Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2022, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 07.09.2022, Qupperneq 24
Grunnverð: 5.350.000 kr. Hestöfl: 163 Tog: 300 Nm Hröðun 0-100 km: 8,9 sek. Hámarkshraði: 155 km/klst. Rafhlaða: 53,6 kWst Eigin þyngd: 1.765 kg Drægi WLPT: 301 km Meðaleyðsla: 18 kWst/100 km L/B/H: 4.385/1.850/1.650 mmm Hjólhaf: 2.655 mm Veghæð: 180 mm Seres 3 EV KOSTIR n Útsýni n Búnaður n Farþegarými GALLAR n Veghljóð n Flutningsgeta n Skiptirofi Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall @frettabladid.is Einn af nýliðunum á ört vaxandi rafbílamarkaði er Seres 3 EV raf- jepplingurinn sem kominn er á markað á Íslandi. Hann er seldur hjá RAG Import sem hingað til hefur selt sturtuvagna, landbún- aðartæki og lúxusrútur. Bíllinn er framleiddur í Kína af fyrirtæki sem kallast Sokon og þar á bæ hafa safnast nokkur vel valin nöfn úr rafbílageiranum, og eflaust er það þekktasta Martin Eberhard sem stofnaði Tesla ásamt Elon Musk og hannaði margt þar sem lagði grunninn að velgengi þess merkis. Einnig er Seres í nánu samstarfi við kínverska fyrirtækið Huawei sem hannar bæði tæknibúnað og hug- búnað fyrir rafbíla. Útlitslega stendur Seres 3 sér á parti og er ekki eins framúrstefnu- legur og margur rafbíllinn, minnir kannski meira á hefðbundinn jeppling. Ef hann líkist einhverjum minnir hann sterklega á MG ZS EV rafjepplinginn, sem einnig kemur frá Kína. Athygli vekur hversu mikið rúðurnar mjókka aftur og það er áberandi lína sem sveigist upp á við þar fyrir aftan. Þrátt fyrir það og hástæða afturrúðu sem hallar skarpt niður á við kemur það ekki niður á útsýni úr bílnum sem er með besta móti. Bíllinn er 4.385 mm langur, 1.850 mm breiður og 1.650 mm á hæð, svo að hann er örlitlu stærri en MG ZS EV auk þess sem að hjólhafið er 70 mm lengra. Maður finnur strax fyrir því að Seres 3 er með léttari rafbílum enda vigtar hann ekki nema 1.765 kíló. Fyrir vikið er hann mýkri í akstri en margur rafbíllinn og er alls ekki hastur nema síður sé. Auðvitað leggst hann nokkuð í beygjurnar en er nokkuð öruggur í stýri og missir ekki svo mikið grip á framhjólunum, nema ef honum er gefið snöggt út úr beygju. Leyfð heildarþyngd 2.065 kg svo að hann getur aðeins flutt 300 kg en þessu er reyndar svona farið með marga rafbíla í dag. Upptakið er frekar latt til að byrja með en svo tekur bíllinn vel við sér þegar hann er kominn upp fyrir 20-30 km á klst. Talsvert heyrist í rafmótornum í akstri og einnig í varmadælunni þegar bíllinn er stopp, og einnig er veghljóð nokkuð. Að innanverðu er frágangur frekar hefðbundinn og í Luxury- útfærslunni, sem er eina útfærslan sem er í boði hérlendis, er efnisval nokkuð gott og talsvert um mýkri áferð á mælaborði og miðjustokki. Tveir 10,25 tommu upplýsinga- skjáir eru allsráðandi í mælaborð- inu en virkni snertiskjás er frekar hægvirk. Miðjustokkurinn er með skiptirofa svipuðum og finna má í mörgum lúxusjeppum frá Land Rover. Virkni skiptirofans var þó ekki alltaf eins og hún átti að vera og ef honum var snúið of hratt fór hann einfaldlega ekki í valið drif. Plássið innandyra er allgott og slétt gólf milli sæta ásamt góðu fóta- og höfuðrými er einn af aðalkostum hans. Frágangur í mótorrrými er líka öðruvísi en maður á að venjast, en sjá má mótorfestingar sem eru tilsagaðir álprófílar með hand- unnum suðum. Hvort það sé kostur eða galli skal lesendum eftirlátið að dæma um. Bíllinn er vel búinn í Luxury- útfærslu en staðalbúnaður er nokkuð ríkulegur miðað við verð og má þar nefna hluti eins og 360 gráðu myndavélakerfi, fjarlægðar- skynjara, þráðlausa farsímahleðslu, árekstrarvörn og rafdrifna sóllúgu. Það kemur þó á óvart að afturhleri sé ekki rafdrifinn. Hann kemur með varadekki í fullri stærð sem er sjaldséður lúxus í nútímabílum og þá sér í lagi rafbílum. Sé hann bor- inn saman við fyrrgreindan rafbíl frá MG í verði kemur í ljós að hann er nokkuð dýrari en samkeppnin eða sem munar 460.000 krónum en þeir eru nokkuð sambærilegir í búnaði. n Rafbíll sem er allrar athygli verður Seres 3 EV er nokkuð hástæður á 18 tommu felg­ unum og upp­ sveigðar línur eru áberandi. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Mælaborðið er einfalt í notkun enda engir snertitakkar nema í snerti­ skjánum sjálfum. Hér má sjá áðurnefndan frágang á festingum fyrir búnað fyrir rafmótorinn. Með framsæti vel aftarlega er fóta­ pláss vel viðunandi og kostur að sléttu gólfinu. Varadekk í fullri stærð er búnaður sem sést orðið sjaldnar og sjaldnar. Plássið innandyra er allgott og slétt gólf á milli sæta ásamt góðu fóta- og höfuðrými er einn af aðalkostum hans. 10 BÍ L A BL A ÐI Ð 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.