Fréttablaðið - 02.09.2022, Síða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Það kannast ef laust f lestir við að
eiga erfitt með að einbeita sér af
og til en sumir dagar eru jafnframt
erfiðari en aðrir. Segja má að ein-
beiting eigi stóran þátt í velgengni
okkar í daglegu lífi. Einstaklingar
sem stunda nám þarfnast góðrar
einbeitingar og einstaklingar á
vinnumarkaði þurfa jafnframt
góða einbeitingu og fókus til að
leysa fjölbreytt verkefni sín dag
hvern. Að ná góðri einbeitingu
eða fókus heilu dagana í skóla,
vinnu eða daglegu amstri er alls
ekki sjálfgefið. Því er mikilvægt að
huga að því hvað hægt sé að gera
til þess að halda einbeitingu.
Ráð til að halda einbeitingu
Þegar kemur að því að halda ein-
beitingu er mikilvægt að undirbúa
hugann fyrir komandi verkefni.
Ásamt því er gott að huga að því
hvað gæti verið að trufla okkur í
nærumhverfi og reyna eftir bestu
getu að koma í veg fyrir það. Fyrir
þá sem sitja mikið á daginn getur
verið gott fyrir einbeitinguna að
standa upp og taka sér pásur af
og til sem og fá sér ferskt loft sem
gerir ótrúlega mikið fyrir okkur.
Jafnframt er nauðsynlegt að næra
sig vel, huga að góðum nætur-
svefni og drekka nægilega mikið
vatn sem hefur ýmsa heilsusam-
lega kosti fyrir líkamsstarfsemi
okkar. Að auki getur verið gott
að taka inn hágæða bætiefni sem
innihalda adaptogen-jurtir sem
hafa það að markmiði að viðhalda
andlegri og líkamlegri líðan, ein-
beitingu og fókus dagsdaglega.
Adaptogen-jurtir
Í náttúrunni leynist fjársjóður í
jurtum sem kallast adaptogen,
eða öðru nafni jafnvægisjurtir
sem geta komið okkur að góðu
gagni. Jurtir sem flokkast sem
adaptogen eru taldar afar áhrifa-
ríkar og öruggar en þær hafa
verið notaðar um ómunatíð
til að efla heilsu okkar og auka
aðlögunarhæfni líkamans gegn
álagi. Adaptogen-jurtir hafa náð
miklum vinsældum á Vestur-
löndum en mikill áhugi er á að
rannsaka eiginleika jurtanna og
sífellt f leiri niðurstöður styðja við
aldagamlar fullyrðingar forvera
okkar um jákvæð áhrif þessara
einstöku jurta á líkamann.
Neubria bætiefnablöndur
Hjá Neubria starfar úrvalslið
sérfræðinga sem hafa það að
markmiði að skapa fæðubótarefni
sem mæta þörfum nútímans.
Mikill metnaður er lagður í að
setja saman öflugar blöndur af
jurtum og öðrum náttúruefnum
ásamt nauðsynlegum vítamínum
með áherslu á eðlilega líkams-
starfsemi. Neubria línan saman-
stendur af fimm útvöldum bæti-
efnablöndum sem allar innihalda
adaptogen-jurtir sem lengi hafa
verið þekktar fyrir heilsueflandi
eiginleika sína.
Neubria Focus
er bætiefni sér-
staklega hannað
fyrir þá sem
vantar aukna
einbeitingu og
fókus.
Nökkvi Fjalar
segist gera sitt
besta til að nýta
sér það sem
hann veit að
virkar til að auka
einbeitinguna.
Aukin einbeiting
eykur lífsgæðin
að mati Nökkva.
MYND/AÐSEND
Neubria Focus
Neubria Focus er bætiefni sér-
staklega hannað fyrir þá sem
vantar aukna einbeitingu og fókus.
Neubria Focus inniheldur meðal
annars sítrónólín, gingko bilboa,
bláber, rósmarín, lútín og bacopa
monnieri sem er sennilega best
þekkt fyrir jákvæð áhrif á heila-
starfsemi ásamt ashwagandha sem
lengi hefur verið þekkt fyrir heilsu-
eflandi eiginleika sína.
Einnig inniheldur blandan co-
enzyme Q10, koffín og zeaxantín
sem hefur það að markmiði að
vernda augun gegn skaðlegum
bláum geislum sem til dæmis
tölvuskjáir gefa frá sér. A-, D-,
E-, K-, C- og B-vítamínblöndu
sem stuðlar að eðlilegri starf-
semi ónæmiskerfisins sem og
dregur úr þreytu og lúa er einnig
að finna í vörunni ásamt mikil-
vægum steinefnum á borð við
sink sem stuðlar að eðlilegri vits-
munastarfsemi.
Athugið þó að Neubria Focus
er koffínbætt bætiefni og er ekki
ætlað 16 ára og yngri.
Neubria Focus eykur lífsgæðin
Athafnamaðurinn Nökkvi Fjalar
hefur notað Neubria Focus með
frábærum árangri en þetta hefur
hann að segja um sína upplifun
á vörunni: „Ég geri mitt besta
til þess að nýta mér það sem ég
þekki til þess að efla einbeitingu
mína, því ég trúi að með aukinni
einbeitingu auki ég lífsgæði mín.
Neubria Focus er eitt af því sem ég
nýti mér til þess að efla mína ein-
beitingu á daginn.“ n
Neubria Focus fæst í Fjarðarkaup-
um, Hagkaupum, Nettó, Lyfju, Lyfja-
veri, Heilsuveri og Heimkaupum.
2 kynningarblað A L LT 2. september 2022 FÖSTUDAGUR