Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 6
Innrás í Úkraínu – dagur 204
Karkív
Belgorod
ÚKRAÍNA
RÚSSLAND
Míjkolaív
Saporísjía
Krívíj Ríjg
Ísíúm
Kupíjansk
Oskíl-á
Balaklíja
Líjman
Dnípro Bakhmút
SVARTAHAF
Donetsk
Lúhansk
Kerson-hérað
Melítopol
Maríupol
Berdíjansk
50 mílur
80 km
KRÍMSKAGI
hertekinn 2014
1
2
4
3
Hersetnar borgir
Undir stjórn Rússa
Rússar sækja fram
Meintar gagnsóknir
Úkraínuhers
Mikil átök
Undir stjórn Rússa
fyrir 24. febrúar
Karkív-svæðið: Gagnsókn Úkraníu
heldur áfram og ógnar nú rússnesku
stórskotaliði og lovörnum.
Krívíj Ríjg: Eir átta rússneskar stýri-
augaárásir á uppistöðulón í nágrenni
borgarinnar æddi yr á annað hundrað
hús og fólk hefur utt frá svæðinu.
© GRAPHIC NEWSHeimildir: Stríðsrannsóknarstofnunin, Reuters
1
2
Kerson-hérað: Úkraínskar árásir á
norður- og vesturhluta svæðisins,
sem og norðvestur af Kerson-borg.
3
Lúhansk-
hérað
Donetsk-
hérað
KERSON Saporísjía-hérað
ÚKRAÍNA
RÚSSLAND
Odesa
Rússland: Myndskeið frá fangelsi í
nágrenni Moskvu sýnir auðjöfurinn
Jevgeníj Prígozhín, bakhjarl málaliðafyrir-
tækisins Wagner Group, bjóða föngum að
ganga í rússneska herinn.
4
Kænu-
garður
Eftir gagnsókn Úkraínuhers,
þar sem Rússar voru gerðir
afturreka frá hernumdum
svæðum, hafa þeir svarað
fyrir sig með árásum á innviði
Úkraínu. Svo virðist sem víg-
línan sé orðin nokkuð stöðug.
thp@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rússneski herinn hefur
hörfað hratt undan gagnsókn Úkra-
ínumanna sem hófst í ágústlok.
Þeir hafa brugðist við með árásum
á innviði, orkuver, stíf lur, brýr og
leiðslukerfi í Úkraínu, einkum með
stýriflaugum sem skotið er frá Rúss-
landi. Þrátt fyrir að hratt hafi gengið
á stýriflaugabirgðir frá innrás þeirra
í Úkraínu 24. febrúar geta þeir enn
skotið á öðrum tug þeirra á degi
hverjum.
Samkvæmt Wall Street Journal
hafa Úkraínumenn endurheimt
landsvæði úr höndum Rússa sem er
um 8.500 ferkílómetrar að f latar-
máli á Karkív-svæðinu. Þar á meðal
eru borgirnar Balaklíja, Ísíum og
Kupíjansk. Svo virðist sem víglínan
sé nokkuð stöðug nú við Oskíl-á þar
sem rússneskir hermenn hafast við
á austurbakka hennar. Í suðurhluta
Úkraínu hefur gagnsókn Úkraínu-
manna ekki gengið jafn vel og hefur
víglínan þar lítið hreyfst.
Úkraínumenn keppast nú við að
lagfæra skemmdir á innviðum og
segja stjórnvöld að tekist hafi að
koma í veg fyrir stórtjón vegna flóða
eftir rússneskar stýriflaugaárásir á
stíflu í borginni Krívíj Ríjg á mánu-
daginn. Þar búa um sjö hundruð
þúsund manns og er það fæðingar-
borg Volodímírs Selenskíj Úkraínu-
forseta. Hann heimsótti borgina
Ísíum á miðvikudaginn eftir að hún
var frelsuð undan stjórn Rússa.
„Úkraínu hefur enn á ný tekist að
gera það sem margir töldu ómögu-
legt,“ sagði hann vígreifur í Ísíum
og að Úkraínuher hefði frelsað
mörg hundruð bæi og þorp síðan
gagnsóknin hófst. Enn fremur
sagði hann að árásir Rússa á innviði
hefðu enga hernaðarlega þýðingu.
„Að ráðast gegn hundruðum þús-
unda saklausra borgara, það er enn
önnur ástæða þess að Rússar muni
lúta í lægra haldi.“
Á miðvikudag var ekið á bifreið
forsetans í Kænugarði en hann
slapp ómeiddur. Ursula von der
Leyen, forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, sótti borgina
heim í gær og fundaði með forset-
anum. Meðal þess sem bar á góma
var aukið efnahagslegt samstarf
sambandsins og Úkraínu auk þess
sem fyrirhuguð innganga landsins
í ESB var rædd. Mörg ár eru þó í að
slíkt gæti orðið að veruleika.
Evrópusambandið og Banda-
ríkin þrýsta nú mjög á NATO-ríkið
Tyrkland að hindra að Rússar nýti
tyrkneska banka til að komast hjá
viðskiptaþvingunum. Til stendur
að herða á núverandi þvingunum,
einkum er varða fjármálakerfi, í
stað þess að leggja á nýjar.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
fundaði með Xi Jinping, leiðtoga
Kína, í Úsbekistan í gær þar sem
fram fer fundur Samvinnustofnunar
Sjanghaí. Vel fór á með þeim þar sem
þeir ræddu aukið samstarf ríkjanna,
innrásina í Úkraínu og málefni Taív-
an. Þeir hittust síðast skömmu fyrir
innrás Rússa en Xi hefur ekki farið
út fyrir landsteinana síðan Covid-
faraldurinn hófst. n
Rússar svara gagnsókn
Úkraínu með árás á innviði
Ursula Von Der Layen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, heimsótti Zelenskí forseta í Kænugarði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPAthp@frettabladid.is
BANDARÍKIN Joe Biden Bandaríkja-
forseti greindi frá því í gær að með
aðkomu stjórnar hans hefði náðst
samkomulag í vinnudeilu starfs-
manna lestarfyrirtækja.
Verkfall, sem átti að hefjast í dag,
hefði haft gríðarleg áhrif á vöru-
f lutninga og hugsanlega reynst
Biden erfitt fyrir þingkosningar í
nóvember.
„Samkomulagið er staðfesting á
því sem ég hef alltaf trúað, verka-
lýðsfélög og atvinnurekendur geta
unnið saman öllum til hagsbóta,“
sagði Biden í Rósagarði Hvíta húss-
ins í gær er hann tilkynnti um sam-
komulagið ásamt vinnumálaráð-
herranum Marty Walsh. n
Biden kom í veg fyrir verkfall
Biden og Walsh á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thorgrimur@frettabladid.is
HAÍTÍ Fjöldamótmæli brutust út á
Haítí í gær eftir að ríkisstjórnin til-
kynnti að verð á bensíni yrði rúm-
lega tvöfaldað. Ríkisstjórn Haítí
tilkynnti þessa verðhækkun á mið-
vikudaginn, auk þess sem litlu minni
hækkun yrði á dísil og kerósíni.
Mótmælendur reistu götuvígi
víðs vegar um haítísku höfuðborg-
ina Port-au-Prince og í öðrum borg-
um landsins og lokuðu götum með
grjóthnullungum, bílum og brenn-
andi hjólbörðum. Meðal annars
réðust mótmælendur inn á heimili
stjórnmálamannsins Me André
Michel, eins af bandamönnum for-
sætisráðherrans Ariels Henry, og
létu þar greipa sópa.
Haítíski fréttamiðillinn Le Nou-
velliste greindi jafnframt frá því að
mótmælendur hafi reynt að brjóta
sér leið inn á Oasis-hótelið í Port-au-
Prince og hafi ruðst inn í útibú Capi-
tal-bankans í Pétionville, farið þar
um ránshendi og reynt að kveikja í.
Ríkisstjórnin hefur útskýrt verð-
hækkanirnar með því móti að ekki
sé lengur unnt að niðurgreiða elds-
neyti með þeim hætti sem áður
hefur verið gert. Haítí er eitt fátæk-
asta ríki í Ameríku og hefur glímt
við verulegan pólitískan óstöðug-
leika, síaukið gengjaof beldi og tíð
mótmæli í meira en áratug.
Mótmælendur krefjast nú afsagn-
ar Ariels Henry, sem tók til bráða-
birgða við embættum bæði forseta
og forsætisráðherra eftir morðið á
Jovenel Moïse forseta í fyrra. Ekki
er ljóst hvenær Henry hyggst láta
af völdum og ásakanir um að hann
tengist sjálfur morðinu á Moïse
hafa vakið efasemdir um lögmæti
stjórnar hans. n
Mótmæla hærra bensínverði á Haítí
Mótmæli hafa skekið Haítí með reglulegu millibili á síðustu árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Sjálfstæðisf lokkur-
inn lagði fram fyrirspurn í inn-
k aupa- og f r a m k væmd a r áði
borgarinnar í vikunni um gatna-
framkvæmdir á Snorrabraut síð-
ustu tíu ár.
Óskað er eftir sundurliðuðu yfir-
liti vegna verklegra framkvæmda á
vegum borgarinnar. Þar verði gerð
grein fyrir öllum framkvæmdum á
umræddu tímabili, tilgangi þeirra,
verktíma, kostnaði og hvort við-
komandi verk hafi verið boðið út.
Snorrabrautin hefur iðulega
verið lokuð undanfarin ár, ýmist til
að þrengja, setja umferðarljós eða
vegna annara framkvæmda, nú síð-
ast við Borgartúnsgatnamótin. n
Vilja fá yfirlit vegna verklegra framkvæmda á Snorrabraut
Snorrbraut
hefur oft verið
erfið viðureign-
ar undanfarinn
áratug.
ragnarjon@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Nú eru 2.536 íbúðir í
byggingu í Reykjavíkurborg.
Þetta kemur fram í nýrri saman-
tekt um uppbyggingu húsnæðis í
borginni fyrri hluta ársins. Þetta
þýðir að um lítillega fjölgun er
að ræða frá síðustu ársfjórðungs-
samantekt.
Þá var lokið við 532 byggingar
á fyrstu sex mánuðum þessa árs,
en rúmur helmingur þeirra var á
vegum húsnæðisfélaga eða merktar
sem hagkvæmt húsnæði.
Gert er ráð fyrir því samkvæmt
upplýsingum framkvæmdaaðila
að lokið verði við 750 íbúðir á seinni
hluta ársins.
Heildarfjöldi nýrra íbúða sem
lokið yrði að byggja á árinu yrði því
1.282. n
Fjöldi nýrra íbúða í Reykjavík á pari
við þann fjölda sem byggður var í fyrra
6 Fréttir 16. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ