Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 8
Malbikstöðin kaupir Fljótavík ehf. Malbikstöðin hefur keypt allan flota fyrirtækisins Fljótavíkur ehf. en fyrrnefnda fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu og lagningu á umhverf- isvænu malbiki. Ásamt kaupunum á vörubílaflotanum flyst starfsfólk Fljótavíkur einnig yfir til Malbik- stöðvarinnar. Þar með eflist starf- semi fyrirtækisins og styrkist staða þess enn frekar í samkeppni við Reykjavíkurborg og erlent stórfyrirtæki sem hefur látið til sín taka á íslenska malbiksmark- aðnum. „Fljótavík er öflugt fyrirtæki sem hefur starfað í 24 ár og mannauð- urinn samanstendur af fólki sem kann sitt fag og býr yfir mikilli reynslu. Ég er verulega ánægður með þetta skref sem við höfum tekið en með því verðum við sterkara fyrirtæki og þar af leiðandi enn samkeppnishæfari á hörðum markaði,“ segir Vilhjálmur Þór Matthíasson, framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar. Malbikstöðin er með höfuðstöðvar í Flugumýri í Mosfellsbæ en öll framleiðsla fer fram í malbikstöð fyrirtækisins að Esjumelum í Reykjavík. Jónas Sigurðsson formaður s. 666 1040 jonass@islandia.is Jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður s. 899 0378 hanna@smart.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.com Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari s. 898 3947 krist2910@gmail.com Þorsteinn Birgisson meðstjórnandi s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com Guðrún K. Hafsteinsdóttir 1. varamaður s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is Áshildur Þorsteinsdóttir 2. varamaður s. 896 7518 asath52@gmail.com StJÓrn FaMoS Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is - Fréttir úr bæjarlífinu8 SUMaroPnUn í FélaGSStarFinU Hlaðhömrum 2. Allan júní er opið 13:00-16:00 nema lokað 16. júní og 30. júní. Í júlí er lokað 1. og 8. júlí. Opnunartími í júlí og ágúst gæti breyst frá 11:00-16:00 í 13:00-16:00 einhverja daga, það verður auglýst nánar:) Kveðja, starfsmenn félagsstarfsins KynninGarFUndUr í SePteMBer Kynningarfundur um þjónustu við eldri borgara í Mosfellsbæ er áætlaður í byrjun september. Staður og stund verða auglýst síðar en stefnt er að allir þeir helstu aðilar sem koma að málefnum eldri borgara í Mosfellsbæ kynni sína þjónustu/starfsemi á opnum fundi. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar og bæjar- blaðið Mosfellingur leita nú að hæsta trénu í Mosfellsbæ. Síðastliðin 20 ár hefur verið mikill trjá- vöxtur á landinu og er staðfest að innan innan þessa sveitarfélags er að finna tré sem komin eru yfir 20 metra. „Við viljum endilega sjá hvort við eigum ekki tré sem er farið að nálgast 25 metra eða jafnvel 30 metra sem samsvarar hæsta mælda tré á Íslandi en það er sitkagrenitré sem gróðursett var á Kirkjubæjarklaustri árið 1949,“ segir Björn Traustason formaður Skógræktarfélags Mosfellsbæjar. Gætum við jafnvel átt hæsta tré á Íslandi hér í Mosfellsbæ? Bæjarbúar taki þátt við leitina Til að finna hæsta tréð eru bæjarbúar beðnir um að senda Skógræktarfélaginu tilnefningar í sumar. Takið myndir af trjám sem þið teljið líklega kandídata og er mik- ilvægt að einhver standi við tréð þannig að hægt sé að meta út frá ljósmyndinni hversu hátt það er. Það getur auðvitað verið erfitt að taka mynd í þéttum skógarlundi en þið gerið ykkar besta. Mikilvægt er að tilgreina staðsetningu á trénu og gaman væri að fá upplýsingar um trjátegund, hvenær það var gróðursett, af hverjum og af hvaða tilefni. Hæstu 10 trén verða metin og í kjölfarið mæld með nákvæmum hætti af skógmæl- ingafólki frá Skógræktinni. Sett verður upp merki við hæsta tréð og sagt frá verðlauna- trénu í Mosfellingi. Myndir og upplýsingar um tré er hægt að senda á netfangið skogmos@skogmos.is til 10. ágúst. tilnefningar Mosfellingar hvattir til að benda á hæstu tré í Mosfellsbæ • Verðlaunatréð kynnt leitin að hæsta tré bæjarins Í mosfellsbæ má finna yfir 20 metra há tré

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.