Fréttablaðið - 16.09.2022, Qupperneq 23
Hannah Davíðsdóttir er
tveggja barna móðir sem
hefur notað Lansinoh og
Better You vörur og mælir
hiklaust með fyrir alla sem
hyggja á barneignir.
Það er að mörgu að huga þegar von
er á nýjum einstaklingi í heiminn
og margt sem fylgir í undirbúningi
og tilhlökkun yfirleitt mikil. Með-
ganga getur verið mismunandi en
þó er alltaf gríðarlega mikilvægt
að huga að hollri og næringarríkri
fæðu ásamt því að taka inn valin
bætiefni til að tryggja upptöku á
nauðsynlegum vítamínum fyrir
bæði móður og barn. Að auki er
góður kostur að kynna sér áhrifa-
ríkar vörur sem henta vel fyrir
bæði móðurina og barnið.
Leggur mikla áherslu á
heilbrigðan lífsstíl
Hannah Davíðsdóttir er 24 ára,
tveggja barna móðir sem hefur
ástríðu fyrir líkams-
rækt og heilbrigðum
lífsstíl. Hannah
leggur mikla áherslu
á að gera allt sem
hjálpar líkamanum
til að hafa næga
orku og vill slíkt
hið sama fyrir alla
í sinni fjölskyldu.
Síðustu misseri
hefur Hannah notað
vörur frá Lansinoh
sem hafa komið sér
afar vel við brjósta-
gjöf ásamt einstök-
um munnúðum frá
Better You sem hafa
slegið í gegn hjá öllum fjölskyldu-
meðlimum á hennar heimili.
Hannah hefur tekið saman sínar
uppáhaldsbarnavörur sem hafa
komið sér vel og deilir hér sinni
reynslu.
Lansinoh bjargvættur
með lítil kríli
„Mín helsta og besta vinkona í
gegnum fyrstu mánuðina var
mjólkursafnarinn frá Lansinoh.
Mín ábending til allra mæðra
sem eru með barn á brjósti er að
fjárfesta í einum slíkum þar sem
safnarinn grípur hvern einasta
dropa sem hefði annars bara farið
í lekahlífarnar eða jafnvel flíkina.
Græjan er einföld í notkun og líka
í þrifum sem er frábær kostur.
Fjölnota lekahlífar eru að auki
algjör nauðsyn en þær eru ótrú-
lega þægilegar og haldast mjúkar
í þvotti. Þessar hlífar hafa sparað
mér mjög mörg vandræðaleg atvik
þegar ég finn að flæðið byrjar að
leka á almannafæri, því það lekur
ekkert í gegn.
Lanolin brjóstakremið frá
Lansinoh er svo líka vara sem ég
hef notað vandræðalega mikið á
alla fjölskyldumeðlimi á heimilinu,
bæði á þurrkubletti og sár en einn-
ig líka sem krem á bleyjusvæðið
fyrir börnin,“ segir Hannah sem
mælir hiklaust með vörunum frá
Lansinoh fyrir allar nýbakaðar
mæður.
Bragðgóðir Better You
munnúðar
Better You vörurnar njóta aukinna
vinsælda og ekki að ástæðulausu
þar sem mikið er lagt upp úr
gæðum og að upptaka á vítamín-
um sé tryggð. Munnúðar eru ein-
föld og áhrifarík leið til að taka inn
vítamín og fyrir þá sem eiga erfitt
með að kyngja töflum eða hafa
undirliggjandi meltingarvanda-
mál. Better You vítamínin koma
öll í formi munnúða sem tryggir
góða upptöku gegnum slímhúð í
munni ásamt því að úðarnir eru
sérlega bragðgóðir og geta allir
fundið eitthvað við sitt hæfi, ungir
sem aldnir.
Uppáhaldsvörur Hönnuh Davíðs fyrir fyrstu árin
Síðustu misseri hefur Hannah notað vörur frá Lansinoh sem hafa komið henni afar vel við brjóstagjöf ásamt einstökum munn-
úðum frá Better You sem hafa slegið í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum á hennar heimili. MYND/KRISSY
Hannah mælir
hiklaust með
vörunum
frá Lansinoh
fyrir allar ný-
bakaðar mæður.
Línan inniheldur
mjólkursafnara,
einnota og fjöl-
nota lekahlífar
og brjóstakrem.
Hannah mælir með Better You
munnúðum fyrir fjölskylduna
„Ég hef notað Dlux infant frá Better
You í rúmlega þrjú ár því það er
svo einfalt í notkun fyrir nýbura
og er þekkt fyrir að fara ekki illa
í magann á þeim eins og önnur
D-vítamín á markaðinum gera
gjarnan. Mér þykir það afar góður
kostur fyrir börn þar sem þau
þurfa að sjálfsögðu líka á D-víta-
mínviðbót að halda eins og allir
aðrir. Bein barna eru mjúk og við-
kvæm fyrst um sinn og þurfa þau
því auka stuðning til þess að verða
stór og sterk.
Ég er einnig stærsti aðdáandi
Pregnancy spreysins frá Better
You þar sem það hjálpaði svo
gríðarlega mikið að koma í veg
fyrir ógleði á seinni meðgöngunni
minni. Því miður var línan ekki
til þegar ég var ólétt að eldri
stelpunni minni þar sem ég hefði
virkilega þurft á því að halda á
þeim tíma en hún kom sem guðs-
gjöf með seinni og mun ég aldrei
sleppa því að nota hana á fram-
tíðarmeðgöngum,“ segir Hannah
sem hefur lengi notað vörur Better
You með góðum árangri. Hannah
mælir eindregið með vörunum frá
Better You fyrir alla fjölskylduna
en allir geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. n
Lansinoh fæst í Krónunni, Hag-
kaupum, Fjarðarkaupum, apó-
tekum og barnabúðum. Better You
fæst í apótekum og heilsuhillum
stórmarkaða.
kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 16. september 2022 FYRSTU ÁRIN