Fréttablaðið - 07.09.2022, Side 28
Bætiefnin frá Good Routine
eru að slá í gegn, enda
vönduð og árangursrík.
Unnur Gunnarsdóttir fann
fljótt mikinn mun á hárinu,
liðunum og húðinni eftir
að hún byrjaði að taka inn
Pure Omega 3 frá Good
Routine.
„Ég er í eðli mínu mikil áhuga-
manneskja um bætiefni og hef
því prófað margt og mikið þegar
kemur að bætiefnum. Því get ég
óhikað sagt að bætiefnin frá Good
Routine eru sennilega Rollsinn
í bætiefnaheiminum. Þar er
greinilega vandað mjög til allra
verka og áhrifin láta ekki á sér
standa.“ Þetta segir Unnur Gunn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri hjá
Engey Kids. Unni hefur ávallt
verið umhugað um heilsu sína og
ástundað heilsusamlegan lífsstíl.
Síðan í vor hefur hún tekið inn
bætiefni frá Good Routine.
Kolfallin fyrir vörulínunni
„Ég fékk strax góða tilfinningu
fyrir Good Routine þegar ég byrj-
aði að nota það og ég finn líka að
það gerir mér gott. Þetta eru gæði
í gegn og mikil rannsóknarvinna
að baki. Nafnið Good Routine
höfðar líka til mín. Allir vita jú að
góð rútína er góð; maður finnur
það ekki síst eftir sumarfríið.
Nafn vörumerkja segir manni líka
sitthvað og er oft það sem grípur
mann fyrst þegar maður prófar
eitthvað nýtt,“ segir Unnur sem
tekur bætiefni frá Good Routine
samviskusamlega hvern dag.
„Þannig næst besta virknin
og hún kemur f ljótar fram. Mín
fyrstu kynni af Good Routine
var bætiefnið Synergize-Your-
Gut, fyrir þarmaflóruna, og ég
var rosalega ánægð með það,
tek það enn inn og finn mikinn
mun á mér. Síðan hef ég bætt við
Guard-Your-Liver og nú síðast
Pure Omega-3 frá Good Routine,“
greinir Unnur frá.
Ánægð með áhrif á húð, hár og liði
Hún er heldur betur ánægð með
áhrif Good Routine Pure Omega
3. „Pure Omega-3 er stórkostlegt
bætiefni fyrir húðina, hárið og
liðina. Ég hef alltaf hugsað vel um
hárheilsuna og lagt mig fram um
að næra hár mitt vel. En eftir að
ég fór að taka inn Pure Omega-3
bætiefnið frá Good Routine finn
ég bæði og sé að glans og þéttni
hársins hefur tekið miklum og
góðum stakkaskiptum. Þá er
húðin orðin þéttari og með meiri
raka. Ég finn greinilegan mun á
þessu tvennu og bætiefnið virðist
gefa virkilega góða og ríkulega
næringu. Þá finn ég glöggt hversu
góð áhrif það hefur á liðheilsuna;
það mýkir liðina og eykur allan
liðleika til muna,“ segir Unnur.
Hún mælir heils hugar með
bætiefnunum frá Good Routine.
„Þetta eru fyrst og fremst vönduð
og góð bætiefni. Maður finnur
f ljótt mun á sér og ég er spennt að
prófa f leira úr bætiefnalínu Good
Routine.“
Hraust hjarta og
hamingjusamur heili
Bætiefnið Pure Omega-3 frá Good
Routine inniheldur hæsta styrk
af ómega-3 fitusýrum í skammta-
stærð (1.430 mg). Efnablandan er
einstaklega kröftug og inniheldur
háan styrk af EPA (792 mg) og
DHA (528 mg). Blandan inniheld-
ur einnig D3-vítamín og E-víta-
mín sem spornar gegn þránun.
Næringarefnin EPA og DHA eru
tegundir ómega-3 fitusýra og gegna
þær mikilvægu hlutverki í líkaman-
um sem nauðsynleg byggingarefni
frumuhimna auk þess að stuðla
að eðlilegri virkni hjarta, augna
og heila. Taugar innihalda mikið
magn af ómega-3 fitusýrunni DHA
og því er inntaka DHA mikilvæg til
þess að veita taugum nauðsynleg
næringarefni. Afleiðingar þess að
fá ekki nóg af DHA úr fæðu gætu
verið skert geta líkamans til að læra,
hugsa, muna og viðhalda hraustum
og hamingjusömum heila. Þá er
DHA í líkamanum nauðsynlegt til
þess að viðhalda góðri sjón.
Áhrif á allan kroppinn
Mælt er með Pure Omega-3 til að
tryggja heilbrigði hjarta, augna,
taugakerfis, húðar, hárs, beina og
liðamóta, en einnig til að viðhalda
eðlilegu magni lípíða í blóðinu,
styrkja ónæmiskerfið og koma í veg
fyrir ofnæmisviðbrögð og stuðla
að vellíðan þeirra sem neyta ekki
nógu mikils af góðri fitu.
Pure Omega-3 frá Good Routine
er framleitt með einkaleyfisvarða
hreinsunarferlinu Flutex™ sem
tryggir að þungmálmar og önnur
mengunarefni eru fjarlægð, án þess
að notast sé við leysiefni, háan hita
eða aðrar ágengar aðferðir. Það
eykur auk þess gæði olíunnar sem
skilar sér í hæsta styrk af ómega-
3 fitusýrum og góðri upptöku
í líkamanum. Hreinsunarferli
Good Routine tryggir einnig að
notandinn finnur ekki fiskibragð
eftir inntöku.
Mælt er með því að taka tvö hylki
á dag, með mat eða vatnsglasi, fyrir
hraust hjarta og hamingjusaman
heila, alla daga. n
Good Routine fæðubótarefnin
fást í Hagkaup, Lyfjum & heilsu,
Apótekaranum og Krónunni.
Glansandi hár, mýkri liðir og
þéttari húð með Pure Omega-3
Unnur var snögg að finna mun á hárinu, húðinni og liðunum þegar hún byrjaði að taka inn Pure Omega 3. MYND/AÐSEND
Að loknu sumarfríi eru fjöl-
margir sem vilja fara í átak
fyrir líkama og sál, núll-
stilla sig, borða hollari mat,
stunda heilbrigða hreyfingu
og koma sér í form eftir að
hafa verið í vellystingum
yfir sumarið.
sjofn@frettabladid.is
Karen Jónsdóttir, Kaja eins og
hún er ávallt kölluð, frumkvöðull,
stofnandi og eigandi Matarbúrs
Kaju og Café Kaju, býður upp á
safahreinsun nokkru sinnum á ári
sem hefur notið mikilla vinsælla.
Fyrsta safahreinsun haustsins
er í gangi núna og færri komust að
en vildu, svo vinsælir eru safarnir
hennar Kaju orðnir. Það er ekki
að ástæðulausu sem þessi safa-
hreinsun er jafn vinsæl og raun
ber vitni. Fram undan eru tvö
námskeið til viðbótar í haust í
safahreinsuninni, 17. september og
síðan þriðja og síðasta námskeið
haustsins 1. október.
Tilurð og árangurinn
Þegar kemur að því að fram-
leiða safana eins og allt það sem
Kaja framleiðir og gerir er aðal-
áherslan á lífrænt hráefni enda
rekur Kaja eina lífrænt vottaða
kaffihús landsins. Við fórum og
heimsóttum Kaju og fengum hana
til að segja okkur nánar frá safa-
hreinsuninni.
Þú hefur verið að bjóða upp á
safahreinsun, segðu aðeins frá
tilurð hennar.
„Eftir að ég veiktist leitaði ég
allra leiða til að ná heilsu að nýju.
Eftir lestur og yfirlegu varð ég
nokkuð sammála þeim kenning-
um að hreinsa þurfi líffærakerfið
annað slagið. Eftir margar prufur
og leit að hreinsun sem hentaði
mér, rakst ég á bók sem heitir Sjö
daga safakúr, en þessi safakúr
grundvallaðist meira sem megrun
heldur en hreinsun. Ég fór í
gegnum þennan safakúr nokkrum
sinnum, breytti og þróaði þannig
að hann hentaði mér og hefði hlut-
verk hreinsunar, ekki megrunar.“
Eru uppskriftirnar að söfunum
þínar?
„Það eru grunnuppskriftir en
þær eru þó breytilegar eftir því
hvaða hráefni fást en ég nota ein-
ungis lífræn hráefni í safana eða
íslensk sem eru ræktuð villt eða án
eiturefna. Enda er það grunnurinn
að hreinsa út, að nota „hreinan“
mat.“ Kaja segir að sér finnist það
alveg nauðsynlegt, bæði andlega
og líkamlega, að fara í safahreins-
un. Ástæðan sé sú að það eigi sér
stað svo mikil endurnýjun og þetta
sé frábær leið til að núllstilla sig.
„Til að losna við bjúg og bólgur auk
þess sem þetta auðveldar fólki líka
að hefja og ná tökum á breyttum
lífsstíl,“ segir Kaja.
Hreinsa út eiturefni
Kaja segir að tilgangur með safa-
hreinsuninni sé fyrst og fremst
að minnka álag á meltinguna og
gefa líkamanum tóm til að hreinsa
eiturefni út úr líkamanum og
vinna svolítið að viðgerðum.
Safahreinsun er átta daga
prógramm sem samanstendur
af þriggja daga undirbúningi og
síðan fimm dögum þar sem við-
komandi neytir einungis safa,
ávaxta og fræja. „Safarnir eru allir
með trefjum og eru þeir sam-
tals 25 og enginn eins, þar sem
hver safi á að hafa sína virkni. Í
fyrri hluta hreinsunarinnar eru
notaðir ávextir og grænmeti sem
hafa losandi og hreinsandi áhrif
og í seinni hlutanum eru hráefnin
til að byggja upp. Á fimmta degi
verður uppljómun, það er reynsla
þeirra sem hafa tekið þátt í þessu
námskeiði. Prógrammið fyrir safa-
hreinsunina er í boði nokkrum
sinnum á ári, í fyrstu var það
tvisvar á ári en eftirspurn eftir
safahreinsun hefur aukist og því
erum við farin að bjóða oftar upp á
safahreinsunina.
Þriggja daga undirbúningur
Samsetningin skiptir miklu máli,
bæði til að ná góðu bragði, upp-
lifun og svo hreinsandi þættinum.“
Þarf að undirbúa sig fyrir safa-
hreinsunina?
„Það eru teknir þrír dagar í
undirbúning þar sem allt kjöt,
fiskur, sykur, glúten og mjólkur-
vörur eru teknar út.“
Geta einhverjar aukaverkanir
fylgt því að fara í safahreinsunina?
„Aukaverkanir geta verið mis-
jafnar og fara eftir því hvar fólk er
statt í lífinu og þeim lífsstíl sem
það hefur tileinkað sér. Þeir sem
eru vanir að drekka mikið kaffi
eða koffeindrykki geta fundið fyrir
hausverk og þreytu svo dæmi séu
tekin. Enda eru viðbrigði að taka út
koffeindrykki í fimm daga en vel
þess virði. Aukaverkanir eru mjög
persónubundnar og sumir finna
strax fyrir ferskleika bæði á líkama
og sál.“
Betri líðan
Hvaða árangri getur fólk náð með
safahreinsuninni?
„Í sumum tilfellum er hægt að
losna við lyf vegna ýmissa lífsstíls-
sjúkdóma en það á einungis við ef
fólk heldur áfram að vera á beinu
brautinni. Betri líðan á allan hátt,
léttara skap, bólguminnkun og svo
mætti halda áfram.“
Hægt er að fræðast frekar um
safahreinsunina hjá Matarbúri
Kaju. n
Núllstilla líkamann með safakúr
Karen Jónsdóttir framleiðir safa til að hreinsa líkamann. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kaja notar
einungis lífræn
hráefni í safana.
4 kynningarblað A L LT 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR