Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 33
verslum í heimabyggð Aðsendar greinar - 33 Nýr meirihluti Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar hefur nú tekið til starfa í bæj- arstjórn Mosfellsbæjar og hlökkum við ný- kjörnir bæjarfulltrúar til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða okkar. Í anda gagnsæis og lýðræðislegra vinnu- bragða munum við taka upp þá nýbreytni að upplýsa hér í Mosfellingi með reglubundn- um hætti um helstu verkefni sem við erum að takast á við á hverjum tíma. Verkefnin eru mýmörg og þess vegna munum við stikla á stóru og fyrst og fremst upplýsa bæjarbúa um nýjar ákvarðanir eða framgang verkefna úr málefnasamningi okkar. Bæjarstjóri Í samræmi við ákvörðun meirihlutans þá hefur staða bæjarstjóra verið auglýst laus til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28. júní. Kvíslarskóli Framkvæmdir við skólann ganga sam- kvæmt áætlun og er unnið hörðum höndum að því að ljúka heildarúttekt á húsnæðinu. Reglulega verða veittar upplýsingar um framganginn á mos.is og í tölvupósti til for- ráðamanna. Samhliða framkvæmdunum er unnið að viðbragðsáætlun ef ekki tekst að ljúka viðgerðum áður en kennsla hefst aftur í haust. Þjónustubygging að Varmá Í málefnasamningi Framsóknar, Samfylk- ingar og Viðreisnar var ákveðið að taka til endurskoðunar áætlanir um þjónustubygg- ingu við Varmá. Í ljósi þess að ekki bárust nein tilboð í byggingu hússins hefur verið tekin ákvörð- un um það í samráði við Aftureldingu að fara strax í þessa endurskoðun. Lenging opnunartíma sundlauga Í samkomulagi meirihlutans er kveðið á um að sundlaugar bæjarins verði opnar leng- ur. Fyrsta skrefið í þeirri þjónustuaukningu verður tekið í sumar þegar tíminn verður lengdur um hálfa klukkustund á virkum dögum. Fasteignagjöld Ástandið á fasteignamarkaði hefur valdið mjög mikilli hækkun fasteignamats. Í meiri- hlutasamkomulagi B, S og C lista er kveðið á um að álagningarprósentur fasteignagjalda verði lækkaðar til að koma til móts við hækk- un fasteignamats. Nánari útfærsla mun koma fram í fyrstu fjárhagsáætlun nýs meirihluta. „Við erum byrjuð að vinna samkvæmt mál- efnasamningnum og erum að koma málefn- um í farveg og nánari útfærslu,“ segir Halla Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs. „Við viljum bæta upplýsingaflæðið frá bæj- arstjórn til íbúa eins og við segjum í samn- ingnum. Okkur finnst mjög mikilvægt að eiga gott samráð og samvinnu við bæjarbúa og viljum tryggja það að raddir sem flestra heyrist þannig að þjónustan sé framúrskar- andi.“  Framsókn,SamfylkingogViðreisn MálefnasamningurFramsóknar,SamfylkingarogViðreisnarundirritaðurádögunum.Aftariröð:Örvar Jóhannsson(B),AldísStefánsdóttir(B)ogSævarBirgisson(B).Fremriröð:LovísaJónsdóttir(C),Halla KarenKristjánsdóttir(B)ogAnnaSigríðurGuðnadóttir(S). meirihlutamolar Helstu fréttir af framgangi málefnasamnings Aukaljós á bíla og báta. Toppgrindur, fjöðrun, dráttarspil, ferðavörur o.fl. Völuteig 21, Mosfellsbæ s. 517-2900 www.drif.is - drif@drif.is Vespu-, bifhjóla- og bílpróf Annast akstursmat og sé um hæfnispróf fyrir þá sem hafa gleymt að endurnýja. GLERTÆKNI ehf Völuteigi 21 - gler í alla glugga - s . 5 6 6 - 8 8 8 8 • w w w. g l e r ta e k n i . i s Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200 www.artpro.is Varðandi skipulagið í heild viljum við gera eftirfarandi athugasemdir: Á lóðunum 1 til 5 á samkvæmt skipulags- drögum að rísa 225 metra langt fjölbýlishús á 4 til 5 hæðum með fjórum útbyggingum. þetta finnst okkur afar óaðlaðandi „múr“ og úr öllu samhengi við núverandi umhverfi og alls ekki það sem við áttum von á að sjá þegar við festum okkur íbúðir hér. Byggingarmagn á lóðum 1 til 3 hefur verið aukið um nær 40% frá gildandi skipulagi og íbúðum fjölgað úr 44 í 150 og teljum við þetta óhóflegt og alls ekki standast reglur um meðal- hóf. Okkur virðist að fjárhagslegir hagsmunir lóðarhafa leigulóða í eigu bæjarfélagsins séu verulega veigameiri en hagsmunir okkar íbúanna hér í götunni, það finnst okkur vera öfugmæli. Við erum öll ánægðir íbúar hér í götunni sem og í bæjarfélaginu en verði þetta skipulag samþykkt mun það breytast. Við förum því fram á að þessi skipulagstillaga verði dregin til baka og endurunnin í samráði við íbúa nærliggjandi húsa en ekki bara lóðar- hafa. Við teljum að meðalhófs hafi ekki verið gætt við gerð þessarar skipulagstillögu. MagnúsJónsson Bjarkarholti20

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.