Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 10
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Hundrað stuðningsmenn Aftur-
eldingar skelltu sér um helgina
á tónleika með mosfellsku
hljómsveitinni KALEO í Dublin á
Írlandi.
KALEO er aðalstyrktaraðili
meistaraflokka Aftureldingar
en merki hljómsveitarinnar
er framan á treyjum liðsins.
Hljómsveitarmeðlimir voru að
sjálfsögðu í Aftureldingartreyjun-
um þegar þeir spiluðu í Dublin og
stuðningsmennirnir voru einnig í
treyjum á áhorfendasvæðinu.
Líklega hafa aldrei verið eins
margir í Aftureldingartreyjum
á sama stað á erlendri grundu.
Í lokalagi kvöldsins fóru síðan
nokkrir vaskir stuðningsmenn
upp á svið og tóku lagið með
KALEO.
Óhætt er að segja að samstarf
Aftureldingar og KALEO sé
einstakt enda hefur það vakið
gríðarlega athygli út um allan
heim.
Hljómsveitin KALEO er aðalstyrktaraðili Aftureldingar • Mosfellingar í hópferð til Írlands • Öll í merktum treyjum
100 stuðningsmenn á KALEO tónleikum
Umsóknarfrestur er til og með 04. Júlí 2022.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu,
menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar
um starfið er að finna á ráðningarvef Mosfellsbæjar en auk þess veitir Jóhanna B. Hansen
framkvæmdastjóri umhverfissviðs upplýsingar í síma 525 6700. Um framtíðarráðningu
er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
svanni, maggi og önnurnarsiggi og péturgeiri, biggi og kelikristín ýr, jónas og halli
mosfellingar mættir í höllina