Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 36
Við vorum svolítið
eins og Stones og
Bítlarnir eða Wham!
og Duran.
Okkur langaði bara að
búa til músík, einhvers
konar rokktónlist.
Síðan bara svona
þróaðist þetta.
SSSÓL, eða Síðan skein sól
eins og hún hét í upphafi, hélt
sína fyrstu tónleika í Hlað-
varpanum í lok mars 1987 og
fagnar 35 ára afmælinu með
stórtónleikum í næsta mán-
uði. Jakob Smári bassaleikari
segir engu breyta hvoru nafn-
inu bandið sé kallað því þetta
sé „sama bandið, sömu lögin
og sama stemningin“.
toti@frettabladid.is
SSSÓL telst skuldlaust til farsælustu
og langlífustu rokkhljómsveita
landsins en hún hélt sína fyrstu tón-
leika þar sem Tapasbarinn er núna í
lok mars 1987 og er því orðin 35 ára
og nokkrum mánuðum betur.
„Þetta er svolítið langur tími,“
segir Jakob Smári Magnússon bassa-
leikari og bætir aðspurður við að
þrátt fyrir aldur og ýmis störf sé
mannskapurinn vel gíraður í stór-
tónleika í Háskólabíói þann 15.
október þar sem afmælinu verði
fagnað með þeim stæl sem alltaf
hefur einkennt hljómsveitina á
sviði.
„Það er bara stemning í hópnum.
Við erum náttúrlega ekkert að spila
mikið saman, upprunalega bandið,
þannig að þetta eru bara skemmti-
legir endurfundir fyrir okkur og
gaman að fagna þessu saman og
við ætlum allavegana að skemmta
okkur,“ segir Jakob Smári og bætir
við að þeir hafi verið svo lengi í
bandinu að það sé ekki aðeins hluti
af ferli þeirra, heldur lífi og jafnvel
sjálfsmynd.
Hann segist þó ekki muna
nákvæmlega hvernig nafnabreyt-
ingin úr Síðan skein sól yfir í SSSÓL
kom til en minnist þess að eitt-
hvað hafi verið um að fólk skamm-
stafaði langt nafnið í SSSÓL og þeir
hafi endað með að breyta nafninu
formlega. „En þetta er svo sem sama
bandið, sömu lögin og sama stemn-
ingin.“
Rokkaðir sunnudagsmorgnar
SSSÓL er í dag skipuð, auk Jakobs
Smára, þeim Helga Björnssyni
söngvara og Eyjólfi Jóhannessyni
gítarleikara sem allir eru uppruna-
legir meðlimir.
Ingólfur Sigurðsson er líka enn í
sveitinni en hann kom í stað Péturs
Grétarssonar sem byrjaði á tromm-
um, en venjulega er litið á Helga,
Jakob, Eyjólf og Ingólf sem uppruna-
lega mynd sveitarinnar þar sem þeir
spiluðu á fyrstu plötunni.
„Við Helgi vorum saman í Grafík
og hættum á sama tíma,“ segir
Jakob Smári en nokkru eftir að þeir
félagar yfirgáfu Grafík hafði Helgi
samband. Þá voru hann og Pétur
trommari að spá í að stofna band
og vildu fá hann með. „Og á sama
tíma vorum ég og Eyjó gítarleikari
að tala um að gera eitthvað en við
höfðum verið saman í Tappa Tíkar-
rassi þannig að þetta small svona.
Þarna var komið bassaleikari, gítar-
leikari, trommur og söngur.“
Jakob Smári minnist þess að í
upphafi hafi sunnudagsmorgnar
verið eini tíminn þar sem þeir voru
allir lausir fyrir æfingar. „Ekkert
rokk í því en við allavegana hitt-
umst alltaf á sunnudagsmorgnum
og æfðum. Við Eyjó vorum í dag-
vinnu og hinir tveir í leikhúsinu.
Eiginlega uppteknir öll kvöld og
þannig byrjuðum við.“
Óvænt sveitaballaband
Síðan skein sól varð fljótlega en
að sögn Jakobs nokkuð óvænt
öf lug og gríðarvinsæl sveita-
ballahljómsveit og Helgi annál-
aður fyrir að keyra upp tryllta
stemningu.
„Hann er rosalega góður í því.
Náttúrlega mikill performer og
stemningsmaður og ég held að
menn hafi séð þetta strax þegar
við vorum að halda tónleika. Það
var alltaf svona ákveðin stemn-
ing og stuð og svo tók þetta bara
við næstu árin og við vorum
búnir að spila út um allt,“ segir
Jakob um innreið þeirra á sveita-
ballamarkaðinn.
„Sem er svolítið skemmtilegt því
að þegar bandið var stofnað, þá var
það ekkert hugmyndin. Okkur lang-
aði bara að búa til músík, einhvers
konar rokktónlist. Síðan bara svona
þróaðist þetta,“ heldur hann áfram
og rifjar upp að þegar sveitaballa-
möguleikinn kom upp hafi hljóm-
sveitin fundað sérstaklega. „Er þetta
eitthvað sem við ætlum að fara að
gera?“
Órafmagnaður útúrdúr
Síðan skein sól lagði grunninn að
velgengninni með mikilli vinnu
og stífu tónleika haldi í félagsmið-
stöðvum, skólum og ýmsum tón-
leikastöðum borgarinnar fyrstu
árin þangað til allt varð brjálað á
sveitaböllunum.
„Við ák váðum að demba
okkur ekki í sveitaböllin strax.
Eða ætluðum svo sem ekkert að
gera það,“ segir Jakob og bætir
við að þeir hafi frekar ákveðið að
fara í órafmagnaða hringferð um
landið 1989. Ferð sem hann telur
með ánægjulegustu hápunktunum
á ferlinum sem hafi einnig markað
ákveðin þáttaskil.
„Þetta var allskonar og ég held
að þetta hafi lagt grunninn að því
sem að síðar varð vegna þess að við
fórum út um allt, lögðum á okkur
mikla vinnu og höfðum náttúrlega
rosa gaman að þessu. Þannig að
svona eins og ég segi, það var lagt
upp með allt annað. Svo urðum við
svona sveitaballakallar.“
Staðið á skýi
Hljómsveitin varð ein sú allra vin-
sælasta á landinu og dældi út smell-
um á borð við Blautar varir, Geta
pabbar ekki grátið, Ég verð að fá að
skjóta þig, Halló, ég elska þig, Nótt-
in, hún er yndisleg, Ég stend á skýi,
Svo marga daga, Síðan hittumst við
aftur, Toppurinn, Háspenna, Nos-
talgía, Kartöflur, Klikkað, Leyndar-
Sssama bandið,
sömu lögin og
sama stemningin
mál, Dísa, Vertu þú sjálfur, Þú ert
ekkert betri en ég, Einmana og Lof
mér að lifa, svo eitthvað sé nefnt.
„Þetta er í raun miklu meira en
maður gerir sér grein fyrir,“ segir
Jakob og hefur eftir Ívari Guð-
mundssyni, tónlistarpáfa á Bylgj-
unni, að hæglega megi telja 32 lög
með sveitinni til „hittara“.
„Þannig að þetta er slatti enda
voru okkar lög uppistaðan af pró-
gramminu þegar við vorum að
spila á sveitaböllunum. Þau voru
næstum því eins og tónleikar eða
þannig enda lögðum við líka alltaf
svo mikla áherslu á að vera að búa
til músík.“
Sálarstríð
Sálin hans Jóns míns og fleiri hljóm-
sveitir voru einnig frekar til fjörsins
á sama tíma og Jakob Smári segir
aðspurður að ekki sé hægt að neita
því að rígur hafi verið milli band-
anna.
„Já. Já, já, það var alveg svoleiðis,
enda vorum við í samkeppni. Þetta
voru Sálin, Sólin, Stjórnin var þarna
líka og fleiri bönd eins og Todmo-
bile.“ Og Sólin og Sálin voru tveir
turnar. „Það var eitthvað svona
á milli okkar. Einhver rígur. Við
vorum svolítið eins og Stones og
Bítlarnir eða Wham! og Duran. Það
var svolítið svoleiðis fílingur. Það er
ekki hægt að neita því þótt menn
séu allir góðir vinir í dag. Þetta var
bara einhver stemning.“
Miðasalan á 35 ára afmælistón-
leikana í Háskólabíói laugardags-
kvöldið 15. október hófst á Tix.is í
gær. n
Síðan skein sól í upphafi áður en nafnið breyttist í SSSÓL
en í raun gildir einu hvort þeirra er notað. Bæði tryggja
sama rokkið og stuðið. MYND/AÐSEND
Fyrstu plöturnar
þrjár dugðu til
þess að koma
Sólinni á kortið
og vel það.
20 Lífið 2. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 2. september 2022 FÖSTUDAGUR