Mosfellingur - 23.06.2022, Side 26

Mosfellingur - 23.06.2022, Side 26
Opinn kynningarfundur vegna nýs skipulags á Blikastöðum Íbúafundur vegna skipulags verslunar-, þjónustu- og athafnasvæðis á Blikastaðalandi í Mosfellsbæ verður haldinn mánudaginn 27. júní nk. kl. 17:00-18:30 í sal framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fmos, Háholti 35. Á fundinum kynna hönnuðir og ráðgjafar skipulagsins hugmyndir og áform um uppbyggingu. Í framhaldi verða umræður og spurningar. Fundurinn er öllum opinn. Skipulagið er í kynningu og má nálgast gögn á vef sveitarfélagsins: www.mos.is/skipulagsauglysingar Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is - Fréttir úr bæjarlífinu26 Vel heppnuð tónleikaröð Skátafélagið Mosverjar stóð fyrir skemmti- legri tónleikaröð á dögunum þar sem safn- að var fyrir eldhúsi í skátaheimilið. Haldnir voru fernir tónleikar á fimmtu- dagskvöldum og komu fram hinir ýmsu listamenn sem gáfu vinnu sína. Sölvi Kol- beins og Birgir Steinn djössuðu, Bræðra- bandið spilaði, Svavar Knútur mætti með gítarinn og hljómsveitin Piparkorn lokaði dagskránni 2. júní. Haustið 2016 festi skátafélagið kaup á Álafossvegi 18. Með aðstoð góðra velunn- ara og sjálfboðaliða var húsið standsett undir starfið og salur innréttaður í austur- enda hússins. Hægt og rólega hefur einnig lóðinni verið breytt þannig að hún nýtist starfinu betur og eitt og annað verið lagað og fært í betra horf. Það hefur lengið verið auðséð að eldhúsið í húsinu hentar alls ekki fyrir starfið og að það þurfi að ráðast í breytingar á því. Því var ákveðið að prufa nýja fjáröflunarleið; Fjáröflunartónleika. Vorkvöld í Álafosskvos • Fjáröflunarkvöld Mosverja piparkorn á sviðinu Næsta blað kemur út: 23. ágúst - hátíðarblað Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, föstudaginn 19. ágúst.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.