Fréttablaðið - 02.09.2022, Síða 16
Þetta verður eins
og að bjóða hlust-
endum okkar í stúdíóið.
Við fáum sendar sögur
frá teboðsgestum og hver
veit nema við opnum
fyrir spurningar.
Nína Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
Hefur þú velt fyrir þér hversu að-
laðandi þú ert? Færðu reglulega
athugasemdir eða hrós og veist
ekki hvort þú eigir að treysta því?
Eða minnist aldrei nokkur lifandi
manneskja orði á útlit þitt, og
finnst þér kannski að fleiri mættu
hrósa þér?
Rannsóknir sýna að mann-
eskjan er frekar léleg í að meta
eigið aðdráttarafl. Að auki hefur
tæknin litað upplifun fólks á eigin
fegurð. Til að mynda bjaga sjálfs-
myndarlinsur farsímanna hlutföll í
andlitum fólks. Þá hafa „filterar“ á
Instagram og TikTok ruglað marga
í ríminu og sett fólki ómöguleg og
óraunhæf viðmið um hvers konar
fegurð telst raunhæf.
Þá er rétt að minnast á að þokki
felst í fleiru en útliti, en persónu-
leiki, snyrtimennska, líkams-
beiting, klæðnaður og heilsu-
farslegir þættir hafa þarna áhrif.
Að ótöldum mismunandi smekk
fólks sem er líklega mikilvægasta
breytan.
Þó hafa sérfræðingar í mann-
legri hegðun tínt saman sex atriði
sem virðist einkenna daglega upp-
lifun óvenjulega aðlaðandi fólks.
1. Aðlaðandi fólki er oft hrósað
fyrir útlitið. Jafn einfalt og
það kann að hljóma virðist
aðlaðandi fólk oft heyra það
beint frá öðrum. En þá er komin
önnur spurning, hvort það trúi
hrósinu.
2. Þvert á það sem margir kunna
að halda virðist sumt aðlaðandi
fólk einnig lenda í því að fá
sjaldan hrós. Að fólk telji við-
komandi vita hversu aðlaðandi
hann er, og sé jafnvel leiður á
því að heyra það.
3. Fólk hefur tilhneigingu til að
hafa afgerandi skoðanir á að-
laðandi fólki. Gjarnan er fólki
mjög illa við viðkomandi, eða
mjög vel við hann. Uppsprettan
er gjarnan afbrýðisemi eða
óöryggi og virðist gjarnan á yfir-
borðinu, sprottið upp úr engu.
4. Að ókunnir sendi einkaskilaboð
er eitthvað sem aðlaðandi fólk
upplifir oftar en þau sem líta út
eins og hefðbundið almúgafólk.
5. Fólk verður gjarnan vandræða-
legt í kringum persónur sem eru
meira aðlaðandi en meðal-
manneskjan. Ef óhóflegur vand-
ræðagangur samferðafólks
er eitthvað sem þú upplifir á
hverjum degi, eða fólk er allt
öðruvísi í framkomu við þig en
annað fólk, ertu mögulega bara
aðlaðandi.
6. Geislabaugs-áhrifin eru fyrir-
bæri sem sérfræðingar í mann-
legri hegðun tala um. Fólk ætlar
aðlaðandi einstaklingum eigin-
leika á borð við gáfur, gæsku og
heiðarleika, án þess að nokkuð
styðji þá hugmynd.
Sex atriði um líf
fallegasta fólksins
Það er einfaldara en margir halda að
útbúa sultu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sumir verja jarðvistinni með útlits-
legt forskot. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
5. september
mánudagur
n Hvanndalsbræður
Tehúsið, Egilsstöðum kl. 21.00
Hvanndalsbræður fagna 20 ára
starfsafmæli með tónleikum.
n Slökunarjóga
Bókasafni Kópavogs kl. 12.00-
12.30
Boðið er upp á létt slökunarjóga
í fjölnotasal aðalsafns. Aðgang-
ur ókeypis.
6. september
þriðjudagur
n Keppni á sundunum
Brokey kl. 18.00
Siglingafólk leikur sér á þriðju-
dagskvöldum í vinalegri móta-
röð.
n Músíkmóment
Bókasafni Hafnarfjarðar
kl. 18.00
Dáðadrengirnir í hljómsveitinni
Fjöru mæta með dansvænt
strandrokk í sumarlokin.
7. september
miðvikudagur
n Pönkganga með Dr. Gunna
Bókasafn Kópavogs kl. 12.15
Gengið um söguslóðir pönksins.
n Teboðið x Smitten
Gamla Bíó kl. 20.00
Birta Líf og Sunneva Einarsdóttir
verða með hlaðvarp í beinni
þar sem teboðsgestir þeirra
mæta og eiga gott sumarkvöld.
Smitten heldur uppi stuðinu.
8. september
fimmtudagur
n Stefán Ingvar – Fullkomið
ójafnvægi
Tjarnarbíó kl. 17.30
Grínistinn og pistlahöfundurinn
Stefán Ingvar Vigfússon mætir
með glænýtt uppistand þar
sem hann veltir fyrir sér lífinu,
dauðanum, Hófi kærustu sinni
og þvottavélum.
n Purrlesque
Gaukurinn kl. 20.00
Góðgerðarsýning til styrktar
Villiköttum. Cabaret- og bur-
lesque-sýning þar sem sjálf
kisan er í aðalhlutverki.
Hvað er um að vera í næstu viku?
Hinn 47 ára gamli stórleikari
Leonardo DiCaprio hætti nýlega
með fyrirsætunni Camilu Mor-
rone, rétt eftir 25 ára afmælið.
Af fjölmörgum fyrirsætum
sem hann hefur verið með
hefur engin þeirra orðið
eldri en 25 ára í sambandi
með honum.
Leikarinn ber jú svo
mikla virðingu fyrir
konum að hann
slítur sambandinu
á kvartaldaraf-
mælinu. Þetta er
að sjálfsögðu
svo að kærastan
fái tækifæri til
að stofna eigin
fjölskyldu, enda
tifar líkams-
klukka kvenna
á öðrum hraða
og DiCaprio
er ekki á þeim
buxunum að festa
ráð sitt. Ekki þess
verðugur til að sóa tíma þessara
góðu kvenna. Þetta hefur ekkert
að gera með það að framheil-
inn nái fullum þroska við 25
ára aldur.
Framhaldsskólarnir í
Beverly Hills senda reyk-
merki á síðsumarskvöldi
og ungar konur á svæðinu
vita hvað það þýðir. Nú
ætlar DiCaprio
að velja sér nýja
kærustu. Klukkan
á eldra módelinu
hefur slegið 25.
Farvel, gamla
hró.
Bless bless,
segir hann við
hina háöldruðu
tuttugu og
fimm ára konu.
Finndu lífsfyll-
inguna sem ég
get ekki gefið þér.
Njóttu efri áranna
án mín. n
Leonardo DiCaprio kveður gamalt hró
Birta Líf og Sunneva Einarsdóttir
voru að leggja lokahönd á undir-
búning að Teboðinu sínu í Gamla
Bíói þegar Fréttablaðið náði af þeim
tali. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar frá því að vinkonurnar tvær
ýttu fyrst á upptökutakkann fyrir
hlaðvarpsþáttinn. Sunneva hefur
sett á laggirnar tvo sjónvarpsþætti,
#samstarf og LXS, og Birta Líf hefur
eignast erfingja til að taka við krún-
unni.
Þær ætla að bjóða hlustendum
sínum að upplifa þáttinn í beinni
á sérstökum Smitten-viðburði í
Gamla Bíói 7. september næstkom-
andi. Þær fagna tveimur árum og
150 þáttum saman.
„Upprunalega átti þetta að vera
hlaðvarp um hinn vestræna heim
en nú er þetta orðið vinkonuspjall.
Við tölum um allt og ekkert, allt frá
draugasögum í „dilemmas“. Þetta
er bara ótrúlega skemmtilegt og við
erum opnar bækur,“ segir Birta Líf
aðspurð hvernig Teboðið hafi breyst
í gegnum árin tvö.
Í hlaðvarpsþættinum geta hlust-
endur lagt fram fyrirspurnir í
gegnum Instagram og verður svipað
fyrirkomulagi í beinni á sviðinu í
Gamla Bíói.
„Þetta verður eins og að bjóða
hlustendum okkar í stúdíóið. Við
fáum sendar sögur frá teboðsgest-
um og hver veit nema við opnum
fyrir spurningar,“ segir Birta Líf og
að sjálfsögðu hendir þá blaðamaður
fram spurningunni:
Er alltaf heitt te á könnunni?
„Það leynist alls konar ofan í þess-
ari tekönnu. Stundum te, stundum
orkudrykkir, stundum smá Pro-
secco.“
Aðspurð segir hún samstarfið
hafa verið yndislegt. Þær Sunneva
hafi báðar mjög skýra sýn fyrir
stefnu Teboðsins og séu með ólíka
kosti svo að samanlagt fullkomni
þær hvor aðra. „Ótrúlegt en satt þá
hefur þetta alltaf verið þægilegt
samstarf.“
Birta segir þær vinkonurnar vera
eins og opna bók. „Stundum er eins
og fólk sé farið að þekkja okkur
of mikið,“ segir hún og hlær. „Við
gleymum oft að það sé hljóðnemi
fyrir framan okkur.“ n
Stundum leynist Prosecco í tekönnunni
Sunneva og Birta ætla að bjóða hlustendum sínum í Gamla bíó 7. september.
2. september 2022 FÖSTUDAGUR
n Uppskriftin
Það er kominn september og þeir
sem ætla að tína ber þetta árið
þurfa að drífa sig í brekkurnar.
Það er frekar einfalt verk að
útbúa bláberjasultu sem er auð-
vitað ljómandi góð með pönnu-
kökum, vöfflum eða ofan á ost á
ristaðri brauðsneið, svo að dæmi
séu nefnd. Sultur eru líka bráðsnið-
ugar tækifærisgjafir og auðvelt er
að búa fallega um krukkuna með
textílbút og teygju.
Bláberjasulta
Kíló af bláberjum
600 g sykur
1 tsk. sítrónusafi
Smá vatn
½ tsk. salt
Setjið hráefnið í pott og sjóðið í
opnum potti í korter. Merjið með
kartöflupressu og sjóðið blönduna
áfram í 5 mínútur. Setjið í krukkur
og gætið þess vel að hafa þær
tandurhreinar. Lokið krukkunum
strax og kælið.
Gott er að merkja dagsetningu á
lokin, með olíutússi. n
Tína þá berjablá börn í lautu til og frá