Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 23
Hannah Davíðsdóttir er tveggja barna móðir sem hefur notað Lansinoh og Better You vörur og mælir hiklaust með fyrir alla sem hyggja á barneignir. Það er að mörgu að huga þegar von er á nýjum einstaklingi í heiminn og margt sem fylgir í undirbúningi og tilhlökkun yfirleitt mikil. Með- ganga getur verið mismunandi en þó er alltaf gríðarlega mikilvægt að huga að hollri og næringarríkri fæðu ásamt því að taka inn valin bætiefni til að tryggja upptöku á nauðsynlegum vítamínum fyrir bæði móður og barn. Að auki er góður kostur að kynna sér áhrifa- ríkar vörur sem henta vel fyrir bæði móðurina og barnið. Leggur mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl Hannah Davíðsdóttir er 24 ára, tveggja barna móðir sem hefur ástríðu fyrir líkams- rækt og heilbrigðum lífsstíl. Hannah leggur mikla áherslu á að gera allt sem hjálpar líkamanum til að hafa næga orku og vill slíkt hið sama fyrir alla í sinni fjölskyldu. Síðustu misseri hefur Hannah notað vörur frá Lansinoh sem hafa komið sér afar vel við brjósta- gjöf ásamt einstök- um munnúðum frá Better You sem hafa slegið í gegn hjá öllum fjölskyldu- meðlimum á hennar heimili. Hannah hefur tekið saman sínar uppáhaldsbarnavörur sem hafa komið sér vel og deilir hér sinni reynslu. Lansinoh bjargvættur með lítil kríli „Mín helsta og besta vinkona í gegnum fyrstu mánuðina var mjólkursafnarinn frá Lansinoh. Mín ábending til allra mæðra sem eru með barn á brjósti er að fjárfesta í einum slíkum þar sem safnarinn grípur hvern einasta dropa sem hefði annars bara farið í lekahlífarnar eða jafnvel flíkina. Græjan er einföld í notkun og líka í þrifum sem er frábær kostur. Fjölnota lekahlífar eru að auki algjör nauðsyn en þær eru ótrú- lega þægilegar og haldast mjúkar í þvotti. Þessar hlífar hafa sparað mér mjög mörg vandræðaleg atvik þegar ég finn að flæðið byrjar að leka á almannafæri, því það lekur ekkert í gegn. Lanolin brjóstakremið frá Lansinoh er svo líka vara sem ég hef notað vandræðalega mikið á alla fjölskyldumeðlimi á heimilinu, bæði á þurrkubletti og sár en einn- ig líka sem krem á bleyjusvæðið fyrir börnin,“ segir Hannah sem mælir hiklaust með vörunum frá Lansinoh fyrir allar nýbakaðar mæður. Bragðgóðir Better You munnúðar Better You vörurnar njóta aukinna vinsælda og ekki að ástæðulausu þar sem mikið er lagt upp úr gæðum og að upptaka á vítamín- um sé tryggð. Munnúðar eru ein- föld og áhrifarík leið til að taka inn vítamín og fyrir þá sem eiga erfitt með að kyngja töflum eða hafa undirliggjandi meltingarvanda- mál. Better You vítamínin koma öll í formi munnúða sem tryggir góða upptöku gegnum slímhúð í munni ásamt því að úðarnir eru sérlega bragðgóðir og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, ungir sem aldnir. Uppáhaldsvörur Hönnuh Davíðs fyrir fyrstu árin Síðustu misseri hefur Hannah notað vörur frá Lansinoh sem hafa komið henni afar vel við brjóstagjöf ásamt einstökum munn- úðum frá Better You sem hafa slegið í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum á hennar heimili. MYND/KRISSY Hannah mælir hiklaust með vörunum frá Lansinoh fyrir allar ný- bakaðar mæður. Línan inniheldur mjólkursafnara, einnota og fjöl- nota lekahlífar og brjóstakrem. Hannah mælir með Better You munnúðum fyrir fjölskylduna „Ég hef notað Dlux infant frá Better You í rúmlega þrjú ár því það er svo einfalt í notkun fyrir nýbura og er þekkt fyrir að fara ekki illa í magann á þeim eins og önnur D-vítamín á markaðinum gera gjarnan. Mér þykir það afar góður kostur fyrir börn þar sem þau þurfa að sjálfsögðu líka á D-víta- mínviðbót að halda eins og allir aðrir. Bein barna eru mjúk og við- kvæm fyrst um sinn og þurfa þau því auka stuðning til þess að verða stór og sterk. Ég er einnig stærsti aðdáandi Pregnancy spreysins frá Better You þar sem það hjálpaði svo gríðarlega mikið að koma í veg fyrir ógleði á seinni meðgöngunni minni. Því miður var línan ekki til þegar ég var ólétt að eldri stelpunni minni þar sem ég hefði virkilega þurft á því að halda á þeim tíma en hún kom sem guðs- gjöf með seinni og mun ég aldrei sleppa því að nota hana á fram- tíðarmeðgöngum,“ segir Hannah sem hefur lengi notað vörur Better You með góðum árangri. Hannah mælir eindregið með vörunum frá Better You fyrir alla fjölskylduna en allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. n Lansinoh fæst í Krónunni, Hag- kaupum, Fjarðarkaupum, apó- tekum og barnabúðum. Better You fæst í apótekum og heilsuhillum stórmarkaða. kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 16. september 2022 FYRSTU ÁRIN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.