Fréttablaðið - 16.09.2022, Blaðsíða 16
4 kynningarblað A L LT
Íslenskir torfbæir
í fókus
Myndasalur
Þjóðminjasafnsins við
Suðurgötu, 17. september
Hvað?
Sýning um samstarf danska
arkitektsins Poul Nedergaard
Jensen, kennara við Arkitekta-
skólann í Árósum, Þjóðminja-
safns Íslands og Konunglegu
dönsku listaakademíunnar
um skrásetningu á íslenskum
torfbæjum. Nafn sýningarinnar
vísar í þá staðreynd að skrásetn-
ingin fór fram á elleftu stundu,
áður en torfbæirnir voru allir
horfnir. Þessi byggingartegund
sem þróast hafði með þjóðinni
í meira en árþúsund var þegar
horfin að miklu leyti. Næstu
árin fóru skólarnir í nokkrar
námsferðir til Íslands þar sem
torfbæirnir voru mældir upp og
teiknaðir.
Skráningin var gerð með það
fyrir augum að vekja athygli á
mikilvægi og sérstöðu þessarar
sér-íslensku byggingartækni
og leggja grunn að varðveislu
hennar. Á sýningunni gefst
einstakt tækifæri til að berja
afraksturinn augum.
Matarkjallarinn
Veitingahús
Hvað?
Framúrskarandi matur og
umhverfi í hjarta miðborgar-
innar.
Fyrir hvern?
Í hádeginu er Matarkjallarinn
frábær staður fyrir stefnumót,
vina- eða vinnufund. Staðurinn
býður upp á einstakt úrval
rétta úr íslensku hráefni og því
er heldur ekki úr vegi að bjóða
erlendum gestum með sér, til
að prófa brot af því besta sem
íslensk matarhefð felur í sér.
Staðurinn er í sögufrægu húsi
og sagan er áþreifanleg og nálæg
þar sem gamli hafnarveggurinn
er hluti af innréttingu hús-
næðisins sem á sér 160 ára sögu.
Matarkjallarinn er einstaklega
hentugur staður til að skella sér
með stórfjölskyldunni á stóraf-
mæli eða útskrift, fyrir smærri
hópa sem vilja gleðjast saman af
góðu tilefni. Þjónustan er per-
sónuleg og fagleg. Þá er bara að
finna gott tilefni og skella sér! n
Nína Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
Hvað er um að vera í næstu viku? n Netfyrirbærið
n Uppskriftin
19. september
mánudagur
n Bollywood-dans fyrir
fullorðna
Samfélagshúsið Aflagranda
kl. 19.00
Ókeypis prufutími fyrir 18 ára og
eldri. Bollywood-gleði með Max
og Raquel.
n Opið uppistandskvöld
Gaukurinn kl. 20.00
Svokallað „mystery mic“ kvöld
þar sem fólk fær að spreyta sig í
uppistandi. Frítt inn.
20. september
þriðjudagur
n Húllanámskeið fyrir fullorðna
Dansverkstæðið kl. 18.30
Róberta Michelle Hall kennir alls
konar brellur og trix í húlla dansi.
Tíminn kostar fjögur þúsund
eða þrjú þúsund með klippi-
korti.
n Nýsköpunarþing – Hugvitið út!
Gróska hugmyndahús kl. 13.30
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra, setur þing. Hvernig
getur hugvit orðið stærsta út-
flutningsgrein Íslands?
21. september
miðvikudagur
n Joni Mitchell kvöld
Dillon kl. 21.00
Notalegt kvöld þar sem ferðast
verður aftur til áttunda ára-
tugarins uppi á lofti á Dillon.
n Jurtalitun, Shibori og Ecoprint
Myndlistaskólinn í Reykjavík
kl. 17.45
Christalena Hughmanick fer yfir
helstu þætti jurtalitunar á textíl.
Kennt á ensku og opið öllum.
22. september
fimmtudagur
n Saunafest
Laugardalslaug kl. 20.00
Gufunes Sánafest 22. til
24. september. Tveir sána-
vagnar verða til staðar við bakka
Laugardalslaugar. Frítt í laugina
fyrir þau sem bera armband við-
burðarins alla þrjá daga.
n Bergur Ebbi uppistand
Tjarnarbíó kl. 22.00
Kynslóðir er ný uppistands-
sýning þar sem Bergur Ebbi
skemmtir fólki í heila kvöld-
stund með gamanefni sínu um
vesenið sem fylgir því að búa á
Íslandi og lifa á tímum stór-
kostlegra tækni- og þjóðfélags-
breytinga.
Hallgrímur Helgason er óvænt-
asta TikTok-stjarnan sem sannar
það að nýir samfélagsmiðlar eru
ekki bara fyrir yngstu kynslóðina.
Hann segir 17 ára dóttur sína hafa
sannfært hann um að byrja að
birta myndbönd á TikTok.
„Þetta byrjaði sem brandari með
dóttur minni,“ segir Hallgrímur
sem birti fyrsta myndbandið
sitt í júlí þar sem hann syngur og
dansar við Top Off eftir DJ Khaled.
Eftir það var hann duglegur að
birta stutt myndskeið úr lífi sínu,
oft í hraðmynd (e. timelapse), en
áður en hann vissi af var hann
kominn með tuga þúsunda áhorf.
„Ég kunni ekkert á þetta,“
útskýrir Hallgrímur en hann segir
viðbrögðin svo hafa sannarlega
komið á óvart.
Myndböndum hans mætti lýsa
sem dáleiðandi, listrænum og
steiktum og virðast þau vera ein-
hver fullkomin blanda af hvers-
dagsleika og fáránleika sem fellur í
kramið hjá ungu fólki. n
Rithöfundurinn kominn á TikTok
Hallgrímur er vinsæll á TikTok.
Það gerist ekki huggulegra.
Nú er kjörtími fyrir sveppatínslu og
um að gera að skella í einn rjóma-
kenndan vegan pastarétt. Réttur-
inn er einfaldur og ljúffengur.
Vegan sveppapasta með
ferskri basilíku
Eggjalaust pasta
Blandaðir sveppir
Handfylli af ferskri basilíku
Þrír stórir sólþurrkaðir tómatar úr
krukku
Þrjú hvítlauksrif
100 g Oatly sýrður rjómi
200 ml Aito pipar hafrarjómi
Salt og pipar
Vegan parmesan
Byrjið á að sjóða pastað al dente og
steikja sveppina á pönnu upp úr
olíu með salti og pipar á háum hita.
Saxið basilíkuna, tómatana og
hvítlaukinn og bætið út á pönn-
una. Lækkið hitann á pönnunni og
bætið nokkrum skeiðum af pasta-
vatninu á pönnuna. Blandið past-
anu, al dente, saman við sveppina
á pönnunni og bætið við Oatly- og
Aito-rjómanum og smakkið. Ef
bragðið er of vægt er sniðugt að
bæta hálfum grænmetisteningi út
á. Svo bara setja í skál og rífa vegan
parmesan ofan á og ferskan pipar
eftir smekk. n
Huggulegur haustmatur á sveppatíð
Bergur Ebbi snýr aftur með uppi-
standssýninguna sína Kynslóðir
í Tjarnarbíói og Hljómahöll í
september eftir stuttan sumar-
dvala. Aðspurður segist hann ætla
á þessum tveimur tímum að reyna
að láta fólki líða betur.
„Það er alltaf meiri stemning
yfir haust- og vetrartímann.
Veðrið er verra, það kreppir
meira að í samfélagsumræðu og
það verður allt svo myrkt, eins
og engin lausn sé í sjónmáli.
Þá er best að fá fólk inn,“ segir
Bergur Ebbi en hann er þekktur
fyrir sögumannslegan stíl í sínu
uppistandi þar sem hann greinir
samfélagið á alvarlegan jafnt sem
gamansaman hátt. Hann segist
líta upp til uppistandara eins og
George Carlin og segir áhuga-
verðustu hugmyndirnar koma
fram í samsuðu hámenningar og
lágmenningar, þess fræðilega og
alþýðlega.
„Carlin sameinaði þessa hluti.
Hann var mikið fyrir stóru
myndina í sínum hugsunarhætti
og gerði ólíklegar tengingar sem
spönnuðu mörg mismunandi svið
sem höfðu ekki oft tengingu.“
Uppistand sé hinn fullkomni vett-
vangur fyrir slíkar greiningar.
Bergur Ebbi tekur þó fram að
fyrst og fremst sé uppistandið
alþýðulist sem ekki eigi að taka
of alvarlega. „Þó ég setji þetta í
háleitan búning þá finnst mér
að gæði uppistands eigi að vera
metin út frá skemmtanagildi.
Vísindi og kannski pólitík að ein-
hverju leyti leita að lausnum og
það er gott og gilt. Galdurinn við
uppistand, alla vega hvernig ég
nálgast það, er að í staðinn fyrir að
koma upp á svið og útskýra hluti
eins og þú sért með lausnina þá
áttu að veita líknina.“
Líknina?
„Uppistand og grínið læknar þig
ekki en það líknar, veitir tíma-
bundið skjól frá sársaukanum. Við
erum bara dauðleg og það er ekki
til lokalausn á neinu.“ n
Uppistand ætti að veita líkn en ekki lausn
Bergur Ebbi segist vilja nýta sínar tvær klukkustundir í að láta fólki líða vel.
Þó ég setji þetta í
háleitan búning þá
finnst mér að gæði
uppistands eiga að vera
metin út frá skemmtana-
gildi.
16. september 2022 FÖSTUDAGUR