Mosfellingur - 13.01.2022, Side 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
Gleðilegt nýtt ár, kæru Mosfellingar
nær og fjær! Biblían er uppspretta
góðrar visku sem talar oft inn í aðstæð-
ur okkar. Safnaðarstarfið í Lágafellssókn
byrjar hægt og rólega vegna aðstæðna
í samfélaginu:
guðsþjónustur hefjast sunnudaginn
16. janúar 2022 - auglýst nánar þegar
nær dregur hvort það verði streymt eða
á staðnum.
sunnudagaskólinn ávallt kl. 13
- auglýst nánar þegar nær dregur hvort
það verði streymt eða á staðnum.
æskulýðsfélagið ósoM - hefst
þriðjudaginn 18. janúar kl. 20.
Foreldramorgnar - hefjast fimmtu-
daginn 20. janúar kl. 10 - 12.
Dagskrá: Opið hús.
Fermingarfræðslur – prestarnir hafa
samband við foreldra og forráðamenn
í gegnum netpóst hvernig því verður
háttað.
Fylgist endilega vel með breytingum
og útfærslum á safnaðarstarfi vegna
sóttvarnatakmarkana á heimasíðunni
okkar og facebooksíðu.
www.lagafellskirkja.is &
lagafellskirkja á facebook
Heilsuefling af stað
á Reykjalundi
Nýtt námskeið er að fara af stað sem
hluti af heilsurækt Reykjalundar.
Námskeiðið er kallað heilsuefling
og er kennt í íþróttahúsi Reykja-
lundar klukkan 16:10 á mánudögum
og miðvikudögum. Farið er í
æfingar sem miða að því að bæta
líkamsstöðu, líkamsbeitingu, auka
líkamsvitund og draga úr verkjum
í daglegu lífi. Fjölbreyttar æfingar
s.s. gólfæfingar á dýnu, dans,
stöðugleika- og jafnvægisæfingar,
almennar styrktaræfingar o.fl.
Þátttakendur þurfa að geta komist
þægilega niður á gólf og framkvæmt
æfingar á dýnu. Leiðbeinendur á
námskeiðinu eru sjúkraþjálfarar
á Reykjalundi og má sjá nokkra
þeirra á meðfylgjandi mynd. Hægt
er að ganga frá skráningu í móttöku
Reykjalundar eða á heimsíðu. Ásamt
þessu nýja námskeiði er áfram
boðið upp á vatnsleikfimihópa og
karlaleikfimi í heilsurækt Reykja-
lundar. Á myndinni eru Hera Rut
Hólmarsdóttir, Sylvía Spilliaert og
Kristín Magnúsdóttir sjúkraþjálfarar.
Vinningshafar í
jólakrossgátu
Í jólablaði Mosfellings gafst
lesendum kostur á að spreyta sig á
verðlaunakrossgátu. Dregið hefur
verið úr innsendum lausnum og
eru sigurvegararnir þau Finnbogi
Rútur Hálfdánarson Brattholti 15
og Vigdís Másdóttir Laxatungu
199. Vinningshafarnir fá gjafabréf á
veitingastaðinn Barion í Mosfellsbæ
og verður gjafabréfunum komið til
þeirra á næstu dögum. Lausnarorð
krossgátunnar var „Lengi býr að
fyrstu gerð“. Við þökkum þeim
fjölmörgu sem sendu inn rétta
lausn og óskum vinningshöfum til
hamingju.
- Jólakrossgáta Mosfellings og Barion36
Verðlauna
krossgáta
Mosfellingur og Barion bjóða upp á jólakrossgátu Verðlaun í boði
Barion Mosó
Dregið verður úr
innsendum lausnar
orðum og fá tveir
heppnir vinningshafar
5.000 kr. gjafabréf
frá Barion Mosó.
Sendið lausnarorðið sem er í tölusettu reitunum, 121, á netfangið krossgata@mosfellingur.is
eða heimilisfangið Mosfellingur, Spóahöfða 26, 270 Mosfellsbæ.
Merkt „Jólakrossgáta”. Skilafrestur er til 6. janúar. Látið fylgja nafn og heimilisfang.
H
öf
un
du
r k
ro
ss
gá
tu
: B
ra
gi
V
. B
er
gm
an
n
b
ra
gi
@
fr
em
ri.
is
Mest lesnu fréttirnar á
Mosfellingur.is árið 2021
Sorgarferlið ansi flókið
Frétt | Vinkonurnar Anna Lilja
Marteinsdóttir og Anna Sigríður
Sigurjónsdóttir eiga margt
sameiginlegt. Þær heita báðar Anna, eru
þrítugar, búa í Mosó, og búa báðar yfir
þeirri reynslu að hafa misst maka sinn
fyrir þrítugt. Þar af leiðandi hafa þær
báðar verið nánasti aðstandandi þess sem
missir. Þær hafa verið vinkonur frá sextán
ára aldri og fylgst að síðan þá. Á dögunum
opnuðu þær vefsíðuna Tilstaðar.is þar
sem hægt er að kaupa eins konar samúð-
argjöf eða box með litlum glaðningi ...
Nettó opnar í Mosfellsbæ
Frétt | Föstudaginn 4. júní
mun Nettó opna nýja verslun
við Sunnukrika 3 í Mosfellsbæ.
Unnið hefur verið hörðum höndum að
því að standsetja rýmið síðustu vikur. Í
Sunnukrika er einnig að finna heilsugæslu,
apótek, bensíndælur og kjötbúð.
„Við höfum horft til Mosfellsbæjar mörg
undanfarin ár og erum ótrúlega spennt
fyrir því að opna,“ segir Gunnar Egill
Sigurðsson framkvæmdastjóri verslunar-
sviðs Samkaupa. „Staðsetningin er mjög
spennandi ...
Kaffi Kjós lokar eftir
23 ára rekstur
Frétt | Kaffi Kjós, þjónustumið-
stöð sem staðsett er í suðurhlíð-
um Meðalfells, verður nú lokað.
Hjónin Hermann Ingólfsson og Birna
Einarsdóttir á Hjalla hafa staðið vaktina í
23 ár. Nú hefur verið skellt í lás og er stað-
urinn til sölu. Árið 1998 fluttu þau hjónin
lítið hús upp í Kjós og skírðu það Kaffi
Kjós. Fljótlega var byrjað að selja kaffibolla
og súkkulaðistykki og hefur starfsemin
heldur betur eflst með árunum ...
Á www.mosfellingur.is eru birtar helstu fréttir úr blaðinu • Þrjár fréttir efstar á lista
12. september3. júní
3
2
1
2. apríl
Víða skapaðist hætta um áramótin vegna sinuelda enda þurrt í veðri og mikill vindur. Eldur komst nálægt húsum m.a. í Leirvogstungu,
Holtunum og í Höfðunum. Litlu munaði að eldur bærist í íbúðarhús við Rituhöfða og má þakka snarræði unglingspilta í grenndinni að
ekki fór verr. Allir lögðust á eitt og þótti mildi að ekki hafi orðið tjón.
eldur í sinu neðan
holtahverfis
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la
sinueldar víða í Mosfellsbæ