Mosfellingur - 07.04.2022, Page 10
Gabríel Kristinn ung-
kokkur Norðurlanda
Mosfellingurinn Gabríel Kristinn
Bjarnason sigraði keppnina um
ungkokk Norðurlandanna á dögun-
um. Keppnin fór fram í Herning í
Danmörku en um er að ræða besta
árangur Íslands á mótinu til þessa.
Íslensku keppendurnir voru í efstu
sætum í öllum sínum flokkum á
Norðurlandamóti matreiðslumanna
2022. Gabríel Kristinn er með
kokkablóðið í æðunum en faðir
hans, Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari, hefur löngum
verið viðlogandi kokkalandslið
Íslands og veitingageirann.
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Lovísa Jónsdóttir er nýr oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ • Bjóða fram í annað sinn
Frjálslyndi og jafnrétti
er leiðarstef okkar
Framboðslisti Viðreisn-
ar fyrir sveitarstjórn-
arkosningar sem fara
fram 14. maí var sam-
þykktur á fjölmennum
félagsfundi.
„Við bjóðum fram
öflugan og fjölbreyttan
lista fólks sem mun
vinna af krafti til þess
að bæta bæinn okkar.
Frjálslyndi og jafnrétti
er leiðarstef okkar
og með þessi gildi að
leiðarljósi viljum við
tryggja að Mosfellsbær verði framúrskar-
andi samfélag þar sem lífsgæði og jöfn
tækifæri íbúa eru í fyrirrúmi.
Listinn samanstendur af 11 konum, 10
körlum og 1 kvár. Meðalaldur er 43,9 ár, elsti
frambjóðandinn er 69 ára en yngsti 19 ára.
1. Lovísa Jónsdóttir
2. Valdimar Birgisson
3. Elín Anna Gísladóttir
4. Ölvir Karlsson
5. Olga Kristrún Ingólfsdóttir
6. Atlas Hendrik Ósk Dagbjarts
7. Ágústa Fanney Snorradóttir
8. Rúnar Már Jónatansson
9. Guðrún Þórarinsdóttir
10. Þórarinn Helgason
11. Gréta Jóhanna Ingólfsdóttir
Framboðslisti viðreisnar
12. Jón Örn Jónsson
13. Emilía Mlynska
14. Kjartan Jóhannes Hauksson
15. Hrafnhildur Jónsdóttir
16. Reynir Matthíasson
17. Ólöf Guðmundsdóttir
18. Magnús Sverrir Ingibergsson
19. Ásta Lilja Maack Sigurðardóttir
20. Sigurberg Guðbrandsson
21. Hildur Björg Bæringsdóttir
22. Bolli Valgarðsson
Hlökkum til að takast
á við mikilvæg verkefni
Lovísa Jónsdóttir, hugverkalög-
fræðingur og varabæjarfulltrúi er
nýr oddviti Viðreisnar en haldin var
skoðanakönnun um uppröðun á
meðal félagsmanna.
„Það er margt
sem þarf að huga
að en það er skýr
sýn okkar að
Mosfellsbær á að
vera leiðandi í
umhverfismálum
og þjónustu við
fatlað fólk, börn
og eldri borgara þannig að allir fái
notið sín í bænum. Skipulagsmál
hafa verið og eru stór áskorun í ört
vaxandi bæjarfélagi. Við leggjum
áherslu á ábyrga fjármálastjórn og
uppbyggingu kröftugs atvinnulífs.
Eins viljum við einfalda íbúum lífið
í bænum með því að bæta stafræna
þjónustu bæjarins og tryggja gagn-
sæja stjórnsýslu. Við hlökkum til að
takast á við þessi mikilvægu verkefni
og leggja okkar af mörkum til að gera
bæinn betri,“ segir Lovísa.
Fyrir fjórum árum buðum við í Viðreisn fram í Mosfellsbæ í
fyrsta skiptið og náðum því að vera næst stærsta framboðið.
Fólki hugnaðist sú framtíðarsýn sem við settum fram um breytt
vinnubrögð. Mörg af þeim loforðum sem við settum fram hafa
verið framkvæmd og við teljum að við höfum haft áhrif til góðs
á sundurlausa bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Fyrst og fremst sögð-
umst við opna stjórnkerfið og auka aðkomu íbúa að ákvörð-
unum. Það stendur óbreytt komumst við í meirihluta á næsta
kjörtímabili munum við efna það loforð. Það er kominn tími til
breytinga í Mosfellsbæ og við í Viðreisn erum tilbúin að leiða þær breytingar.
Það er kominn tími til breytinga í Mosfellsbæ
Aftari röð: Sigurberg, Ölvir, Hrafnhildur,
Reynir, Rúnar, Guðrún. Þórarinn. Fremri
röð: Atlas, Lovísa, Valdimar, Elín, Hildur.
OPIð hús á laugardögum
samfylkingin í mosfellsbæ verður með opið hús í Þverholti 3
alla laugardaga milli klukkan 11 og 13 fram að kosningum.
Frambjóðendur verða á staðnum til skrafs og ráðagerða.
Kaffi og með því á boðstólum.
Hvetjum alla til að nota tækifærið og koma sínum hjartans
málum á framfæri við frambjóðendur Samfylkingarinnar!
Anna Guðný hlaut
heiðursverðlaun
Mosfellingurinn Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari er
handhafi heiðursverðlauna Íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 2022.
„Ég hef verið umvafin tónlist frá því
ég man eftir mér og það hefur verið
mín gæfa. Ég trúi því að sá sem lifir í
tónlist þurfi aldrei að vera einmana,
verkefnalaus og vinalaus,“ sagði hún
meðal annars í ræðu sinni. Hún hef-
ur stigið til hliðar vegna veikinda en
þakkar þeim sem hafa átt samleið
með henni í gegnum árin.
Anna Guðný hefur víða komið fram
á sínum glæsta ferli og hefur verið
mikilvægur og sterkur hlekkur í
íslensku tónlistarlífi í fjóra áratugi.
20 ár eru síðan Anna Guðný var val-
in bæjarlistamaður Mosfellsbæjar. Á
myndinni má sjá Önnu Guðnýju og
forseta Íslands við afhendinguna.