Fréttablaðið - 16.09.2022, Side 26
Við erum stolt af
því að geta nýtt
krafta heimamanna sem
hafa sýnt okkur stuðning
í öllu ferlinu, en auðvitað
fórum við líka sjálf í
vinnugallann á milli þess
sem við vorum að elda
mat og bera hann fram.
Veitingahjónin Steinunn
Helgadóttir, veitinga- og
framkvæmdastjóri, og
Sæþór Þorbergsson mat-
reiðslumeistari hafa staðið í
stórræðum í kjallaranum á
veitingahúsi sínu, Narfeyrar-
stofu í Stykkishólmi.
sjofn@frettabladid.is
Þau Steinunn og Sæþór hafa
átt og rekið Narfeyrarstofu frá
árinu 2001. Veitingahúsið er eitt
af glæsilegustu og farsælustu
veitingahúsunum á Vesturlandi
og margrómað fyrir vandaða og
gæðamikla matargerð. Þarna hefur
skapast hlýleg umgjörð þar sem
gamli og nýi tíminn mætast.
Á neðri hæð hússins sem hýsir
Narfeyrarstofu er einstakur kjall-
ari sem Steinunn og Sæþór ákváðu
að gera upp og stækka staðinn með
stórfenglegri útkomu.
Narfeyrarstofa er í hjarta bæjar-
ins í einstöku húsi sem á sér mikla
sögu og því er virðingarvert að
sjá hversu vel hefur verið hugsað
um húsið og er viðhald til fyrir-
myndar.
Einstök upplifun er að koma
í kjallara Narfeyrarstofu en á
veggjum eru gamlar hleðslur sem
voru undir húsinu og svo blasir við
þversnið af berginu undir þeim.
Birtan er notaleg, áklæði stóla og
bekkja í mjúkum litum, borð-
plötur úr grænleitum marmara,
pússaðir veggir grámálaðir. Þetta
Ný vínstúka
í elsta veitingahúsi
Stykkishólms
Veitingahjónin í
Narfeyrarstofu,
Steinunn Helga-
dóttir og Sæþór
Þorbergsson,
eru nú búin að
bæta við glæsi-
legri vínstúku
í kjallaranum á
Narfeyrarstofu
sem á sér enga
líka.
MYNDIR/AÐSENDAR
Birtan er notaleg, áklæði stóla og bekkja í mjúkum litum, borðplötur úr
grænleitum marmara, pússaðir veggir grámálaðir.
Á veggjum
mætast gamlar
hleðslur sem
voru undir hús-
inu og svo blasir
við þversnið af
berginu undir
þeim.
er glæsileg viðbót hjá hjónunum í
Narfeyrarstofu og til fyrirmyndar
í alla staði.
Endurbæturnar björguðu húsinu
Aðspurð segja Steinunn og Sæþór
að verkið hafi verið viðamikið og
heilmikil framkvæmd.
„Við mokuðum út yfir 200
tonnum af grjóti og jarðvegi. Elsta
hleðslan sem blasir nú við þeim
sem koma í kjallarann er frá því
um 1800, því húsið sem nú stendur
var byggt árið 1906 ofan á sökkul
af eldra húsi. Aðrar hleðslur eru frá
því húsið var byggt.“
Í raun hafi þessar endurbætur
bjargað húsinu til framtíðar.
„Þær renndu undir það styrkari
stoðum, því í framkvæmdunum
kom í ljós að gömlu stoðirnar
voru orðnar veikar. Þá dúaði húsið
orðið leiðinlega mikið á mið-
hæðinni. Útveggirnir voru hins
vegar traustir og högguðust ekki á
meðan unnið var í kjallaranum.“
Unnið af heimamönnum
Að baki er sjö mánaða vinna við
að kljúfa bergið, brjóta og moka,
skjóta stoðum undir húsið, smíða,
leggja dren og lagnir, steypa, pússa,
mála og innrétta.
Verkið hófst 2. janúar og nú
hafa Hólmarar eignast glæsilegan
nýjan stað, vínstúku eða kokteil-
stofu, sem um leið er hluti af elsta
veitingahúsinu í bænum.
Steinunn segir marga heima-
menn hafa komið að verkinu.
„Verkið er að mestu unnið af iðn-
aðarmönnum í Stykkishólmi. Þá sá
ÞB Borg um framkvæmdina og eru
eigendur þess fyrirtækis pabbi og
bróðir Sæþórs.“
Einnig kom að verkinu verk-
fræðingur og rafhönnuður, Karl
Matthías Helgason, sem er bróðir
Steinunnar.
„Við erum stolt af því að geta
nýtt krafta heimamanna sem hafa
sýnt okkur stuðning í öllu ferlinu
en auðvitað fórum við líka sjálf í
vinnugallann á milli þess sem við
vorum að elda mat og bera hann
fram. Það er svo gaman að taka
þátt í verkinu af fullum krafti.
Barinn og borðin koma að
mestu frá Fígaró og það er Hólmar
bekkjarbróðir okkar sem á þann
frábæra stað. Um smíði á bekkjum
sáu GÁ húsgögn en ljós, borð og
Gubi-stólar komu frá Lumex. Þá sá
Berglind Berndsen innanhússarki-
tekt um hönnun á rýminu. Við
gætum ekki verið henni þakklátari
fyrir allt sem hún hefur gert fyrir
okkur,“ segja hjónin að lokum,
alsæl með útkomuna. n
Á
elleftu
stundu
In the
eleventh
hour
Sýningaropnun laugardaginn
17. september klukkan 14:00
Öll velkomin
6 kynningarblað A L LT 16. september 2022 FÖSTUDAGUR