Fréttablaðið - 02.09.2022, Page 22
Auðvitað hittist svo
á að þau bóka sama
flug til Balí. Ekki nóg
með það, heldur fá þau
sæti hlið við hlið og vélin
er fullsetin.
Fráskilin hjón (George Clooney og
Julia Roberts) taka sig saman og
fara til Balí til að forða ástfanginni
dóttur sinni frá því að gera sömu
mistök og þau gerðu fyrir aldar-
fjórðungi.
Í myndinni fylgjumst við með
Wren Butler sem er nýútskrifuð
úr Háskólanum í Chicago. Hún
ákveður að fara með Lily, bestu
vinkonu sinni, í útskriftarferðalag
til Balí. Þar kynnist Lily heima-
manni og takast með þeim ástir. Úr
verður að þau ákveða að láta pússa
sig saman.
Þetta verður til þess að foreldrar
Lily grípa til þess ráðs að reyna að
koma í veg fyrir ráðahaginn til að
forða dóttur sinni frá því að gera
sömu mistök og þau gerður fyrir
25 árum.
Wren dvelur áfram á Balí og
nýtur hátíðarhaldanna í kringum
trúlofunina og brúðkaupið. Þar
finnur hún líka ástina í myndar-
legum heimamanni sem er læknir
á staðnum.
Hjónin fyrrverandi eru ekki
bara skilin að skiptum. Þau þola
ekki tilvist hvort annars. Þegar
þau fá fréttirnar af yfirvofandi
brúðkaupi dóttur sinnar ákveða
þau hvort í sínu lagi að fara rak-
leiðis til Balí til að reyna að afstýra
stórslysi.
Auðvitað hittist svo á að þau
bóka sama flug til Balí. Ekki nóg
með það, heldur fá þau sæti hlið
við hlið og vélin er fullsetin. Þau
sitja því uppi með hvort annað sem
sessunaut í löngu flugi. Til allrar
hamingju tekst þeim að fá konuna
sem er þriðji farþeginn í sæta-
röðinni til að sitja á milli sín.
Stuðpúðinn í miðjusætinu fær,
ásamt fleiri farþegum og flug-
liðum, þær upplýsingar að Clooney
og Roberts komi svona illa saman
vegna þess að þau hafi verið hjón.
„Óhamingjusömustu nítján ár
ævi minnar,“ segir Clooney. „Við
vorum bara gift í fimm ár,“ segir
Roberts. „Ég taldi með tímann
sem það tók mig að jafna mig eftir
hjónabandið,“ segir Clooney.
Þrátt fyrir þessa fullkomlega
gagnkvæmu andúð – eigum við að
segja hatur – neyðast fyrrverandi
hjónakornin til að snúa bökum
saman í samsæri sínu til að véla
Óvinir sameinast um samsæri
Fróðleikur
n Myndin gerist á Balí en er tekin upp í Queensland í Ástralíu.
n Þetta er í fimmta skipti sem George Clooney og Julia Roberts
leika saman í mynd. Áður hafa þau leikið saman í Ocean’s Eleven
(2001), Confessions of a Dangerous Mind (2002), Ocean’s Twelve
(2004) og Money Monster (2016).
n Eftir að hafa leikið í rómantísku gamanmyndinni One Fine Day
sagðist George Clooney aldrei framar ætla að leika í slíkum
myndum, heldur einungis í alvarlegum myndum með mikilvæg
samfélagsleg skilaboð. Þetta er fyrsta rómantíska gamanmyndin
sem hann leikur í síðan 1996.
dóttur sína út úr hjónabandshug-
leiðingum.
Þau grípa til ýmissa ráða og sjást
ekki fyrir í þeim efnum. Óhætt er
að mæla með þessari mynd fyrir
þá sem hafa gaman af að hlæja og
skemmta sér.
Leikstjórinn er Ol Parker, sem
áður hefur leikstýrt meðal annars
Mamma Mia! Here We Go Again.
Hann skrifaði líka handritið ásamt
Daniel Pipski. n
Háskólabíó, Laugarásbíó, Smára-
bíó og Sambíóin Álfabakka, Egils-
höll og Akureyri
Frumsýnd
16. september 2022
Aðalhlutverk:
Kaitlyn Dever, George
Clooney og Julia Roberts
Handrit:
Ol Parker og Daniel Pipski
Leikstjóri:
Ol Parker
6 kynningarblað 2. september 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS