Mosfellingur - 23.06.2022, Page 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Sveinbjörn Benedikt Eggertsson kom af
stað söfnun árið 2019 til styrktar Reykjadal,
sumarbúðum í Mosfellsdal fyrir fötluð börn
og ungmenni.
Sveinbjörn tók á móti frjálsum framlög-
um fyrir utan verslanir í Mosfellsbæ, ásamt
því að fá styrktarfélög með sér í lið. Í heild-
ina söfnuðust 536.179 krónur. Peningur-
inn var m.a. nýttur til kaupa á hátölurum,
spjaldtölvu, símum o.fl.
Raftækin og það sem eftir var af pening-
unum var svo fært Reykjadal 1. júní sl. sem
mun nýtast vel til kaupa á fleiru sem kann
að vanta.
Á myndinni eru Sveinbjörn Benedikt
Eggertsson í miðjunni og starfsmenn
Reykjadals; Óðinn Páll Arnarsson til vinstri
og Ísar Nói Össurarson til hægri.
Setti af stað söfnun árið 2019 • Ýmis raftæki keypt
Sveinbjörn safnar
fyrir Reykjadal
Á dögunum hittust forsvarsmenn Fasteflis og BL á Barion
Mosó og undirrituðu samstarfssamning um kaup og þróun
á rúmlega 38 hektara landsvæði við Tungumela í Mosfells-
bæ. Svæðið er ætlað fyrir fjölbreytta athafnastarfsemi.
Aðspurður sagði Mosfellingurinn Óli Valur Steindórsson
framkvæmdastjóri Fasteflis um verkefnið: „Á mýmörgum
fundum sjálfboðaliða Aftureldingar var og er mikð rætt um
þörfina að fjölga styrktaraðilum en góður fjöldi vel rekinna
fyrirtækja er grundvöllur þess.
Það hafa verið viss vonbrigði með fyrsta hluta uppbygg-
ingar Tungumela hversu fá fyrirtæki hafa lagt leið sína
þangað en mikill hluti svæðisins hefur verið nýttur undir
byggingu á geymslum. Það er því kærkomið tækifæri sem
okkur hefur nú fallið í skaut, að leiða og þróa uppbyggingu
á þessu svæði og taka þátt í að auðga flóru fyrirtækja í bæj-
arfélaginu en það er vonandi að við fáum góðan stuðning
og samstarf frá bæjaryfirvöldum við það,“ segir Óli Valur.
Spennandi framtíðarstaðsetning fyrir BL
Íris Ansnes framkvæmdastjóri hjá BL bætti jafnframt við
að Tungumelar væri spennandi svæði til framtíðar fyrir BL
en félagið væri að skoða mögulega framtíðarstaðsetningu
fyrir starfsstöðvar félagsins. „Að því sögðu býður verkefnið
sem slíkt upp á gríðarmikla möguleika fyrir fyrirtæki sem
eru að huga að og þurfa að færa sína starfsemi úr Reykjavík
í náinni framtíð og eru Tungumelar góður kostur ef vel er á
málum haldið,“ segir Íris Ansnes.
Áhugavert verður að fylgjast með þessu verkefni.
Samstarfssamningur um kaup og þróun á rúmlega 38 hektara landi • Ætla að auðga flóru fyrirtækja í bæjarfélaginu
Fastefli og BL sameinast um kaup
á athafnasvæði við Tungumela
Íris Ansnes framkvæmdastjóri hjá BL og Óli Valur Steindórsson framkvæmdastjóri Fasteflis undirrita. Fyrir aftan: Jón Þór Gunnarsson og Erna Gísladóttir eigendur BL og Ellert Jón Björnsson fjármálastjóri Fasteflis.
Fastefli er móðurfélag Upprisu og Hlöllabáta (Barion).
BL er rótgróið bílaumboð sem varð til við sameiningu
Ingvars Helgasonar og B&L árið 2011.
StarfSfólk í
búSetueiningu
Vesturhlíð, skálatúni
Sambýlið Vesturhlíð leitar eftir öflugu og framsæknu starfsfólki
til liðs við okkur í sumar, möguleiki á áframhaldandi starfi. Um
er að ræða fjölbreytt störf þar sem þjónustan er einstaklings-
miðuð og þjónustuáætlunum íbúa er fylgt eftir í daglegu lífi, jafnt
utan heimils sem innan.
Starfsfólk er fyrirmynd í starfi sínu og tekur þátt í daglegu lífi
íbúa. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk
með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Starfsfólk vinnur á fjölbreyttum vöktum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
• Þjónustulund og jákvæðni í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Framtakssemi og samviskusemi
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
• Hreint sakavottorð
• Aldursskilyrði 20 ár
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun
og fyrri störfum ásamt nokkrum orðum af hverju þú telur þig hæfa/n í starfið
og umsóknir eru sendar á netfangið vesturhlid@skalatun.is Nánari upplýs-
ingar um störfin veitir Ragnheiður Hansen, deildarstjóri, í síma: 530-6643
- 8936529. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Skálatúns og viðkomandi
stéttarfélags - Sameyki/Efling. Ráðið er í öll störf óháð kyni.