Mosfellingur - 23.06.2022, Qupperneq 34
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar34
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Breytingar
Það er hollt að breyta, hætta að
gera eitthvað sem maður hefur
gert lengi og gera eitthvað annað
í staðinn. Það er ekki auðvelt að
hætta, sérstaklega ekki einhverju
sem maður hefur haft ánægju af
lengi, en mín skoðun og reynsla er
að það sé betra að hætta á meðan
það er enn gaman. Ég er í hætta-ferli
núna, er að hætta með ýmislegt sem
ég hef gert eða tekið þátt í lengi. Af
hverju er ég að hætta? Af því að mig
langar að gera aðra hluti og til þess
að geta gert þá vel, þarf ég að hafa
góðan tíma og mikla orku.
Ég er samt ekki að loka dyrum
eða skella hurðum á eftir mér.
Mér finnst best að hætta þannig að
ég eigi möguleika á að taka aftur
upp þráðinn seinna. Kannski miklu
seinna, kannski aldrei, en ég vil
halda endurkomumöguleikum
opnum, maður veit aldrei hvernig
lífið þróast.
Um leið og það er erfitt að hætta,
fylgir því mikil tilhlökkun að
búa sér til rými til að takast á við nýja
hluti og verkefni.
Fyrir mér er heimurinn stór og
lítill á sama tíma. Það er allt
hægt, ef maður trúir og virkilega vill.
Og það er gaman að horfa fram á veg
og reyna við hluti sem virðast óraun-
hæfir og ómögulegir. Ég hlustaði
á dögunum á viðtal við Guðmund
Guðmundsson, landsliðsþjálfara
karlalandsliðsins okkar í handbolta.
Mér fannst bæði áhugavert og
hvetjandi að heyra hann tala um
verkefnin sem hann sem hefur tekið
að sér í gegnum tíðina og hvernig
hann hefur brugðist við þeim tilboð-
um sem hann hefur fengið. Áskoran-
ir og erfið verkefni voru hæst á hans
óskalista, hvort sem
það var að koma
Aftureldingu upp
í efstu deild í
fyrsta sinn í sögu
félagsins eða
að gera Dani að
Ólympíumeistur-
um í fyrsta sinn.
Áfram veginn!