Fréttablaðið - 07.09.2022, Qupperneq 18
njall@frettabladid.is
Þrátt fyrir að koma ekki á markað
fyrr en árið 2026 hafa öll 500 ein-
tökin af Polestar 6-sportbílnum
verið forpöntuð. Á aðeins nokkr-
um vikum var búið að ráðstafa
öllum LA Concept-bílunum en
hann verður 872 hestöfl. Hver við-
skiptavinur þurfti að borga 25.000
dollara fyrirframgreiðslu eða um
3,6 milljónir króna.
Bíllinn mun kosta yfir 27 millj-
ónir króna þegar hann kemur á
göturnar. Polestar 6 verður með
fjórum sætum og verður byggður
á botnplötu Polestar 5 en með
minna hjólhafi. Hann verður með
800 volta rafkerfi og tveimur raf-
mótorum og hröðunin aðeins 3,2
sekúndur í hundraðið. n
njall@frettabladid.is
Eins og fjallað hefur verið um á
bílasíðum Fréttablaðsins mun
Audi-bílaframleiðandinn koma inn
í Formúlu 1 árið 2026. Það er sama
ár og nýjar reglugerðarbreytingar
varðandi vélar Formúlubílanna
taka gildi. Audi hélt blaðamanna-
fund um málið á nýyfirstöðnum
Belgíukappakstri. Að sögn forstjóra
Audi, Markus Duesmann, hafa
áætlanir um að gera Formúlu 1
meira sjálfbæra og ódýrari fyrir
keppnisliðin haft áhrif á ákvarð-
anatöku Audi. „Mótorsportið er
hluti af erfðamengi Audi. Formúla
1 er á heimsmælikvarða og þar er
þróunarmiðstöð hátæknibíla.“
Með nýju reglunum munum við
sjá flóknar tvinnútfærslur V6-
vélanna hverfa en framleiðendur fá
meiri tíma til prófana. Audi ætlar
að þróa sína eigin vél í Ingolstadt en
það verður fyrsta Formúlu 1-vélin
frá Þýskalandi í meira en áratug.
Áfram verður notast við rafmótora
til aflaukningar en að sögn Audi
er mögulegt að fá jafn mikið afl
úr einum slíkum eins og 1,6 lítra
bensínvél með forþjöppu. Vélarnar
munu þurfa að geta brennt sjálf-
bæru eldsneyti. Talið er að Audi
muni kaupa ráðandi hlut í Sauber
og taka yfir vélarsamning þann
sem Ferrari hefur haft við Alfa
Romeo. Audi verður þó líklega
ekki eina merkið frá VW Group í
Formúlunni á næstu árum. Talið er
að Porsche muni einnig taka þátt á
næstunni sem vélarframleiðandi,
þá einna helst fyrir Red Bull. n
Audi kemur í Formúlu 1 árið 2026
Nýjasti gæðingur Koenigs
egg er CC850ofursport
bíllinn sem átti aðeins að
framleiða í 50 eintökum en
nú hefur 20 verið bætt við.
njall@frettabladid.is
Á þessu ári eru tuttugu ár síðan
fyrsti bíll Koenigsegg kom á
markað en það var CC8S. Til að
halda upp á þau tímamót hefur
sænski ofurbílaframleiðandinn
látið gera afmælisútgáfu sem kall-
ast einfaldlega CC850. Í ár verður
líka stofnandinn Christian von
Koenigsegg fimmtugur og því stóð
til að framleiða 50 slíka bíla, en nú
hefur 20 eintökum verið bætt við
vegna mikils áhuga.
Bíllinn sækir mikið af útliti sínu
til fyrstu bíla Koenigsegg, bíla eins
og CC8S og CCX, sem kom hingað
til lands árið 2006 á Sportbílasýn-
inguna í Laugardalshöll. Gafst þá
undirrituðum tækifæri á að keyra
bílinn frá Mývatni til Akureyrar,
með Christian sjálfan í farþega-
sætinu.
Það skal engan undra að margir
vilji eignast eintak af þessum bíl
því að fyrir aftan ökumann er
V8-vél sem skilar tvöfalt meira afli
en fyrsti bíllinn gerði, eða 1.366
hestöflum. Hægt er að fá bílinn
með níu þrepa sjálfskiptingu eða
sex gíra beinskiptingu. Með kerfi
sem Koenigsegg kallar „Engage
Drive System“ er hægt að breyta
hlutföllum gíranna eftir því í
hvaða akstursstillingu bíllinn er.
Bíllinn verður aðeins 1.385 kíló svo
að hann er næstum því hestafl á
hvert kíló. Koenigsegg hefur ekki
gefið upp aðrar tækniupplýsingar
enn þá en búast má við upptaki
í hundraðið á vel undir þremur
sekúndum. Öll 70 eintökin eru
þegar uppseld. n
Koenigsegg CC8S tvítugur
Með fréttatil-
kynningunni
fylgdi þessi
mynd af form-
úlubíl í þeim
litum sem Audi
ætlar að nota.
Beinskiptingin er ekki bara til að sýnast því að þrír pedalar eru í gólfinu.
Koenigsegg CC850 svipar mikið til fyrstu bíla Christian von Koenigsegg.
njall@frettabladid.is
Það styttist óðum í Kia EV9 sem
er fyrsti 7 manna, 100% rafdrifni
jeppann frá Kia. Kia EV9 verður
heimsfrumsýndur í byrjun næsta
árs, en hann hefur gengist undir
stífar prófanir að undaförnu.
Í þessum loka-tilraunarfasa er
meðal annars reynt á fjórhjóla-
drifið í mjög háum brekkum, á
torveldum malarvegum og í djúpu
vatni til að tryggja hámarks afköst
við krefjandi aðstæður. Aksturs-
eiginleikar á miklum hraða og
kröppum beygjum eru prufaðir
á sérhannaðri kappakstursbraut
Kia. Einnig er búið að prufu-
keyra bílinn við ýmsar krefjandi
aðstæður um allan heim, eins og á
hinum alræmdu hellulögðu vegum
Belgíu sem eru góðir til að meta
gæði fjöðrunar bílsins. Kia sendi
frá sér myndir á dögunum af þessu
tilefni sem fylgja með fréttatil-
kynningunni. n
Myndir af Kia EV9 við lokaprófanir
Polestar 6 strax orðinn uppseldur
Polestar 6 er
nokkuð stór bíll
enda byggður
á sama grunni
og Polestar 5
verður og með
sæti fyrir fjóra.
Af prófunarmyndunum að sjá er greinilegt að bíllinn mun halda miklu af því
útliti sem sjá mátti í tilraunaútgáfunni.
Rafmagnaður
Audi e-tron 55 quattro er drifinn aflgjafa íslenskrar náttúru. 100% rafdrifinn
sportjeppi með stillanlegri loftpúðafjöðrun og allt að 440 km. drægni (skv.
WLTP) sem kemur þér í rafmagnað samband við landið allt. Fjórhjóladrifinn
rífur hann sig í hundraðið á undir sjö sekúndum og nýtur fulltingis allra
nýjustu tækni og aðstoðarkerfa sem halda þér á jörðinni.
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Veldu uppáhaldsbílinn og taktu hann frá á www.hekla.is/audisalur Fæst einnig sem Sportback
4 BÍ L A BL A ÐI Ð 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR