Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 26
Við erum stolt af því að geta nýtt krafta heimamanna sem hafa sýnt okkur stuðning í öllu ferlinu, en auðvitað fórum við líka sjálf í vinnugallann á milli þess sem við vorum að elda mat og bera hann fram. Veitingahjónin Steinunn Helgadóttir, veitinga- og framkvæmdastjóri, og Sæþór Þorbergsson mat- reiðslumeistari hafa staðið í stórræðum í kjallaranum á veitingahúsi sínu, Narfeyrar- stofu í Stykkishólmi. sjofn@frettabladid.is Þau Steinunn og Sæþór hafa átt og rekið Narfeyrarstofu frá árinu 2001. Veitingahúsið er eitt af glæsilegustu og farsælustu veitingahúsunum á Vesturlandi og margrómað fyrir vandaða og gæðamikla matargerð. Þarna hefur skapast hlýleg umgjörð þar sem gamli og nýi tíminn mætast. Á neðri hæð hússins sem hýsir Narfeyrarstofu er einstakur kjall- ari sem Steinunn og Sæþór ákváðu að gera upp og stækka staðinn með stórfenglegri útkomu. Narfeyrarstofa er í hjarta bæjar- ins í einstöku húsi sem á sér mikla sögu og því er virðingarvert að sjá hversu vel hefur verið hugsað um húsið og er viðhald til fyrir- myndar. Einstök upplifun er að koma í kjallara Narfeyrarstofu en á veggjum eru gamlar hleðslur sem voru undir húsinu og svo blasir við þversnið af berginu undir þeim. Birtan er notaleg, áklæði stóla og bekkja í mjúkum litum, borð- plötur úr grænleitum marmara, pússaðir veggir grámálaðir. Þetta Ný vínstúka í elsta veitingahúsi Stykkishólms Veitingahjónin í Narfeyrarstofu, Steinunn Helga- dóttir og Sæþór Þorbergsson, eru nú búin að bæta við glæsi- legri vínstúku í kjallaranum á Narfeyrarstofu sem á sér enga líka. MYNDIR/AÐSENDAR Birtan er notaleg, áklæði stóla og bekkja í mjúkum litum, borðplötur úr grænleitum marmara, pússaðir veggir grámálaðir. Á veggjum mætast gamlar hleðslur sem voru undir hús- inu og svo blasir við þversnið af berginu undir þeim. er glæsileg viðbót hjá hjónunum í Narfeyrarstofu og til fyrirmyndar í alla staði. Endurbæturnar björguðu húsinu Aðspurð segja Steinunn og Sæþór að verkið hafi verið viðamikið og heilmikil framkvæmd. „Við mokuðum út yfir 200 tonnum af grjóti og jarðvegi. Elsta hleðslan sem blasir nú við þeim sem koma í kjallarann er frá því um 1800, því húsið sem nú stendur var byggt árið 1906 ofan á sökkul af eldra húsi. Aðrar hleðslur eru frá því húsið var byggt.“ Í raun hafi þessar endurbætur bjargað húsinu til framtíðar. „Þær renndu undir það styrkari stoðum, því í framkvæmdunum kom í ljós að gömlu stoðirnar voru orðnar veikar. Þá dúaði húsið orðið leiðinlega mikið á mið- hæðinni. Útveggirnir voru hins vegar traustir og högguðust ekki á meðan unnið var í kjallaranum.“ Unnið af heimamönnum Að baki er sjö mánaða vinna við að kljúfa bergið, brjóta og moka, skjóta stoðum undir húsið, smíða, leggja dren og lagnir, steypa, pússa, mála og innrétta. Verkið hófst 2. janúar og nú hafa Hólmarar eignast glæsilegan nýjan stað, vínstúku eða kokteil- stofu, sem um leið er hluti af elsta veitingahúsinu í bænum. Steinunn segir marga heima- menn hafa komið að verkinu. „Verkið er að mestu unnið af iðn- aðarmönnum í Stykkishólmi. Þá sá ÞB Borg um framkvæmdina og eru eigendur þess fyrirtækis pabbi og bróðir Sæþórs.“ Einnig kom að verkinu verk- fræðingur og rafhönnuður, Karl Matthías Helgason, sem er bróðir Steinunnar. „Við erum stolt af því að geta nýtt krafta heimamanna sem hafa sýnt okkur stuðning í öllu ferlinu en auðvitað fórum við líka sjálf í vinnugallann á milli þess sem við vorum að elda mat og bera hann fram. Það er svo gaman að taka þátt í verkinu af fullum krafti. Barinn og borðin koma að mestu frá Fígaró og það er Hólmar bekkjarbróðir okkar sem á þann frábæra stað. Um smíði á bekkjum sáu GÁ húsgögn en ljós, borð og Gubi-stólar komu frá Lumex. Þá sá Berglind Berndsen innanhússarki- tekt um hönnun á rýminu. Við gætum ekki verið henni þakklátari fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okkur,“ segja hjónin að lokum, alsæl með útkomuna. n Á elleftu stundu In the eleventh hour Sýningaropnun laugardaginn 17. september klukkan 14:00 Öll velkomin 6 kynningarblað A L LT 16. september 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.