Fréttablaðið - 16.09.2022, Síða 12
Karlaliðið var í fimmta
sæti og komst einnig i
úrslitin.
12 Íþróttir 16. september 2022 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2022 FÖSTUDAGUR
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Háværar sögusagnir hafa
heyrst þess efnis að Aron Einar
Gunnarsson, miðjumaður Al-Arabi
og fyrrverandi landsliðsfyrirliði,
verði í landsliðshópnum sem verður
gerður opinber í dag.
Það myndi binda enda á rúmlega
árs fjarveru hans frá landsliðinu en
Aron Einar hefur ekkert spilað fyrir
landsliðið frá því ásakanir á hendur
honum og knattspyrnumanninum
Eggerti Gunnþóri Jónssyni um
nauðgun litu dagsins ljós.
Ríkissaksóknari stað festi undir
lok ágústmánaðar niður fellingu
héraðs sak sóknara á kyn ferðis brota-
máli sem höfðað var gegn Aroni Ein-
ari og Eggerti og með því er ekkert
sem meinar Arnari Þór Viðarssyni
landsliðsþjálfara að velja Aron á
nýjan leik í landsliðið.
Aron á að baki 97 A-lands leiki
fyrir Ís lands hönd og var um ára bil
fyrir liði liðsins, meðal annars á þeim
tveimur stór mótum sem liðið komst
á árið 2016 og 2018. Hann spilaði síð-
ast landsleik fyrir Íslands hönd þann
8. júní í fyrra. n
Aron gæti snúið
aftur í landsliðið
Aron Einar Gunnarsson gæti snúið
aftur eftir meira en árs fjarveru.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Arnar Þór Viðarsson,
þjálfari karlalandsliðs Íslands, mun
í dag opinbera landsliðshóp sinn
fyrir verkefni liðsins síðar í mánuð-
inum.
Ísland mætir Venesúela í vináttu-
landsleik í Austurríki á fimmtudag.
Liðið heldur svo til Albaníu, þar
sem það mætir heimamönnum í
lokaleik riðilsins í Þjóðadeild UEFA
fimm dögum síðar. Ef önnur úrslit í
riðlinum verða hagstæð gætu strák-
arnir okkar tryggt sér sæti í A-deild
með sigri.
Mikil kynslóðaskipti hafa orðið
á karlalandsliði Íslands í undan-
förnum landsliðsverkefnum. Það
er þó búist við að einhverjir af þeim
leikmönnum sem fóru með liðinu
í lokakeppnir Heims- og Evrópu-
mótsins muni snúa aftur í lands-
liðshópinn fyrir komandi leiki. Það
kemur í ljós í dag, þegar Arnar Þór
tilkynnir nýjan hóp. n
Arnar tilkynnir
hópinn í dag
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu.
kristinnpall@frettabladid.is
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR „Þetta kemur í
sjálfu sér ekki á óvart því staðan er í
raun óbreytt hjá okkur. Það er nefnd
að vinna í öllum þjóðarleikvangs-
málunum en okkar er ekki komið
lengra á þessu stigi. Ég á í raun
von á því að þessar hundrað millj-
ónir sem fara í undirbúningsvinnu
fyrir þjóðarhöllina komi okkur
að góðum notum þegar kemur
að skipulagsmálum,“ segir Freyr
Ólafsson, formaður Frjálsíþrótta-
sambands Íslands, aðspurður hvort
að það hefðu verið vonbrigði að sjá
tillögu fjármálaráðherra til fjárlaga
á næsta ári þar sem engu fé var ráð-
stafað í uppbyggingu á þjóðarleik-
vangi í frjálsum íþróttum.
„Mín tilfinning er að þjóðarleik-
vangur í frjálsum verði í nálægð við
nýju höllina og það kæmi mér ekki
á óvart ef gert yrði ráð fyrir frjáls-
íþróttavelli á skipulagsteikning-
unum.“
Freyr virðist vera þolinmóður
en FRÍ hefur um árabil kallað eftir
nýjum leikvangi.
Vonast til að þjóðarleikvangur sé næstur í röðinni
Laugardalshöll
hefur reynst FRÍ
vel en sam-
bandið hefur
lengi beðið eftir
viðunandi utan-
hússaðstöðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
„Við erum vonandi næst í röðinni
og það er samtal sem er að eiga sér
stað á milli okkar, ríkis og borgar
um þessi mál. Þessi hugmynd um
höll fyrir innanhússíþróttir fékk
meðbyr og við erum vonandi bara
nokkrum mánuðum á eftir þeim. “
Á næstu dögum verður eitt
ár liðið frá því að starfshópur
um þjóðarleikvang fyrir frjálsar
íþróttir skilaði inn tillögum til Lilju
Alfreðsdóttur, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra sem gerði ráð
fyrir að stofnkostnaður væri um
tveir milljarðar.
„Það er engin stefnubreyting, við
erum enn vongóð um að okkar mál
gangi í gegn.“ n
Freyr Ólafsson,
formaður FRÍ
Kvennalandsliðið í hópfim-
leikum komst örugglega
áfram í úrslitin á EM. Smá-
vægileg mistök gerðu það að
verkum að Ísland var í þriðja
sæti í gær en kvennalands-
liðið á nóg inni fyrir úrslitin.
mhj@frettabladid.is
FIMLEIKAR Íslenska kvennalands-
liðið hóf keppni á Evrópumeistara-
mótinu í hópfimleikum í Lúxem-
borg í gær. Tíu lönd voru mætt til
keppni í ár en aðeins sex fóru áfram
í úrslitin sem fara fram á laugardag-
inn. Íslenska liðið flaug inn í úrslitin
í þriðja sæti með 51,050 stig, aðeins
1,625 stigum á eftir sænska liðinu
sem leiddi öll lið. Það er ljóst að
sænska landsliðið hefur látið tapið
gegn Íslandi í fyrra sitja í sér og leit
liðið afskaplega vel út á mótinu í ár
en það má ekki gleyma því að þær
sænsku voru einnig í fyrsta sæti eftir
undankeppnina í fyrra þegar Ísland
vann síðan mótið.
Sænska liðið varð fyrir miklu
áfalli á dýnu í gær er ein stúlkan
fótbrotnaði illa við lendingu í ann-
arri umferð. Sænska liðið kláraði þó
síðustu umferðina á meðan sjúkra-
liðar önnuðust hana. Um opið
beinbrot er að ræða þannig að ljóst
er að sænska liðið þarf að kalla inn
varamann fyrir úrslitin á laugar-
daginn. Þá er danska kvennalands-
liðið einnig gríðarlega sterkt en þær
dönsku létu sig vanta á EM í fyrra
vegna Covid-19. Dönsku stelpurnar
tóku annað sætið inn í úrslitin rétt á
undan Íslandi, með 51,300 stig.
Kolbrún Þöll Þorradóttir, stiga-
hæsti keppandi kvennaliðsins á
EM í fyrra og fimleika kona ársins,
var mætt óvænt til Lúxemborgar
að styðja stelpurnar áfram en hún
sleit hásin degi fyrir brottför og fór
í aðgerð í byrjun vikunnar. Íslensku
stelpurnar voru í banastuði fyrir
mótið og sungu þær hástöfum í
keppnisrútunni á leiðinni niður í
keppnishöll. Sú orka skilaði sér klár-
lega í frammistöðu liðsins er þær
byrjuðu mótið af krafti á tramp-
ólíni.
Fyrstu tvær umferðirnar voru nær
fullkomnar en smávægileg mistök á
stökki yfir hest kostaði nokkur stig
en það er þó eitthvað sem liðið getur
auðveldlega lagað fyrir laugardag-
inn. Stelpurnar fengu þó 16,050 stig
í einkunn sem telst ásættanlegt en
þær geta toppað það að mati undir-
ritaðs.
Íslensku stelpurnar fóru þá næst á
gólf en Ísland hefur borið af á gólfi í
gegnum árin og hefur það átt stóran
þátt á velgengni Íslands í gegnum
árin. Stelpurnar gerðu ágætis gólf
og fengu 18,450 stig fyrir en sem
fyrr segir er nægt rými inni til að
bæta sig.
Þær enduðu síðan mótið á frábær-
um æfingum á dýnu og tryggðu sér
þannig farseðilinn inn í úrslitin. Eitt
klaufalegt fall sem verður auðvelt
að losa sig við í úrslitunum en þær
geta verið afar stoltar af frammi-
stöðunni.
Næstu daga munu landsliðsþjálf-
arar kryfja hverja einustu tá með
aðstoð myndbandsteymis til að
reyna finna út hvernig hægt er að fá
enn fleiri stig á laugardaginn.
Í fyrra voru stelpurnar í öðru sæti
á leið inn í úrslitin, nokkrum stig-
um á eftir Svíþjóð, þær náðu hins
vegar að gera betur í úrslitunum og
enduðu sem Evrópumeistarar. Það
getur allt gerst á laugardaginn þegar
úrslitin fara fram. n
Ísland í úrslit en nægt rými til bætinga
Íslensku
stelpurnar báru
af á gólfinu í
gær og komust
auðveldlega
inn í úrslitin á
laugardaginn.
MYND/STEFÁN ÞÓR
FRIÐRIKSSON