Mosfellingur - 07.04.2022, Síða 20
- Kynning á Íþróttaskóla barnanna20
Íþróttaskóli barnanna hefur verið starf-
ræktur síðan 1992. Svava Ýr Baldvinsdótt-
ir hefur stjórnað skólanum frá upphafi og
er því að ljúka sínu 30 starfsári.
Íþróttaskólinn hefur verið mjög vinsæll
í gegnum árin og fjöldi barna, á aldrinum
3ja til 5 ára, hefur fengið sína fyrstu kynn-
ingu af íþróttum í Íþróttaskólanum.
Mikil almenn ánægja hefur verið með
þetta merka starf Svövu Ýrar allt frá upp-
hafi.
Mosfellingur tók Svövu Ýr tali, gefum
henni orðið.
„Í Íþróttaskólanum er lögð áhersla á fjöl-
breytta hreyfingu, þar sem áhersla er lögð
á að efla þroska barnanna með fjölbreyttu
og markvissu hreyfinámi. Tekið er mið af
þroska barnanna þar sem verið er að efla
hreyfiþroska, vitsmunaþroska og félags-
þroska, svo eitthvað sé nefnt. Markvist er
unnið að því að efla m.a. þor barnanna,
styrk, fín- og grófhreyfingar, fimi, jafnvægi
og taka tillit til náungans.“
Umfram allt að það sé gaman
„Markmiðunum er náð í gegnum leik.
Mjög mikilvægt er að börnin finni þörf fyrir
að hreyfa sig og hafi umfram allt gaman af.
Foreldrar taka virkan þátt í tímunum enda
er það eitt af lykilmarkmiðum skólans, að
börn og foreldrar leiki sér saman og eigi
fallega gæðastund í vinalegu umhverfi.
Kærkominn samverutími í annars hröðu
samfélagi nútímans.”
Fjölbreytt æfingaval
„Mjög mikilvægt er að börnunum líði vel
í íþróttasalnum og reynum við að hafa and-
ann léttan og skemmtilegan þar sem notast
er við fjölbreytt æfingaval. Rannsóknir hafa
sýnt fram á að góð grunnþjálfun, þar sem
áhersla er lögð á alhliða líkams- og hreyfi-
þroska og jákvætt umhverfi, hefur mjög
mikla og jákvæða þýðingu fyrir einstakl-
inginn þegar fram í sækir.
Íþróttaskólinn leggur metnað sinn í að
kynna flestar þær íþróttagreinar sem Aft-
urelding býður upp á. Þau kynnast bolta-
greinum, spaðagreinum, fimleikum, hreyf-
ingu með tónlist og margt margt fleira. Það
Svava Ýr hefur stjórnað skólanum í 30 ár • Fjölbreytt hreyfing fyrir 3-5 ára börn
Íþróttaskóli
barnanna
K y n n i n g
svava ýr baldvinsdóttir
á heimavelli að varmá