Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 40
- Aðsendar greinar40
Hvað er LOMM?
Listir og menningarlíf auðga
tilveru okkar allra, hvort sem um
er að ræða hreint glens og grín
eða viðfangsefni um hinstu rök
tilverunnar.
Í Mosfellsbæ eru mörg félög og
einstaklingar sem sinna menningu
og listum: fjöldi söngkóra, leikfé-
lag, myndlistarfólk, tónlistarfólk,
rithöfundar og fleiri.
Í vetur stofnaði listafólk og
áhugafólk um menningarlíf félag
hér í bæ sem heitir „Lista- og
menningarfélag Mosfellsbæjar“
– skammstafað LOMM. Dagsetning
fundarins hljómar skemmtilega:
22.2.2022 og einhver hafði á orði:
„Með slíka dagsetningu að vopni getur
þetta ekki klikkað!“
Á stofnfundinum spunnust meðal annars
samræður um þá umgjörð sem Mosfellsbær
skapar gagngert fyrir lista- og menningarlíf
innan sveitarfélagsins. Hér á eftir verður
fjallað stuttlega um þá hlið málsins.
Hlégarður
Félagsheimilið Hlégarður, sem var vígt
árið 1951, hefur lengi verið miðstöð menn-
ingar- og félagslífs í Mosfellssveit. Síðustu
árin hefur það verið ljóst að ráðast þyrfti í
umfangsmiklar viðgerðir og endurbætur á
húsinu svo það geti risið undir blómlegri
starfsemi. Húsinu var lokað á meðan fram-
kvæmdir stóðu yfir en núna er jarðhæðin
tilbúin til notkunar og um síðustu helgi
hélt GDRN, einn af bæjarlistamönnum
Mosfellsbæjar, tónleika í húsinu. Á næstu
árum verður ráðist í endurbætur á efri hæð
hússins.
Hlégarður á sér merkilega sögu og er vel
í sveit sett í jaðri höfuðborgarsvæðisins.
Eftir endurbæturnar aukast möguleikarnir
á nýtingu hússins að miklum mun,
það verður eitt ef verkefnum bæj-
arstjórnar á næsta kjörtímabili að
taka ákvörðun um hvernig notk-
un hússins og rekstrarformi þess
verður háttað.
Menningarhús í miðbænum
Þegar unnið var að skipulagi
fyrir miðbæ Mosfellsbæjar á sínum
tíma var ætlunin að byggja kirkju
og menningarhús á lóð sem er við
miðbæjartorgið. Efnt var til verð-
launasamkeppni um það verkefni
og niðurstöður kunngjörðar árið
2009. Samkvæmt þeim var meðal
annars gert ráð fyrir kirkju, sýn-
ingarsal og bóksafni á lóðinni.
Nú hafa mál þróast þannig að ljóst er
að ekki verður byggð kirkja á þessum
stað. Þess vegna opnast nýir möguleikar á
nýtingu lóðarinnar sem er skilgreind fyrir
menningarstarfsemi.
Stefna V-listans
Mosfellsbær hefur alla burði til þess að
styrkja stöðu sína í lista- og menningarlífi
höfuðborgarsvæðisins. Við teljum að það
sé verkefni bæjaryfirvalda að móta metn-
aðarfulla umgjörð utan um hinar ýmsu list-
greinar og menningarstarfsemi í bænum.
Í stefnuskrá V-listans fyrir komandi
kosningar er lagt til að ráðist verði í heild-
arskoðun á nýtingu á þeim mannvirkjum
sem ætluð eru fyrir lista- og menningarlíf
hér í sveitarfélaginu. Einnig viljum við að
teknar verði upplýstar ákvarðanir um hvaða
byggingar muni rísa á lóðinni í miðbænum
sem nefnd var hér að ofan.
Bjarki Bjarnason skipar 1. sæti
V-listans í kosningunum 14. maí
Bryndís Brynjarsdóttir skipar 4. sæti listans
Listir og menning
Fjöldi fólks nýtur návist dýra og
þess að eiga dýr. Fjölmargir um-
gangast dýr í tengslum við störf
sín, eru bændur, ræktendur dýra
eða starfa með dýrum, sbr. lög-
regla með sporhunda eða blindir
í leik og starfi með leiðsöguhunda.
Einnig eru margir með gæludýr
sér til ánægju og yndisauka, fjöl-
skyldumeðlim sem skiptir þá miklu.
Við sem dýrkum dýrin viljum tryggja vel-
ferð þeirra. Við viljum að þau lifi og dafni
við hin bestu skilyrði. Um velferð dýra gilda
ákvæði laga nr. 55/2013. Markmið laganna
eru m.a. að dýr, sem og skyni gæddar verur,
séu laus við: Vanlíðan; Hungur og þorsta,
ótta og þjáningu, sársauka, meiðsl og sjúk-
dóma.
Í Mosfellsbæ er einnig fjöldi einstaklinga
sem stundar hestamennsku og eiga gælu-
dýr. Í Mosfellsbæ er m.a. heimilt að halda
allt að 6 hænur en hanar eru óheimilir. Slíkt
leyfi er veitt til 5 ára í senn. Líkur eru á að
hávaðinn í hönum valdi þessu.
Aðeins eitt hundagerði, um 1500 fer-
metrar, er í Ullarnesbrekkum í annars
ágætu umhverfi Ævintýragarðsins hér í
bænum. Ég vil sjá að fjölgað verði hunda-
gerðum í Mosfellsbæ. Það mætti t.d. koma
upp hundagerði við fallegt umhverfið á
Leirvogstungumelum, á Blikastöðum og
á gönguleiðum við Helgafellshverfi svo
einhver dæmi séu nefnd. Mikilvægt er að
hundar, sem annars eru mikið í bandi, fái
hreyfingu og að eigendur geti leitað á svæði
þar sem dýrin eru örugg. Það er hluti að
dýravelferð.
Einnig þurfum við að gæta að því að
ónæði verði ekki af dýrahaldi með því að
tryggja að hundar gangi ekki lausir í þéttbýli
eða séu eftirlitslausir. Í dag verða bæjarbúar
í Mosfellsbæ að leita til Heilbrigðiseftirlits
Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópa-
vogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnar-
ness sem staðsett er í Hlíðarsmára
14 í Kópavogi til skráningar. Það
kom til eftir að ákveðið var að
leggja niður Heilbrigðiseftirlit
Kjósasvæðis sem Mosfellsbær var
aðili að og var áður staðsett hér í
bænum. Sé ætlunin að skrá hunda
hér í Mosfellsbæ skal því nú leitað til þessa
eftirlits í Kópavogi.
Sérstakt fagráð, sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra staðfestir skipun
á, er Matvælastofnun til ráðuneytis um
stefnumótun og einstök álitaefni er varða
málefni á sviði velferðar dýra. Í þessu
fagráði sitja fimm menn og skal það skipað
fagfólki á sviði m.a. dýralækninga, búfræði
og siðfræði.
Ég er sjálf hundaeigandi og mér þykir
afskaplega vænt um dýr enda valdi ég mér
starfsvettvang við umönnun dýra. Með
því að umgangast dýr geta margir aukið
lífsgæði sín til muna, aukið hreyfingu og
heilsueflingu. Því er mér mikið í mun að
í Mosfellsbæ verði komið upp „Degi dýr-
anna“ þar sem skapaður yrði vettvangur
fyrir dýraeigendur og almenning til að
kynnast betur hvor öðrum og heim dýr-
anna. Þar gætu fyrirtæki á sviði dýravel-
ferðar, dýralæknar og aðrir, kynnt störf sín
og þjónustu og jafnvel væri hægt að bjóða
uppá fræðslu um umönnun og umgengni
dýra. Einnig gætu bændur, sem starfa í
bænum, kynnt starfsemi sína.
Með slíkum viðburði mætti einnig koma
á framfæri upplýsingum til eigenda svo
auka megi velferð dýra.
Helga Diljá Jóhannsdóttir, dýralæknir
Skipar 4. sæti á lista Miðflokksins fyrir næstkom-
andi sveitarstjórnarkosningar – Fyrir lifandi bæ
Dýravelferð