Fréttablaðið - 16.09.2022, Page 9
Andleysi? Dugleysi? Dáðleysi?
Hvaða orð viljið þið nota um
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur?
Sleppum því enda er dónaskapur
að tala illa um minni máttar.
En altjent er ljóst að Bjarni Bene
diktsson hyggst ekki sækja peninga
þangað sem þeir eru, í stór útgerðar
auðinn, bankana eða ríkustu
prósentin sem hafa tekjur sínar af
eignum en ekki vinnu, og borga
ekki einu sinni útsvar til að greiða
fyrir skólana sem börnin þeirra
ganga í.
Þar er samt nóg til og ríflega það,
eins og Alþýðusambandið hefur
réttilega sagt.
Hvers vegna? Er það andleysi eða
dáðleysi?
Skíturinn
Þau ykkar sem nennið ennþá að
verða hissa eða jafnvel hneykslast
á því hvernig Vinstri græn láta
hægrið ganga yfir sig á ydduðum
hælunum – þið ættuð að minnast
orða fráfarandi forseta ASÍ:
„[Stjórnarsamstarfið] verður eins
og að éta skít í heilt kjörtímabil.“
Ekki er orðalagið fallegt, en Drífa
Snædal er ættuð af Jökuldal og má
þetta.
Jökuldælingar hafa líka allajafna
rétt fyrir sér.
Látið ykkur ekki heldur koma
í hug að Framsóknarflokkurinn
hafi hálfa skoðun á ríkisfjármálum.
Hann er eins og eggaldin – bragð
laus og næringarlítill, en dregur í sig
keim og krydd sem fljóta fram hjá.
Svo er náttúrlega fjármálaráð
herrann.
Falson og Panama
Það eru vitaskuld fornaldarbók
Til minnis
Karl Th.
Birgisson
n Í dag menntir – enda 56 ára gamlar
fréttir – að fjármálaráðherrann
birtist í Panamaskjölunum með
aflandseyjafélagið sitt, Falson.
Ári fyrr hafði hann verið spurður
í Kastljósi hvort hann hefði nokkuð
átt í skattaskjólsfélögum.
Svar: „Nei, það hef ég ekki gert.“
Það var ósatt.
Hér gefst ekki tóm til að rekja öll
ósannindi Bjarna Benediktssonar
um Falson og snúum okkur því að
öðru.
Þegar hann hafði lokið við að
græja Vafningsmálið sem snerist
um að skera nána ættingja úr
skuldasnöru – og þar sem hann
sagðist hafa verið saklaus veg
farandi með umboð til að veðsetja
eignir í útlöndum án þess að skilja
eða vita neitt, þótt eitt umboðið
hafi að vísu verið frá honum
sjálfum, en hvernig átti hann að
vita það? – og eftir prívatfund með
bankastjóra Glitnis afréð hann að
selja hlut sinn í bankanum.
Bjarni Benediktsson ákvað að
nota þá tugi milljóna til að leggjast
í veðmál.
Ís fyrir alla – pabbi borgar
Okkar yndislegi fjármálaráðherra
ákvað semsagt að gera afleiðu
samninga við Glitni og veðja á
að hlutabréf í alls kyns alþjóða
bönkum hækkuðu eða lækkuðu
í verði áður en kæmi að skulda
dögum fyrir hann sjálfan.
Hann tapaði alltaf, en hélt
áfram að veðja eins og fíkill í
spilakassa hjá Rauða krossinum.
Á endanum var tapið hátt í
fjörutíu milljónir, en eins og sagði
í tölvubréfi innan húss hjá Glitni
þegar spurt var um greiðslu eftir
þetta fjárhættuspil:
„Pabbi hans, Benedikt Sveins
son, verður greiðandi.“
Fallegt af pabba, en hann var
líka greiðvikinn þegar hann leyfði
syni sínum að gista á Flórída í
ótöldum golfferðum.
Til dæmis í húsi í eigu Green
light Holding, með lögheimili á
Tortólu.
Um ekkert þessara – og dæmin
eru ótal f leiri – er ljóst hvernig
fjármálaráðherra gerði grein fyrir
gjafagjörningum föður síns gagn
vart skattyfirvöldum.
Hvað þá ókeypis gistingu í boði
leynifélags á Tortólu.
Bjarni ákvað samt að halda
áfram að skrökva um Falson og á
endanum í tilkynningu til Alþingis.
Truflað
En verum sanngjörn.
Á sínum þingmannalaunum var
Bjarni Benediktsson bara að reyna
að drýgja tekjur sínar. Það er ekkert
einfalt að vera fátækur alþingis
maður.
Á ferðalagi á kostnað þingsins
hnaut Bjarni um íbúð á Flórida
með „truflað útsýni“ á „algerlega
brjáluðum stað“. Auðvitað keyptu
þeir félagarnir þessa íbúð.
Og hinn 6. október 2008, þegar
Geir Haarde bað guð að blessa
Ísland, þá kláraði Bjarni að borga
iðnaðarmönnum á Flórída fyrir
truflaða íbúð.
Tveimur dögum síðar – þegar
Kaupþing fór á hausinn og þar með
fjármálakerfið allt – fengu hönn
uðir greitt fyrir ótruflað útsýni.
Vel gert og hárréttur fókus á
þessum annars tíðindalitlu dögum.
Skötuselurinn
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var
óvænt lentur utan ríkisstjórnar var
Bjarni í viðtali.
Jón Bjarnason hafði sem sjávar
útvegsráðherra ákveðið að gefa
frjálsar veiðar á skötusel, gegn
kveinstöfum LÍÚ.
Útgerðin er á „háa cinu“ út af
þessu, hafði Bjarni sagt og var nú
spurður:
„Ef vinstri stjórnin félli í dag og
þú yrðir forsætisráðherra, hvað yrði
þitt fyrsta verk?“
„Að draga til baka skötuselsfrum
varpið.“
Á meðan langflestir landsmenn
voru að krafsa sig upp úr hruni
með blóðugum klónum var hugur
Bjarna Benediktssonar hjá stór
útgerðinni. Út af skötusel.
Andleysi? Dáðleysi?
Við skulum ekki nota svo dóna
leg orð, en óska Vinstri grænum til
hamingju með fjármálaráðherrann
sinn. n
Mikilvæg umræða hefur átt sér stað
undanfarið um tíðni sjálfsvíga á
Íslandi og um allan heim í tengslum
við alþjóðadag sjálfsvígsforvarna.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis
málastofnuninni eru sjálfsvíg á
meðal þriggja helstu dánarorsaka
fólks á aldrinum 1535 ára. Á Íslandi
deyr að jafnaði einn á níu daga fresti
í sjálfsvígi. Ef við lítum á sjálfsvíg í
stærra samhengi vitum við að fleiri
gera sjálfsvígstilraunir og enn fleiri
upplifa sjálfsvígshugsanir. Hvert
sjálfsvíg hefur áhrif á marga aðra
einstaklinga. Það er nauðsynlegt að
tryggja að viðeigandi stuðningur sé
til staðar fyrir þá sem þurfa, bæði þá
sem glíma við sjálfsvígshugsanir og
aðstandendur þeirra, sem og eftir
lifendur þeirra sem deyja í sjálfsvígi.
Geðrænn vandi, eins og þung
lyndi, er einn af helstu áhættu
þáttunum fyrir sjálfsvíg, og undir
liggjandi getur verið annar vandi
til staðar s.s. líkamlegur vandi eða
kvíðaraskanir. Rannsóknir benda til
þess að þeir sem glíma við algengan
geðrænan vanda leiti sér oft ekki
aðstoðar og þegar þeir leiti til heil
brigðisþjónustu sé vandinn oft van
greindur. Það þýðir að margir þeirra
sem glíma við geðrænan vanda fá
aldrei viðeigandi þjónustu við sínum
vanda. Án viðeigandi meðferðar geta
einkennin versnað með tilheyrandi
áhrifum á lífsgæði okkar og líðan.
Mikilvægt er að þekking sé til
staðar í heilbrigðiskerfinu til þess að
skima fyrir sjálfsvígshugsunum en í
aðgerðaáætlun um fækkun sjálfsvíga
á Íslandi er mælt með samræmdum
verkferlum og reglubundinni fræðslu
um mat á sjálfsvígshættu fyrir allt
fagfólk innan heilbrigðiskerfisins.
Í aðgerðaáætluninni er einnig lögð
áhersla á mikilvægi þess að efla 1. og
2. stigs geðheilbrigðisþjónustu, m.a.
með því að fjölga sálfræðingum á
heilsugæslustöðvum í samhengi
við þjónustuþörf og tryggja aðgengi
barna með alvarlegri vanda að geð
heilsuteymi barna. Að sama skapi
kemur fram í skýrslum frá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni að bæta
þurfi aðgengi að gagnreyndri með
ferð við geðrænum vanda á heilsu
gæslustigi. Það er meðal annars
vegna þess að heilsugæslustöðvar
eru staðsettar í nærumhverfi okkar
og við erum vön að leita þangað
þegar við kennum okkur meins.
Á heilsugæslustöðvum á að vera
til staðar geðheilbrigðisþjónusta
sem felur í sér mat, meðferðará
ætlun og meðferð við vægum til
miðlungs vanda með áherslu á
þunglyndi, kvíðaraskanir og áfalla
streituröskun. Með aðgerðaætlun í
geðheilbrigðismálum frá 2016 var
stigið mikilvægt skref í rétta átt
og nú eru starfandi sálfræðingar
barna og fullorðinna á mörgum
heilsugæslustöðvum. Þróunar
miðstöð ískenskrar heilsugæslu gaf
út gæðahandbók síðustu áramót
fyrir sálfræðiþjónustu fullorðinna
í heilsugæslu en hana er að finna á
vef Þróunarmiðstöðvar íslenskrar
heilsugæslu. Þar kemur fram að
í upphafi þjónustu skuli greina
vandann vel og skima skuli fyrir
sjálfsvígshættu.
En betur má ef duga skal þar sem
víða eru langir biðlistar og bið
tími of langur. Brýnt er að styrkja
sálfræðiþjónustuna á fyrsta stigi,
bæði fyrir fullorðna og börn, með
því að tryggja mönnun í samræmi
við þjónustuþörf. Þannig er hægt að
grípa vandann strax með viðeigandi
meðferð og fyrirbyggja versnandi
líðan. Það er mikilvægt að skima
fyrir sjálfsvígshættu en það er líka
mikilvægt að úrræðin séu til staðar
þegar við þurfum á hjálp að halda,
þegar okkur líður sem verst. n
Tryggjum að hjálpin sé til staðar
þegar við þurfum á henni að halda
Liv Anna Gunnell
fagstjóri sál
fræðiþjónustu
Þróunarmið
stöðvar íslenskrar
heilsugæslu Öflugur fasteignaleitarvefur
með einföldu og notendavænu
viðmóti sem býður upp á ítarlegar
upplýsingar um fasteignir,
þróun verðlags og fróðleik um
fasteignamarkaðinn.
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
FÖSTUDAGUR 16. september 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ