Fréttablaðið - 02.09.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 2. september 2022
Athafnarmaðurinn Nökkvi Fjalar Orrason notar Neubria Focus með frábærum árangri. MYND/AÐSEND
Aukin einbeiting
eykur lífsgæði
Neubria Focus er háþróað bætiefni sem inni-
heldur sjö náttúrulegar jurtir auk fjölvítamína
sem vinna vel saman með það að markmiði
að efla hugræna virkni. 2
Vonandi taka margir spettinn í For-
setahlaupinu. MYND/UMFÍ
gummi@fréttabladid.is
Á morgun verður tilvalinn fjöl-
skylduviðburður á Álftanesi en
þá verður Forsetahlaupið haldið.
Hlaupið er hluti af íþróttaveislu
Ungmennafélags Íslands og 100 ára
afmælis UMSK en það eru hlaupa-
hópar Stjörnunnar og Álftaness
sem hafa umsjón með því.
Upphitun hefst klukkan 10 en
ræst verður í hlaupið við Álftanes-
laug. Forsetahlaupið er opið fyrir
alla sem hafa gaman af því að taka
þátt í íþróttaviðburðum og hver
veit nema að Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, bregði sér af
Bessastöðum og í hlaupaskóna.
Tvær vegalengdir í boði
Tvær vegalengdir eru í Forseta-
hlaupinu. Annars vegar 5 kíló-
metrar þar sem hlaupið er á
malbiki, hellulögn og á malarstíg og
hins vegar einnar mílu hlaup sem
er 1,6 kílómetrar á sléttu undirlagi.
Hlaupið verður frá Álftaneslaug
að Bessastöðum og þar snúið við
og endamarkið verður við laugina.
Ýmislegt verður í boði annað en
hlaupið sjálft en leikjagarður verður
við íþróttamiðstöðina og gestir
og gangandi geta fengið grillaðar
pylsur. Ræst verður út í míluhlaupið
klukkan 10.30 og klukkan 11 í 5
kílómetra hlaupinu.
Þátttökugjald er 1.000 krónur í
míluhlaupinu og 2.000 krónur í 5
kílómetra hlaupinu. Frítt er fyrir
börn og ungmenni 16 ára og yngri.
Allir fá svo þátttökuverðlaun að
hlaupinu loknu. n
Forsetahlaupið
á Álftanesi
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is