Fréttablaðið - 16.09.2022, Side 18
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
„Nú er sannarlega kátt og gaman
hjá Englabörnunum því á þessu
ári fögnum við því að fjörutíu ár
eru liðin síðan búðin var stofnuð,“
segir Ester Bergmann Halldórs-
dóttir sem er í markaðsráði fyrir
fyrirtækið Föt og skór, og sér um
netverslun Englabarnanna.
Englabörnin er rótgróin barna-
fataverslun sem verið hefur í
Kringlunni síðan árið 2007.
„Fyrir hálfu ári f luttum við
okkur um set í nýtt og glæsilegt
pláss á 2. hæð Kringlunnar, þar
sem viðskiptavinir geta notið þess
enn betur að skoða vöruúrvalið í
stærra og bjartara rými. Í kjölfar
flutninganna fylgdi líka opnun á
nýrri vefverslun og því er hægt að
skoða nánast allar okkar vörur á
englabornin.is, ganga frá kaupum
og fá sent heim að dyrum,“ upp-
lýsir Ester.
Vefverslun Englabarnanna fékk
strax frábærar viðtökur.
„Það er ljóst að það skiptir við-
skiptavini okkar á landsbyggðinni
miklu máli að geta keypt barnaföt
frá Englabörnunum heiman úr
stofu. Einnig eru íbúar höfuð-
borgarsvæðisins duglegir að nýta
sér þennan kost og við erum mjög
glaðar yfir að geta loksins veitt
þessa auknu þjónustu.“
Skemmtilegasti árstíminn
Í hönd fer uppáhaldstími Esterar
og starfsfólks Englabarnanna.
„Þetta er tíminn þegar haust- og
vetrarvörurnar streyma inn og
sala á útifatnaði byrjar. Svo tekur
jólatörnin við, sem er ekki síður
skemmtilegur tími, þegar búðin
fyllist af fallegum jólakjólum
og sparifötum fyrir hátíðarnar,“
segir Ester, innan um dýrindis og
undurfögur barnaklæði í nýrri
verslun Englabarnanna.
„Eitt af okkar uppáhalds-
merkjum er danska barnafata-
merkið Petit by Sofie Schnoor sem
hefur notið vaxandi vinsælda hjá
okkur í Englabörnum. Merkið
framleiðir stílhreinan barnafatnað
með einföldu útliti og fallegum
smáatriðum. Fötin eru vönduð
og endingargóð, og okkar fasti
kúnna hópur veit að hverju hann
gengur með því að kaupa vörur frá
Petit by Sofie Schnoor. Margir bíða
með eftirvæntingu fyrir hverja
sendingu, en línan inniheldur fal-
legan spariklæðnað sem og þægi-
legan hversdagsfatnað,“ greinir
Ester frá.
Allt fyrir ungbarnið
Merkið Petit by Sofie Schnoor
skiptist í tvær undirlínur; Sofie
Schnoor og Petit by Sofie Schnoor.
„Sofie Schnoor er ætlað eldri
börnum og í Englabörnum tökum
við inn línuna í stærðunum 128
til 164. Þar eru jogging-gallarnir
alltaf vinsælir, sem og allir fallegu
sparikjólarnir og fylgihlutirnir,“
útskýrir Ester.
Petit by Sofie Schnoor er ætlað
yngri börnum, allt frá fæðingu.
„Í ungbarnalínunni má finna
samfellur, heilgalla, buxur og boli
sem nýtast vel fyrstu vikurnar og
mánuðina í lífi barnsins, auk fal-
legra fylgihluta í barnaherbergið.
Hægt er að fá stuðkant í rúm, ung-
barnahreiður, rúmföt, geymslu-
box, taubleiur og fleira; allt í sama
látlausa mynstrinu sem fegrar
barnaherbergið,“ segir Ester.
Sérstök fyrirburalína
Petit by Sofie Schnoor framleiðir
sérstaka fyrirburalínu sem fæst frá
stærð 44.
„Fyrirburalínan er undur-
falleg með smágerðu mynstri og
úr mjúkri bómull. Okkur þykir
afar mikilvægt að bjóða upp á
þessar stærðir fyrir þá sem þurfa og
finnum fyrir miklu þakklæti þeirra
sem koma og kaupa þessar allra
minnstu stærðir. Þá er fólk oft búið
að fara árangurslaust búð úr búð í
Í Englabörnunum fást ekki bara föt heldur margvíslegir fylgihlutir fyrir yngstu börnin.
Englabörnin
hafa nú flutt sig
um set í Kringl-
unni og opnað
enn stærri og
glæsilegri búð á
2. hæðinni þar
sem draumur
er að finna svo
ótal margt fal-
legt á börnin.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Það fer vel um lítil kríli í fallegum fatnaði og með mjúkan
stuðkant og rúmföt í vöggunni frá Petit by Sofie Schnoor.
leit að passlegum fatnaði fyrir fyrir-
burann sinn,“ segir Ester.
Þegar verðandi foreldrar koma í
Englabörnin til að kaupa fyrstu föt
ungbarna mælir Ester alltaf með
því að taka föt í minnstu stærð-
unum, frá 50 til 56.
„Þetta er nokkuð sem við höfum
rekið okkur á, verandi mæður og
eins í gegnum viðskiptavini. Oft
þarf að hlaupa til eftir að barnið
er fætt og kaupa föt sem passa, þar
sem fyrirhyggjan er oft mikil og
fötin eiga að duga sem lengst. Við
leggjum því áherslu á að eiga að
minnsta kosti eitt sett sem smell-
passar við fæðingu,“ segir Ester.
Klæðnaður og fylgihlutir frá
Petit by Sofie Schnoor er líka afar
vinsælt í sængurgjafir.
„Úrvalið er fallegt og endalaust
hægt að leika sér með samsetn-
ingar. Við getum sagt með vissu
að sængurgjöf frá danska merkinu
Petit by Sofie Schnoor gleður
nýbakaða foreldra. Hjá okkur er
öruggt að finna má fulla búð af fal-
legum vörum.“ n
Verið hjartanlega velkomin í
nýja verslun Englabarnanna í
Kringlunni og í vefverslun Engla-
barnanna, englabornin.is.
Danska barna-
fatamerkið
Petit by Sofie
Schnoor nýtur
mikilla vin-
sælda enda eru
fötin stílhrein,
vönduð og
endingargóð.
Það er enginn vandi að punta lítil
börn með sætum ennisböndum.
Ungbarnarúmföt og teppi í fallegum
mynstrum eru vinsæl sængurgjöf.
Draumfögur stígvél fyrir kaldari og
blautari haust- og vetrarveður.
Flottar húfur og alls kyns fylgihlutir
fást í Englabörnum fyrir smáfólkið.
Sætir stuðkantar í rúm og vöggur fást
í úrvali frá Petit by Sofie Schnoor.
Geymslubox í stíl við stuðkanta og
aðra fylgihluti eru falleg ásýndar.
2 kynningarblað 16. september 2022 FÖSTUDAGURFYRSTU ÁRIN