurskoðandi hættir að fara mánaðar-
villt í dagatalinu.
Skýrslan mun útlista það sem mögulega hefði
verið hægt að gera pínulítið öðruvísi varðandi
framkvæmdina. Á stofnanamáli. Það er allt og
sumt. Með öðrum orðum, hún mun ekki inni-
halda neitt af því sem Íslandsbankagjörningur-
inn raunverulega afhjúpar.
Það er nefnilega ekki framkvæmdin við
söluna sem skiptir máli, heldur ásetningurinn.
Ákvörðunin um að gera þetta með þessum
hætti.
Sleppum stofnanamálinu. Aðferð lokaðs
útboðs var beitt í Íslandsbankamálinu til þess
að tryggja að rétta fólk fengi að kaupa. Þess
vegna hringdu vel valdir miðlarar í suma en
ekki aðra.
Þeir sem ákváðu þetta vissu alveg að verð-
bréfamiðlararnir myndu hegða sér með
þessum hætti. Enda afhjúpar listi yfir kaup-
endur, sem er eins og fimmtán ára gamall
gestalisti inn á Skuggabarinn, þetta allt saman.
Stútfullur af vinum og vandamönnum úr
síðasta matarboði. Ásamt miðlurunum sjálfum
auðvitað.
Þeir allra meðvirkustu hafa verið duglegir við
að réttlæta fúskið með því að benda á að þessi
aðferð sé þekkt í útlöndum.
Það kann að vera. En það er ekki þar með sagt
að hún henti í samfélagi sem er svo lítið að því
er stýrt af einstaklingum og ráðamönnum sem
ýmist gengu saman í skóla eða tengjast fjöl-
skylduböndum. Hringur valdsins á Íslandi er
of þröngur til að við getum treyst því að lokuð
sala á ríkiseign verði ekki misnotuð.
Enda átti þessi aðferð aldrei að koma til tals,
en varð samt fyrir valinu. Af ákveðinni ástæðu.
Þetta bankasölumál snýst ekki um póli tískan
skotgrafahernað eða skeytasendingar á milli
ráðuneyta. Það snýst heldur ekki um það hver
seldi pabba sínum hvað.
Salan á Íslandsbanka snýst um endurteknar
tilraunir örfárra manna til að sölsa undir sig
eignir og auðlindir þjóðarinnar. Þetta mál er
enn einn kaflinn í áratugalangri sögu íslenskr-
ar sérhagsmunagæslu.
Það er stóra myndin sem við eigum að vera
að ræða. Meinið sem við eigum að vera að upp-
ræta. Skýrsla Ríkisendurskoðunar mun ekki
gera neitt fyrir okkur í þeim efnum. n
Meinið
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 2. september 2022 FÖSTUDAGUR