Fréttablaðið - 07.09.2022, Side 26
njall@frettabladid.is
Kawasaki-mótorhjólaframleið-
andinn hefur sagt að öll mótorhjól
þeirra á þróaðri mörkuðum yrðu
að einhverju leyti rafvædd árið
2035 og að 10 slík yrðu kynnt fyrir
2025. Það hlýtur að vera að stytt-
ast í formlega kynningu á fyrstu
hjólunum því að Kawasaki kom á
óvart með smá sýningu á tvinn-
hjólinu ásamt litlu rafhjóli rétt
fyrir Suzuka átta stunda mótor-
hjólakeppnina.
Þökk sé japanska mótorhjóla-
tímaritinu Auto-By náðust góðar
myndir af hjólunum sem sýna
mikið um búnað þess. Tvinnhjólið
notar greinilega 399 rsm-vélina
úr Z400-hjólinu sem er tveggja
strokka, en pústið er alveg eins og á
því hjóli. Komnir eru tveir bremsu-
diskar að framan sem bendir til
meira afls, líklega á pari við Z650-
hjólið en framendinn kemur af
því hjóli. Framljósin eru græn sem
er líklega tilvísun í að hjólin séu
„grænni“ ásamt því að það er litur
Kawasaki. Afturendinn er bæði
meiri um sig og lengri en á Z400-
hjólinu en það er vegna þess að þar
er búið að koma fyrir 48 volta raf-
hlöðu. Rafmótorinn er fyrir ofan
gírkassann og tengist honum með
rafstýrðri kúplingu. Engin eiginleg
kúpling er í hjólinu heldur er skipt
með takka vinstra megin á stýrinu.
Hjólið mun geta ekið á rafmagni
eingöngu, til dæmis á minni hraða
innanbæjar, en notar þá frekar
vélina utanbæjar og hleður upp
rafhlöðuna í leiðinni.
Kawasaki kynnti einnig rafhjól
sem er á pari við 125 rsm bensín-
hjól. Virðist rafhlaðan í því bjóða
upp á að vera skiptanleg. Hjólið
virðist einfalt að gerð með hefð-
bundnum íhlutum sem gefur til
kynna að það verði á viðráðanlegu
verði. Til dæmis er vindkúpan
og framljósið frá Z400-hjólinu.
Rafmótorinn er einfaldur og
virðist vera með einu drifi án
gírkassa. Orðrómurinn segir að
tvö slík verði kynnt bráðlega,
bæði torfæruhjól og götuútgáfa,
ásamt tvinnhjólinu og þá líklega
kringum EICMA-mótorhjóla-
sýninguna í nóvember. n
Fyrstu myndir
af Kawasaki
tvinnhjólinu
njall@frettabladid.is
Náðst hafa njósnamyndir af nýju
útspili Suzuki á markað ferða-
mótorhjóla, en það er næsta kyn-
slóð Suzuki V-Strom 650. Myndin
sýnir hjólið við prófanir og er
líklegt að það verði frumsýnt á
mótorhjólasýningunni í Mílanó í
nóvember.
Helstu breytingar á hjólinu
verða á vél, en V2-vélin hefur
verið við lýði síðan snemma á
tíunda áratug síðustu aldar. Ljóst
er að hún mun ekki fara í gegnum
Euro5-mengunarstaðalinn og því
mun tveggja strokka línuvél leysa
hana af hólmi.
Þrátt fyrir felubúnað hjólsins
má sjá að útlitið er sótt til Katana-
hjólsins og öfugir framdemparar
ásamt 21 tommu teinafelgu að
framan gera það að meira tor-
færuhjóli en áður. n
Nýtt Suzuki V-Strom á leiðinni
Hér má sjá
næstu kynslóð
Suzuki V-Strom
650 við prófanir.
MYND/
KANYARFOTO
Rafhjólið er einfaldlega merkt EV og
er sambærilegt við 125 rúmsenti-
metra bensínmótor.
Kawasaki kom á óvart með sýningu á
HEV-tvinnhjóli á Suzuka á dögunum.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
Afturendinn er
bæði meiri um sig
og lengri en á Z400-hjól-
inu en það er vegna þess
að þar er búið að koma
fyrir 48 volta rafhlöðu.
12 BÍ L A BL A ÐI Ð 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR