Fréttablaðið - 02.09.2022, Side 12
Það er svo margt sem
okkur finnst svo augljóst
og við myndum venjulega
aldrei fara að lýsa, en þarf
að lýsa.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Erla Ragnarsdóttir
Reykjamörk 12, Hveragerði,
áður til heimilis á Flateyri,
lést í faðmi sinna nánustu, föstudaginn
26. ágúst, á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju mánudaginn
5. september nk. klukkan 14.00.
Sigurður Sigurdórsson
Guðmundur Jón Sigurðsson
Þórunn Jóhanna Sigurðardóttir Valgeir Ásgeirsson
Sigurdór Sigurðsson Silla Vignisdóttir
barna- og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, systir og frænka,
Ásdís Hrefna Ármanns Feifer
lést á heimili sínu í Flórída 13. júlí.
Jarðsett hefur verið í
Gufuneskirkjugarði hjá foreldrum
hennar að ósk hinnar látnu.
Peter Feifer
Hrafnhildur Elka Ármannsdóttir
Kristín Guðrún Ármannsdóttir Hannes Guðmundsson
Guðrún Eva Guðmundsdóttir Bjarki Elíasson
Ásdís Birta Gunnarsdóttir Sigurður Á. Hjartarson
Ármann Kr. Stefansson Sanne Stefansson
Dagmar Kr. Hannesdóttir Freyr Halldórsson
Hannes Kr. Hannesson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Sæmundur Hrólfsson
lést á heimili sínu Austurmýri 3,
Selfossi, 26. ágúst.
Útför fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 9. september kl. 13.
Heiðrún Hallgríms
Ólafur Jóhann Sæmundsson Elín Árnadóttir
Björn S. Sæmundsson Bryndís Guðmundsdóttir
Magnús Þ. Magnússon
Rósa B. Sæmundsdóttir Sverrir Ingimundarson
Jóhanna F. Sæmundsdóttir Birkir G. Guðnason
barnabörn, barnabarnabarn og systkini hins látna.
Elskuleg systir, mágkona og frænka,
Sólveig Jóna Jóhannsdóttir
sjúkraliði,
Ljósheimum 18a,
lést á Landspítalanum
í Fossvogi 30. ágúst.
Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju
8. september klukkan 13.00.
Ásdís Jónsdóttir
Stefán G. Jónsson
Elísabet Stefánsdóttir
Ásgrímur S. Stefánsson
Sigurbjörg Stefánsdóttir
makar og aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jóhanna Kristjana
Friðfinnsdóttir
Urðargili 11,
Akureyri,
lést 28. ágúst. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 9. september kl. 13.
Gunnar Bergmann Arnkelsson
Sverrir Árnason Dýrleif Fríða Haraldsdóttir
Arnar Árnason Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
Andri Freyr Sverrisson
Alma Karen Sverrisdóttir
Aron Árni Sverrisson
Kristjana Líf Arnarsdóttir
Elmar Blær Arnarsson
Þórdís Birta Arnarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Aðalsteinn Grímsson
Eilífsdal,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi þann 26. ágúst.
Útför fer fram frá Guðríðarkirkju
mánudaginn 5. september kl. 13 en jarðsett verður
í Reynivallakirkjugarði að útför lokinni.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Hulda Þorsteinsdóttir
Erla Aðalsteinsdóttir Ólafur Þór Júlíusson
Lilja Aðalsteinsdóttir Þór Hauksson
Heiða Aðalsteinsdóttir Guðmundur Ingi Þorvaldsson
og barnabörn.
Sjónlýsingarleiðsögn verður í
boði fyrir blinda og sjónskerta í
Árbæjarsafni á laugardag en við
sjónlýsingu þarf að horfa öðruvísi
á hlutina en maður er vanur.
arnartomas@frettabladid.is
Árbæjarsafnið býður blindum og sjón-
skertum upp á sjónlýsingarleiðsögn á
morgun klukkan 15. Þar munu Þórunn
Hjartardóttir og Guðbjörg H. Leaman
stýra ferðinni en þær hafa unnið saman
við sjónlýsingar í um áratug.
„Það þarf í rauninni að horfa öðru-
vísi á hlutina en maður er vanur,“ segir
Þórunn, um hverju þurfi að huga að
þegar sjónlýst er. „Það er svo margt sem
okkur finnst svo augljóst og við mynd-
um venjulega aldrei fara að lýsa, en þarf
að lýsa. Til dæmis var áður fyrr kannski
boðið upp á sjónlýsingu á myndefni
fyrir sjónvarp, en ekki fyrir fjarstýring-
una.“
Í leiðsögninni á morgun verður gengið
um safnsvæðið, en Þórunn segir dag-
skrána ekki fullmótaða þar sem hún
muni fara eftir aðstæðum og þátttak-
endum.
„Auðvitað náum við ekki að skoða
nema brot af því sem er á Árbæjarsafni,
enda svo margt skemmtilegt að skoða,“
segir hún. „Það fer líka aðeins eftir
áhugasviði þeirra sem koma hvað við
endum á að skoða, svo þetta verði sem
skemmtilegust upplifun fyrir alla.“
Flókið ferli
Þórunn og Guðbjörg kynntist fyrst sjón-
lýsingum árið 2012 þegar Blindrafélagið
stóð fyrir námskeiði á vegum doktors
Joels Snyder sem hefur kennt fræðin
víða um heim.
„Blindrafélagið styrkti þátttakendur
á námskeiðinu gegn því að þeir tækju
mögulega þátt í verkefnum sem kæmu
upp,“ segir Þórunn. „Það voru tíu manns
sem kláruðu námskeiðið en eftir fyrstu
verkefnin hélt enginn þessu áfram nema
við tvær, eftir því sem við best vitum.
Svo höfum við sótt nokkrar alþjóðlegar
ráðstefnur sjónlýsenda og fengist við
ýmis verkefni.“
Verkefnin sem ber á borð sjónlýsenda
eru fjölbreytt og segir Þórunn verklagið
og lýsingarnar ólíkar eftir viðfangsefn-
inu hverju sinni.
„Í haust verður þriðja serían af Ófærð
sýnd á Netf lix og við vorum í fyrsta
skipti fengnar til að semja sjónlýsingu á
íslensku fyrir íslenska þáttaröð. Ég þýddi
svo sjónlýsingu á Kötlu og Broti fyrir
Netflix. Það er svolítið skrítið að þessar
seríur hafi allar fengið sjónlýsingu á Net-
flix en ekki þegar þær voru sýndar hér.“
Getur ekki verið f lókið að sjónlýsa
svona þáttum?
„Jú, það er svo stuttur tími sem maður
hefur til að skjóta inn orðum, velja
hverju þurfi að lýsa og hvaða orð eigi
best við, með sem fæstum atkvæðum.“
Sjónlýsingin á safninu á morgun er
ókeypis og er blint og sjónskert fólk
boðið sérstaklega velkomið. n
Sjónlýsing á þjóðararfi
Það er allt öðruvísi að sjónlýsa söfnum og sýningu en sjónvarpsseríum, segir Þórunn. MYND/JAVIER BALLISTER
44 f.Kr. Keisaraynjan Kleópatra lýsir þriggja ára son sinn
Sesaríon meðstjórnanda sinn í Egyptalandi.
1625 Kötlugos hefst með gríðarlegu öskufalli og flóðum.
1666 Bruninn mikli í Lundúnum hefst. 70 af 80 þúsund-
um heimila í borginni verða eldinum að bráð.
1876 Kveikt er á götuljósi í Reykjavík
í fyrsta sinn, steinolíulugt á
stólpa í Bakarabrekku.
1967 Vígð er brú yfir Jökulsá á Breiða-
merkursandi.
1973 J.R.R. Tolkien, höfundur Hringa-
dróttinssögu og Hobbitans,
fellur frá.
1990 Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna gengur í gildi.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. september 2022 FÖSTUDAGUR