Mosfellingur - 07.04.2022, Page 16

Mosfellingur - 07.04.2022, Page 16
 - www.mosfellingur.is16 Það er margt fram undan á Gljúfrasteini en hefðbundin dagskrá er að fara aftur í gang eftir takmarkanir vegna faraldursins. „Nú er allt að verða bjartara og sólin farin að skína. Þann 23. apríl verða 120 ár liðin frá fæðingu nóbel- skáldsins og á þeim degi ætlum við að opna litla sýn- ingu hér á Gljúfrasteini um Sölku Völku. Hún verður níræð á þessu ári, en Salka Valka er ein af fyrstu stóru bókum Halldórs Laxness,“ segir Guðný Dóra Gestsdótt- ir safnstjóri. Salka Valka 90 ára Salka Valka kom út í tvennu lagi 1931 og 1932. „Við ætlum að vekja athygli á Sölku með sýningunni og svo fleiri viðburðum út þetta ár. Bókin var líka að koma út í nýrri enskri þýðingu, sem eru ákveðin tímamót því sagan hefur mikið verið stúderuð af bókmennta- fræðingum og almenningi um allan heim. Sagan hefur bæði verið kvikmynduð og sett á svið í hinum ýmsu leikhúsum. Það eru margir sem eiga Sölku Völku sem sína uppáhalds bók og er það mál manna að það sé í raun ótrúlegt hvað Halldór gat sett sig vel inn í hugarheim ungra kvenna á þessum árum.“ Ganga á afmælisdegi skáldsins þann 23. apríl Á afmælisdegi Halldórs Laxness þann 23. apríl verð- ur almenningi boðið upp á gönguferð frá Mosfellskirkju að Gljúfrasteini undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar. „Þessi ganga er í samstarfi við stofnun Árna Magn- ússonar sem heldur utan um kennslu á íslensku fyrir útlendinga í Evrópu. Í fyrra höfðu nokkrir íslensku- kennarar við erlenda háskóla frumkvæðið að bók- mennta- og heilsuátakinu Laxness119, en þá voru nemendur hvattir til að stunda hreyfingu. Átakið stóð yfir frá 8. febrúar, sem var dánardagur Halldórs til af- mælisdags hans þann 23. apríl. Ákveðið var að endurtaka þetta í ár og fólk út um alla Evrópu hefur tekið þátt og deilt sinni þátttöku á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #laxness120. Átakinu líkur með göngunni frá Mosfellskirkju og verðum við með útsendingu héðan til þeirra sem hafa verið að taka þátt úti í heimi,“ segir Guðný Dóra en tekur fram að gangan er öllum opin og hvetur hún Mosfellinga sem og aðra til að mæta og njóta. guðný dóra safnstjóri á gljúfrasteini Hátíðarhöld 23. apríl • Bókmennta- og heilsuátakið Laxness120 Fagna afmæli Sölku Völku og 120 ára afmæli Laxness gljúfrasteinn í mosfellsdal

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.