Mosfellingur - 23.06.2022, Page 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
sunnudagur 26. júní
Kyrrðar- og bænastund kl. 11 í Mosfells-
kirkju. Sr. Bryndís Svavarsdóttir þjónar.
sunnudagur 3. júlí
Kyrrðar- og bænastund kl. 11 í
Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn þjónar.
sunnudagur 10. júlí
Kyrrðar- og bænastund kl. 11 í
Lágafellskirkju. Sr. Bryndís
Svavarsdóttir þjónar.
sunnudagurinn 17. júlí
Kyrrðar- og bænastund kl. 11
í Lágafellskirkju. Sr. Bryndís
Svavarsdóttir þjónar.
sunnudagur 24. júlí
Kyrrðar- og bænastund kl. 11 í
Lágafellskirkju. Sr. Sigurður Már
Hannesson þjónar.
Ágústkvöld í lágafellssókn -
þematengdar kvöldguðsþjónustur
Í ágústmánuði verða notalegar
kvöldguðsþjónustur kl. 20. Fylgist með
á heimasíðu þegar nær dregur!
sumarnámskeið lágafellssóknar
Ævintýraleg námskeið fyrir 6-9 ára
krakka í júní og ágúst. Lofum stuði og
ævintýrum í sumar!
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu.
Ærslabelgur á ný í
Ævintýragarðinum
Nýr ærslabelgur er kominn upp í
Ævintýragarðinum. Hann er stað-
settur í Ullarnesbrekkum, á milli
Varmár og Leirvogstungu. Næg bíla-
stæði eru við íþróttamiðstöðina að
Varmá en innkoma er að garðinum
sunnanverðum frá íþróttasvæðinu.
Ærslabelgurinn er opinn kl. 10-22
alla daga í sumar og er góð viðbót
við þau leiktæki sem þar eru þegar
til staðar. Einnig er þar stórt tún
sem er tilvalið til boltaleikja og
bekkir og áningarsvæði til að fá sér
nestisbita. Ærslabelg var komið fyrir
á sama stað fyrir tveimur árum en
hann var eyðilagður og hefur nú nýr
belgur litið dagsins ljós.
Stofutónleikar
haldnir í allt sumar
Stofutónleikaröð Gljúfrasteins er
hafin og var það Mugison sem reið
á vaðið í byrjun júní. Fram undan
er glæsileg dagskrá en tónleikarnir
fara fram á sunnudögum kl. 16.
Á sunnudaginn 26. júní eru það
Magnea Tómasdóttir, Kjartan
Guðnason og Kjartan Valdemars-
son sem flytja flytja „Sönglög
með nýjum blæ“. 3. júlí leik- og
söngkonan Katrín Halldóra. 10. júlí
Dísella Lárusdóttir, sópran. 17. júlí
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
og Valgeir Daði Einarsson. 24.
júlí Sólborg Valdimarsdóttir og
Júlía Traustadóttir. 31. júlí Sigrún
Jónsdóttir. 7. ágúst félagar úr
Leikfélagi Mosfellssveitar flytja
lög úr sýningunni „Ó, María“ sem
leikfélagið setti upp í vor. 14. ágúst
Herdís Anna Jónasdóttir, sópran og
Bjarni Frímann Bjarnason, píanó.
21. ágúst Andrés Þór, gítar og Agnar
Már, píanó. 28. ágúst, Í túninu
heima, Davíð Þór Jónsson lokar
sumardagskrá Gljúfrasteins 2022,
við flygilinn að sjálfsögðu.
www.lagafellskirkja.is
Nýr meirihluti Framsóknar, Samfylkingar
og Viðreisnar hefur tekið til starfa og fór
fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar fram 1.
júní.
Þessa dagana er verið að auglýsa eftir
bæjarstjóra en leitað er að metnaðarfull-
um og drífandi einstaklingi með farsæla
reynslu af stjórnun og rekstri.
Á fyrsta fundi var Anna Sigríður Guðna-
dóttir kjörin forseti bæjarstjórnar til eins
árs. Kosið var í nefndir og ráð á vegum
bæjarins og skipast aðalmenn þannig:
Bæjarráð
Halla Karen Kristjánsdóttir (B) formaður,
Lovísa Jónsdóttir (C), Anna Sigríður
Guðnadóttir (S), Ásgeir Sveinsson (D),
Jana Katrín Knútsdóttir (D).
Fjölskyldunefnd
Ólafur Ingi Óskarsson (S) formaður,
Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir (B), Halla
Karen Kristjánsdóttir (B), Jana Katrín
Knútsdóttir (D), Hilmar Stefánsson (D).
Fræðslunefnd
Aldís Stefánsdóttir (B) formaður, Sævar
Birgisson (B), Elín Árnadóttir (S), Elín
María Jónsdóttir (D), Hjörtur Örn
Arnarson (D).
Íþrótta- og tómstundanefnd
Erla Edvardsdóttir (B) formaður, Leifur
Ingi Eysteinsson (B), Atlas Hendrik Ósk
Dagbjarts (C), Rúnar Bragi Guðlaugsson
(D), Arna Björk Hagalínsdóttir (D).
lýðræðis- og mannréttindanefnd
Sævar Birgisson (B) formaður, Aldís
Stefánsdóttir (B), Rúnar Már Jónatansson
(C), Brynja Hlíf Hjaltadóttir (D), Gunnar
Pétur Haraldsson (D).
Menningar- og nýsköpunarnefnd
Hrafnhildur Gísladóttir (B) formaður,
Hilmar Tómas Guðmundsson (B), Jakob
Smári Magnússon (S), Helga Möller (D),
Franklin Ernir Kristjánsson (D).
skipulagsnefnd
Valdimar Birgisson (C) formaður, Aldís
Stefánsdóttir (B), Ómar Ingþórsson (S),
Ásgeir Sveinsson (D), Helga Jóhannes-
dóttir (D).
umhverfisnefnd
Örvar Jóhannsson (B) formaður, Þorbjörg
Sólbjartsdóttir (B), Jón Örn Jónsson (C),
Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson (D),
Þóra Björg Ingimundardóttir (D).
Ný bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur tekið til starfa • Miklar breytingar í nefndum
skipað í nefndir og ráð
Þrír Mosfellingar voru heiðraðir af forseta Íslands á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní. Þá fengu 14 Íslendingar heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari hlaut riddarakross fyrir
framlag til tónlistarflutnings.
Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur fékk riddarakross
fyrir störf á vettvangi vísinda og þekkingarmiðlunar.
Örlygur Richter fyrrverandi skólastjóri var sæmdur riddarakrossi
fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála. Á myndinni til vinstri má
sjá Örlyg Richter og Lilju Dögg Alfreðsdóttur ráðherra eftir afhend-
inguna en Lilja er gamall nemandi Örlygs.
Anna Guðný, Ari Trausti og Örlygur heiðruð
Þrír Mosfellingar
hlutu fálkaorðu
Ari Trausti
Guðmundsson
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
örlygur og lilja
Palla Open góðgerðargolfmótið fór fram á
Hlíðavelli laugardaginn 11. júní í blíðskap-
arveðri og heppnaðist að mati skipuleggj-
enda ákaflega vel.
„Við erum bara í skýjunum með viðtök-
urnar og daginn. Þetta heppnaðist allt eins
og í sögu, þetta voru um 200 kylfingar sem
tóku þátt og það söfnuðust í heildina um
2,5 milljónir til styrktar Reykjadal,“ segir
Palli Líndal, einn skipuleggjenda mótsins.
Þátttakan langt fram úr væntingum
Fjöldi veglegra vinninga voru veittir
að lokinni keppni við hátíðlega athöfn í
golfskálanum en þátttakendur voru ýmist
áhugamenn að stíga sín fyrstu skref í sport-
inu eða lengra komnir. „Við erum þakklát
þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem tóku vel í
fyrirspurnina og styrktu mótið með þessum
glæsilegu vinningum. Eins langar mig að
þakka sérstaklega stjórn og starfsmönnum
golfklúbbsins fyrir þeirra framlag við und-
irbúning og framkvæmd mótsins.
Að lokum get ég auðvitað ekki annað en
verið glaður og þakklátur GM, bæði félags-
mönnum og þátttakendum, fyrir daginn.
Þátttakan í ár var talsvert meiri en í fyrra
og fór langt fram úr væntingum.“
Mótið komið til að vera
Ágóða mótsins hefur þegar verið varið til
kaupa á hjólastólum til styrktar Reykjadal
en stólarnir eru sérstaklega hannaðir til
útivistar. „Við hlökkum mikið til að taka á
móti sendingunni og gerum ráð fyrir að
afhenda Reykjadal stólana um miðjan júlí,“
segir Palli og bætir við að miðað við viðtök-
ur sé Palla Open komið til að vera.
Góðgerðarmót fyrir Reykjadal • Söfnuðu 2,5 milljónum
Vel heppnað Palla Open
hrefna rós frá reykjadal
og páll líndal mótshaldari