Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 18

Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 18
 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ18 SumarLestur 10. júní — 26. ágúst 2022 Jóga í Bókasafni Mosfellsbæjar 20. júlí kl. 16:30 í boði Indverska sendiráðsins á Íslandi Júlímánuður hefst á nýrri sýningu í Listasal Mosfellsbæjar. Sýningin kallast Person, Place, Thing og er eftir Carissu Baktay. Carissa er kanadískur listamaður sem býr á Íslandi og rekur glerverkstæði á Kjalarnesi. Verkin á sýningunni eru unnin í ýmsa miðla og aðalefniviðurinn er hrosshár. Sýningaropnun er föstu- daginn 1. júlí kl. 16-18 og síðasti sýningardagur er 29. júlí. Opið er kl. 9-18 alla virka daga. Næstur til að sýna í listasalnum eftir Carissu er Listapúkinn Þórir Gunn- arsson. Sú sýning hefst 5. ágúst. Listasalur Mosfellsbæjar Hrosshár í sviðsljósinu Carissa Baktey Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ eru hvött til að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum. Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, verður haldin dagana 26.-28. ágúst. Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá. Ef þið lumið á hugmyndum eða viljið vera með við- burði, þá endilega sendið póst á ituninuheima@mos.is.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.