Mosfellingur - 23.06.2022, Qupperneq 36
Hátíðarblað
Mosfellings
kemur út 23. ágúst
Skilafrestur efnis og auglýsinga er til hádegis föstudaginn 20. ágúst
Bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram helgina 26. - 28. ágúst
m o s f e l l i n g u r @ m o s f e l l i n g u r . i s
MOSFELLINGUR
Hátíðarblað
Bæjarhátíð MosfellsBæjar 26. - 28. ágúst 2022
í túninu heima
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Ingibjörg Gróa Víðisdóttir kom í
heiminn 08.08.21 kl. 00:05
Hún var 3.614 gr og 50 cm
Foreldrar hennar eru Embla Rún
Gunnarsdóttir og Víðir Björnsson.
Hvað finnst
þér vanta?
Hversu oft skyldi maður hafa verið
spurður af því hvað það sé sem maður
virkilega sér við Mosfellsbæ?
Það hefur oft verið leikur einn að
svara því, við höfum tvær yndislegar
sundlaugar, frábæra golfvelli og klárlega
flottustu útivistarsvæðin á höfuðborgar-
svæðinu. En það er eitt sem mér fannst
oft vanta við bæinn og það var að geta
leitað í hollari skyndibita. Það lítur samt
heldur betur vel út fyrir Mosfellinga ef
marka má slúðrið í bænum, allavega
hef ég heyrt að bæði Wok On og Serrano
séu að setjast að í bænum. Þá fyrst er
nú lítið sem maður þarf að fara út fyrir
Mosfellsbæinn ekki nema þá einna
helst til að fara í vinnu, bíó eða ef mann
vantar eitthvað í verkfærakistuna eða
eina, tvær skrúfur til að klára að hengja
upp sjónvarpið í stofunni.
Það var var nú eitt sinn búð hér í bæ
sem hét Bymos og það var eins og vera
kominn á götumarkað úti í Evrópu, það
var alltaf eitthvað fyrir alla og þeir áttu
nánast alltaf það sem þig vantaði, hvort
sem það voru skrúfur, blöðrur eða bara
framlengingasnúra.
Ég veit svo sem lítið um af hverju þessi
ágæta verslun þurfti að loka en hún er
ekki sú eina sem hefur þurft að loka
dyrum sínum hér í bæ og má nefna til
dæmis að í sama húsi var Draumakaffi
sem var klassískur staður til að fara og
horfa á enska boltann og sötra bjór.
Það sem mig langar helst að koma á
framfæri er að það er mikilvægt fyrir
Mosfellinga að taka vel á móti nýjum
rekstri í bænum og vera dugleg að leita
til þeirra fyrirtækja sem hér eru að bjóða
upp á sína þjónustu til þess að einfald-
lega geta haldið áfram að bjóða upp á
hana hérna í sveitinni ef sveit má kalla.
En það er svo sem ekkert hægt að
efast um Mosfellinga í þessum málum
miðað við stækkunina sem hefur átt sér
stað hér á síðustu 15 árum eða svo.
Ég man þegar ég var svona átta ára og
bjó í Breiðholti þá gerði maður sér ferð í
Mosfellsbæ til þess að sækja Varmárlaug
og fara svo á KFC eftir á, ekki bara því
KFC var ekki í grennd við Breiðholt
heldur líka bara því það var stærsta og
skemmtilegasta leiksvæðið í Mosó. Ég
vona að það sé einhver lítill átta ára sem
ekki býr í Mosó sem óskar þess eins
og ég að geta farið í Mosó því að það er
besti staðurinn til að vera á.
bragi thor
- Heyrst hefur...36
Í eldhúsinu
Sigga og Sverrir skora á Elísu og Viktor að deila næstu uppskrift í Mosfellingi
Sigríður Helga Sigurðardóttir og Sverrir
Hermann Pálmarsson deila með okkur
uppskrift að þessu sinni. Fiskréttur sem er
í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni og oft
eldaður á heimilinu.
Sælkerafiskur fyrir fjóra
• 800 gr þorskur (eða
annar fiskur)
• 3 msk olía
• 1 laukur
• 1 paprika
• 1 epli
• 4 gulrætur
• 1 tsk karrý
• 1 tsk flögusalt
• 1 tsk Season All
• 1/2 tsk sítrónupipar
• 1 msk kjötkraftur
• 100 gr hreinn
rjómaostur
• 1 matreiðslurjómi
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu. Skerið grænmetið og
eplið fremur smátt og mýkið í olíunni. Bætið
kryddi og rjómaosti við á pönnuna þegar
grænmetið er orðið mjúkt. Gott að taka frá
ca.1/2 tsk sítrónupipar. Bætið matreiðslu-
rjómanum á pönnuna
og hitið að suðu.
Skerið fiskinn í bita
og raðið ofan á
sósuna á pönnunni.
Stráið sítrónupipar
yfir. Lokið sett yfir
og fiskurinn eldaður
í 10 mínútur.
Borið fram með
soðnum hrísgrjónum
eða soðnu byggi.
Verðiykkuraðgóðu
Sælkerafiskur
hjá siggu og sverri
heyrst hefur...
...að Telma og Jökull í Kaleo hafi
trúlofað sig á dögunum.
...að staða bæjarstjóra í Mosfellsbæ sé
nú laus til umsóknar til 28. júní.
...að Kristín María og Teddi eigi von á
sínu fyrsta barni í desember.
...að búið sé að opna MotoMos
brautina á Tungumelum.
...að engin tilboð hafi borist í bygg-
ingu nýrra þjónustubyggingar að
Varmá og verði byggingin endur-
skoðuð hjá nýjum meirihluta.
...að danshljómsveitin Blek og Byttur
ætli að endurtaka leikinn á Barion og
blása í sveitaball á föstudagskvöld á
bæjarhátíðinni.
...að verið sé að undirbúa byggingu
útisviðs í Álafosskvos þar sem
brekkusöngurinn á bæjarhátíðinni
fer gjarnan fram.
...að Hrannar Guðmunds hafi fagnað
miklu þrítugsafmæli á dögunum.
...að Arna Hilmars hafi farið holu í
höggi á 7. braut á Hlíðavelli.
...að Sindri Snær og Hildur Laxdal eigi
von á barni.
...að í sumar verði opnunartími
sundlauganna lengdur um hálfa
klukkustund á virkum dögum.
...að ærslabelgurinn í Ævintýragarð-
inum sé kominn upp aftur.
...að Kjalarnesdagar verði haldnir
hátíðlegir um helgina.
...að Guðrún Erna og Georg hafi gift
sig um síðustu helgi.
...að Tjaldanes, fremst í Mosfellsdal,
sé til sölu.
...að körfuboltagoðsögnin LeBron
James hafi kíkt í Laugarvatnshella til
Hilmars Stef í vikunni.
...að Leikjavagn UMSK verði við
Hlégarð í kringum næstu helgi.
...að íbúar í Bjarkarholti séu æfir
yfir breytingum á deiliskipulagi í
miðbænum með tilkomu risablokka
og skertu útsýni.
...að Örn Kjærnested og Bakki hafi
gefið Körlum í skúrum fullkomið
hjartastuðtæki.
...að Afturelding geti komist í 8-liða
úrslit í bikarkeppni karla í fyrsta
skipti í sögunni á mánudag þegar
liðið mætir Kórdrengjum
...að Valdimar Birgis úr Viðreisn sé nýr
formaður stærstu nefndar bæjarins,
skipulagsnefndar.
...að Afturelding mæti Þór á Malbik-
stöðinni á föstudag og áhorfendur
geti kíkt í klippingu á leiknum.
...að Ísleifur Sveins hafi farið holu í
höggi á Bakkakotsvelli á dögunum.
...að Jóhann Ingi og Vallý séu að fara
að gifta sig fyrstu helgina í júlí.
...að bókasafnið verði lokað á laugar-
dögum í júní og júlí.
...að Óli Valur og BL séu búin að
kaupa 38 hektara athafnasvæði við
Tungumela til að byggja upp.
mosfellingur@mosfellingur.is