Fréttablaðið - 16.09.2022, Qupperneq 2
Ástandið er alveg
skelfilegt og það á bara
eftir að versna.
Sigrún
Steinarsdóttir,
sjálfboðaliði í
mataraðstoð
RIFF kynnt með pompi og prakt
Sigurður K. Kolbeinsson ræðir við
ýmsa þekkta og óþekkta Íslendinga
um lífið og tilveruna og sagðar eru
skemmtilega sögur og frásagnir aftur
í tímann sem mörgum kunna að þykja
skemmilegar.
Laugardaga kl. 10.00
www.hotelbokanir.is/lifid-er-lag-hladvarp og á Spotify
Einar Bollason er næsti gestur
hlaðvarpsins.
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri
þurft matargjafir og fjár
hagsaðstoð en nú vegna
hækkunar vöruverðs, verð
bólgu og vaxtahækkunar að
sögn sjálfboðaliða. Hún býr
á Akureyri en fær beiðnir um
aðstoð frá öllu landinu.
bth@frettabladid.is
AKUREYRI „Ég var sjálf í þessari
stöðu fyrir mörgum árum að eiga
ekki fyrir mat. Það sem keyrir mig
áfram er að hjálpa fólki, það er
skelfilegt að geta ekki sofið út af
fjárhagsáhyggjum,“ segir Sigrún
Steinarsdóttir sem hefur haldið úti
mataraðstoð á Akureyri í átta ár.
Sjaldan eða aldrei hefur ástandið
verið verra en nú að hennar sögn.
Um 240 njóta mataraðstoðar sem
hún og velunnarar standa fyrir.
Bæði leggur fólk inn fjárhæðir sem
Sigrún millifærir á inneignarkort í
Bónus og afhendir fátækum. Eins
er mikið um dagleg matarframlög í
kistil sem stendur á tilteknum stað
á Akureyri. Geta efnalitlir sótt þar
í brauð, kjöt og alls konar matvöru
sem hjálpsamir skilja eftir.
Sigrún segir minni skömm fyrir
efnalitla að þiggja matargjafir með
þessum hætti en að standa í biðröð
hjá Rauða krossinum eða Mæðra
styrksnefnd og þurfa kannski að
auki að skila skattskýrslu.
„Fólk skammast sín fyrir að þurfa
að þiggja svona aðstoð þannig að
við ákváðum að okkar fyrirkomulag
yrði auðveldara fyrir fólk.“
Aðstoðin miðast einkum við að
hjálpa barnafjölskyldum. Kippur
varð í aðsókn að matnum þegar
skólarnir hófu göngu sína síð
sumars. Sigrún segist aðeins þekkja
fjögur dæmi um misnotkun öll átta
árin sem hún hafi starfað í sjálf
boðavinnu við málefnið. Þvert á
móti þurfi fjöldi fólks aðstoð án
þess að þiggja hana fremur en að
óprúttnir gangi á lagið.
„Ástandið er alveg skelfilegt og
það á bara eftir að versna. Húsaleiga
hækkar, matvara hefur hækkað
rosalega. Fólk hefur ekki efni á að
borða, það á ekki fyrir reikningum.
Ég er núna að fá beiðnir strax í
byrjun mánaðar. Fólk á ekki neitt.
Þetta samfélagsástand bitnar verst á
þeim sem standa höllum fæti,“ segir
Sigrún.
Íslendingar þurfa að viðurkenna
að fátækt er mein á Íslandi þótt
margir vilji loka augunum gagnvart
þeirri staðreynd, að sögn Sigrúnar.
„Þeir eru margir sem geta ekki
nestað börnin sín eða gefið þeim
að borða á kvöldin. Eini maturinn
er kannski í hádeginu í skólum en
það hafa ekki öll börn efni á skóla
mötuneyti.“
Beiðnir um aðstoð hafa borist
Sigrúnu frá Reykjavík, Sauðárkróki,
Egilsstöðum og Húsavík svo nokkuð
sé nefnt. Vandinn er því ekki ein
skorðaður við höfuðstað Norður
lands.
Hægt er að fá nánari upplýsingar
á síðunni Matargjafir Akureyri og
nágrenni á Facebook. n
Skelfilegt að eiga ekki mat
handa börnunum sínum
Úr kistlinum góða þar sem fólk í neyð getur náð sér í mat. MYND/AÐSEND
ragnarjon@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Helgu Völu Helga
dóttur, þingflokksformanni Sam
f ylk ingar innar, hug nast ek k i
hugmyndir Sigurðar Inga Jóhanns
sonar innviðaráðherra um stofnun
opinbers hlutafélags utan um upp
byggingu og rekstur samgönguinn
viða.
„Ég held að við séum alveg búin
að átta okkur á því að þessi opin
beru hlutafélög eru algjör bastarð
ur í kerfinu,“ segir Helga Vala um
slíkar hugmyndir ráðherrans.
„Þau fyrirtæki sem hafa verið
skráð sem ohf. hafa sýnt að
umgjörðin er óhagstæð þar sem
ríkið ber allar skyldurnar en hefur
svo lítið vald til þess að viðhafa inn
grip ef í óefni stefnir,“ segir hún.
„Það er eitthvað sem fær mann til að
hugsa hvort við þurfum raunveru
lega fleiri opinber hlutafélög.“ n
Hugnast ekki
fleiri opinber
hlutafélög
Helga Vala Helgadóttir, þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar.
Fulltrúar RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, kynntu veglega hátíðardagskrá á fjölmiðlafundi í gær. Á hátíðinni, sem hefst fimmtudaginn 29.
september, verður allt frá Múmínálfunum til Inúítahryllingsmynda á skjánum og þess á milli fara fram pallborðsumræður um ýmis málefni líðandi stundar.
Um er að ræða nítjánda skiptið sem hátíðin er haldin og heiðursgesturinn í ár er spænska stórleikkonan Rossy de Palma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
jonthor@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNARMÁL Orð sem
féllu á lokuðum fundi varðandi
samgöngumál í Kópavogi urðu að
umfjöllunarefni í opnum Face
bookhópi. Hjördís Ýr Johnson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisf lokks
ins í Kópavogi, lagði fram fyrir
spurn vegna málsins í gær, en það
voru hennar ummæli sem voru til
umræðu.
„Við vorum að ræða samgöngumál
á lokuðum fundi, og það næsta sem
ég veit að þá er komin umræða um
þetta í lokuðum hópi á Facebook,“
segir Hjördís, sem vill meina að orð
sín hafi verið tekin úr samhengi og
rangt farið með mál hennar. Hjör
dís tekur fram að færslunni hafi nú
verið eytt, og að hún hafi komið frá
einstaklingi sem sat ekki fundinn, og
telur hún að einhver hafi því komið
umræddum ummælum á framfæri.
„Þetta setur leiðinlegan tón á
nýtt kjörtímabil,“ segir Hjördís sem
segir mikilvægt að það ríki traust á
lokuðum fundum. „Ef það ríkir ekki
traust þá mun fólk veigra sér við að
tjá sig. Það er miður ef við ætlum að
fara þessa leið.“ n
Telur trúnað brotinn eftir lokaðan fund
Það næsta sem ég veit
að þá er komin
umræða um þetta í
lokuðum hópi á
Facebook.
Hjördís Ýr
Johnson, bæjar-
fulltrúi í Kópa-
vogi
2 Fréttir 16. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ