Mosfellingur - 07.04.2022, Síða 16
- www.mosfellingur.is16
Það er margt fram undan á Gljúfrasteini en hefðbundin
dagskrá er að fara aftur í gang eftir takmarkanir vegna
faraldursins.
„Nú er allt að verða bjartara og sólin farin að skína.
Þann 23. apríl verða 120 ár liðin frá fæðingu nóbel-
skáldsins og á þeim degi ætlum við að opna litla sýn-
ingu hér á Gljúfrasteini um Sölku Völku. Hún verður
níræð á þessu ári, en Salka Valka er ein af fyrstu stóru
bókum Halldórs Laxness,“ segir Guðný Dóra Gestsdótt-
ir safnstjóri.
Salka Valka 90 ára
Salka Valka kom út í tvennu lagi 1931 og 1932. „Við
ætlum að vekja athygli á Sölku með sýningunni og svo
fleiri viðburðum út þetta ár. Bókin var líka að koma
út í nýrri enskri þýðingu, sem eru ákveðin tímamót
því sagan hefur mikið verið stúderuð af bókmennta-
fræðingum og almenningi um allan heim. Sagan hefur
bæði verið kvikmynduð og sett á svið í hinum ýmsu
leikhúsum.
Það eru margir sem eiga Sölku Völku sem sína
uppáhalds bók og er það mál manna að það sé í raun
ótrúlegt hvað Halldór gat sett sig vel inn í hugarheim
ungra kvenna á þessum árum.“
Ganga á afmælisdegi skáldsins þann 23. apríl
Á afmælisdegi Halldórs Laxness þann 23. apríl verð-
ur almenningi boðið upp á gönguferð frá Mosfellskirkju
að Gljúfrasteini undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar.
„Þessi ganga er í samstarfi við stofnun Árna Magn-
ússonar sem heldur utan um kennslu á íslensku fyrir
útlendinga í Evrópu. Í fyrra höfðu nokkrir íslensku-
kennarar við erlenda háskóla frumkvæðið að bók-
mennta- og heilsuátakinu Laxness119, en þá voru
nemendur hvattir til að stunda hreyfingu. Átakið stóð
yfir frá 8. febrúar, sem var dánardagur Halldórs til af-
mælisdags hans þann 23. apríl.
Ákveðið var að endurtaka þetta í ár og fólk út um
alla Evrópu hefur tekið þátt og deilt sinni þátttöku á
samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #laxness120.
Átakinu líkur með göngunni frá Mosfellskirkju og
verðum við með útsendingu héðan til þeirra sem
hafa verið að taka þátt úti í heimi,“ segir Guðný Dóra
en tekur fram að gangan er öllum opin og hvetur hún
Mosfellinga sem og aðra til að mæta og njóta.
guðný dóra safnstjóri
á gljúfrasteini
Hátíðarhöld 23. apríl • Bókmennta- og heilsuátakið Laxness120
Fagna afmæli Sölku Völku
og 120 ára afmæli Laxness
gljúfrasteinn
í mosfellsdal