Mosfellingur - 28.04.2022, Page 24
- Fréttir úr bæjarlífinu24
Sýningin Wörður, vinur mínar var opnuð
í Listasal Mosfellsbæjar 22. apríl sl. Á sýn-
ingunni eru ofnar myndir eftir textíllista-
konuna Önnu Maríu Lind Geirsdóttur.
Viðfangsefni verkanna eru vörður, ekki
síst vörður á Mosfellsheiði. Myndirnar
vefur Anna María úr ýmsum tuskum,
ónýtum klæðnaði og sængurfötum í anda
endurnýtingar og náttúruverndar.
Opnun var haldin bæði á föstudeginum
og laugardeginum þar á eftir og var
fjölmennt báða dagana. Frændi lista-
konunnar, Magnús Már Björnsson, söng
frumsamið lag við ljóð Önnu Maríu um
vörður. Sýningin er opin á afgreiðslutíma
bókasafnsins og síðasti sýningardagur er
20. maí.
Listasalur Mosfellsbæjar
Vinalegar
vörður
• Vinnuskóli Mosfellsbæjar er fyrir ungt fólk fætt á árunum 2006-
2008. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Mosfellsbæjar
fyrir sumarið 2022. Sótt er um á vinnuskoli-umsokn.vala.is.
• Umsóknarfrestur er til 29. apríl og verður öllum umsóknum
sem berast fyrir þann tíma svarað fyrir 6. maí.
• Reynt verður að verða við óskum allra en gera má ráð fyrir að
ekki verði hægt að uppfylla allar óskir um tímabil og vinnustöð.
• Allar nánari upplýsingar á www.bolid.is/vinnuskoli
8. bekkur
9. bekkur
10. bekkur
Vinnuskóli
Mosfellsbæjar
umsóknarfrestur til 29. apríl