Fréttablaðið - 07.09.2022, Side 21

Fréttablaðið - 07.09.2022, Side 21
Farangursrýmið í ID.BUZZ er risa- stórt og verður enn stærra ef aftur- sæti eru felld niður. Framendi Volkswagen ID:BUZZ sækir upphleypt VW-merkið til fyrstu rúgbrauðsbílanna en sleppir sem betur fer kringlóttu ljósunum sem hefðu virkað kauðsleg á þessum framúrstefnulega bíl. flokki bíla. Það er margt gott við að aka ID.BUZZ og tekur hann þar fram sams konar bílum í flestu. Fjöðrunin er alvöru MacPherson að framan og fjölliða að aftan svo hann liggur vel og þar sem rafmótorinn er fyrir afturdrifið leggur hann vel á. Það er því auð- velt að snúa þessum stóra bíl við á þröngum vegi. Loks er útsýni með besta móti og sér í lagi fram á við enda líður manni eins og verið sé að aka um í stóru fiskabúri. Það er helst þegar komið er að tölum um dráttargetu og burð sem að ID.BUZZ lætur undan. Hann má draga tonn og burðargeta hans er aðeins 529 kíló sem dugar honum, enda er hann aðeins fimm sæta til að byrja með. Eins og gefur að líta er ID.BUZZ ekki pláss vant og gildir þá einu hvert er litið. Sæti eru rúmgóð og þægileg og þá sérstaklega framsæt- in sem eru með armhvílum báðum megin. Milli sæta er góð hirsla sem er færanleg og einnig með skúffu fyrir aftursætisfarþega, en hana má taka úr bílnum með einu hand- taki. Þráðlausri farsímahleðslu er þannig fyrirkomið hægra megin við stýri að maður sér ekki á skjá- inn, sem er ókostur. Aftursætin eru einnig góð en fyrir farþega í miðju- sæti væri gott að hafa stuðning af hinum tveimur farþegunum því að hann hefur ekkert til að halda sér í. Þar sem hliðarhurðir aftur í eru rafdrifnar rennihurðir er ekki hægt að opna hliðarglugga þar en loftkælingin virðist skila sér vel aftur í bílinn þótt þar sé ekki sér lofttúða. Hægt er að færa til aftur- sæti sem er á sleða og hægt er að leggja það niður 40/60 vilji maður koma fyrir stærri hlutum. Loks er farangursrými yfirdrifið enda 1.121 lítri og það með aftursætin í öftustu stöðu. Aðgengi að öllu þessu plássi er líka mjög gott enda allar afturhurðir rafdrifnar og stórar og opnast vel. En hvað skyldi nú bíll fram- tíðarinnar eiga að kosta? Hann er ekki gefins enda kostar hann frá 8.490.000 krónum, sem er þremur milljónum meira en grunngerð VW ID.4 kostar, sem er þó byggður á sömu botnplötu og notast við sömu tækni að miklu leyti. Jú, hann er efnismeiri og rúmbetri, með meiri búnaði eins og rafdrifnum hurðum og fleira en kannski ekki eitthvað sem réttlætir þennan mikla mun. Helsti keppinautur hans hérlendis myndi verða Toyota Proace Verson Electric sem þó er aðeins dýrari í grunninn en hann kostar frá 8.790.000 krónum. n Sérfræðingar í hleðslustöðvum fyrir rafbíla Reykjavík Klettagörðum 25 Sími 5 200 800 Akureyri Draupnisgötu 2 Sími 4 600 800 Reykjanesbær Bolafæti 1 Sími 420 7200 Reyðarfjörður Nesbraut 9 Sími 470 2020 Selfoss Eyrarvegi 67 Sími 4 800 600 Hafnarfjörður Bæjarhrauni 12 Sími 5 200 880 Grundartangi Mýrarholtsvegi 2 Sími 5 200 830 Nánari upplýsingar á ronning.is/rafbilar BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 7. september 2022

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.