Fréttablaðið - 16.09.2022, Side 24
Svartur og hvítur
eru á öndverðum
meiði á litrófinu og því
er vænlegra að velja
myndefni fyrir yngstu
börnin sem nýtir þessa
liti.
Bossakremið er
ekki bara ætlað til
þess að halda bleyju-
bossum mjúkum og
sætum heldur er kremið
svo græðandi að það
hentar líka vel á exem og
erfiða þurrkubletti.
Ungbörn verja öllum sínum
vökutíma í að uppgötva
heiminn og melta það svo
á meðan þau sofa. Allt sem
þau sjá, heyra, finna lykt
af og snerta kennir þeim
hvernig heimurinn virkar
og hvernig þau passa inn í
hann.
jme@frettabladid.is
Það getur verið freistandi að
umkringja barnið öllum regn-
bogans litum til þess að virkja
litaskynjun þess sem mest. En í
sannleika sagt þá heillast nýburar
mun meira af sterkum andstæðum
tónum, eins og er að finna í svart-
hvítu mynstri, heldur en björtum
litum.
Börn byrja að þekkja muninn
á ljósi og myrkri á meðan þau eru
enn í móðurkviði. Stuttu eftir að
þau fæðast kunna þau því best að
meta bækur og annað með svörtu
og hvítu mynstri og myndum.
Þau sjá þó ekki í svart-hvítu,
líkt og margir virðast halda. Ung
börn eru vissulega fær um að sjá
liti, en heili þeirra er oftast ekki í
stakk búinn til þess að skynja þá
jafnskýrt og heili eldri barna og
fullorðinna. Rauður er þó allra
fyrsti grunnliturinn sem börn
læra að skynja, rétt nokkurra
vikna gömul.
Svartur og hvítur eru á önd-
verðum meiði á litrófinu og því er
vænlegra að velja myndefni fyrir
yngstu börnin sem nýtir þessa liti
til þess að ná athygli þeirra, fremur
en daufari liti.
Litir og orð
Heimurinn er litríkur staður og
með hverjum degi skynjar barnið
meira og meira af honum. Börn
byrja að skynja liti á milli tveggja
og fjögurra mánaða gömul að
meðaltali, en það er þó afar ein-
staklingsbundið. Til að byrja með
eru þau fær um að sjá muninn á
grænum tónum og rauðum.
Mælt er með því að hvetja þroska
barnsins til litaskynjunar með því
að láta það leika sér með leikföng
og bækur með sterkum litum. Á
meðan barnið er að vaxa er gott að
segja nöfn hlutanna og liti þeirra í
umhverfi barnsins til að hjálpa því
að þjálfa orðaforðann og orðtengsl.
Einnig er gott að börn leiki sér með
litrík leikföng. Það getur verið allt
frá litríkum kubbum, vaxlitum,
regnbogakubbum eða hvað annað
sem er í björtum litum. Þá kunna
börn betur að meta grunnliti og
liti regnbogans, eins og rauðan,
appelsínugulan, grænan, bláan og
fleiri, heldur en fínlegri litatóna.
Um fimm mánaða aldurinn
eru flest börn byrjuð að skynja
megnið af litrófinu. Enn skynja
þau litatóna þó ekki jafn vel og
fullorðnir, og aðrir lykilþættir
sjónarinnar eru að þróast á sama
tíma. Það eru dýptarskyn, sam-
hæfing augna og líkama og sam-
sjón, eða samhæfing beggja augna
til að sjá einn hlut.
Litblinda barna
Það getur verið f lókið að vita
nákvæmlega hvort barnið sjái alla
litina á þessum aldri því þau eru
einnig að læra að tala á sama tíma.
Það er í raun ekki fyrr en barnið
fer að tala og segja orð sem lýsa
litum, að það verður fyllilega hægt
að vita hvað þau sjái. Því getur
verið erfitt að koma almennilega
auga á ef börn eru litblind.
Þegar barnið er orðið eldra,
segjum um 4-6 ára, þá eru nokkrar
vísbendingar sem geta bent til
þess að barn geti verið litblint.
n Barn notar röng orð til að lýsa
lit á hlut (sóleyin er rauð, en
ekki gul).
n Barn litar myndir með
röngum litum (málar
himininn fjólubláan og grasið
appelsínugult).
n Barn á erfitt með að greina á
milli rauðs og græns vaxlitar
til dæmis.
n Barn er með óvenju góða
nætursjón, einstaklega gott
lyktarskyn eða er ljósnæmt.
n Barn á erfitt með að greina á
milli lita í litlu ljósi eða þegar
margir litir eru saman í einu.
n Barn sýnir ekki áhuga á að lita
í litabækur.
n Barn fær höfuðverk við að
horfa á rauðar myndir eða
texta á grænum bakgrunni. n
Nýburar heillast
oftast mun
meira af svört-
um og hvítum
mynstrum þar
sem litaand-
stæður er skarp-
ari en í litunum
í regnboganum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Childs Farm leggur áherslu
á að framleiða mildar
og góðar húð- og hrein-
lætisvörur fyrir okkar
minnstu og viðkvæm-
ustu kroppa. Í ungbarna-
línunni eru vörur sem
hafa sérstaka eiginleika
til þess að koma ró á litla
huga fyrir háttinn.
Mörgum finnst mikilvægt
að skapa góðar svefnvenjur
fyrir ungbörn en þá er rauði
þráðurinn sá að finna ákveðna
röð atburða sem gerast á hverju
kvöldi fyrir svefninn svo barn-
ið finni að nú sé að koma að
nætursvefni. Þótt engin þörf sé
á að baða börn daglega finnst
þeim flestum notalegt í baðinu og
það skapar dýrmætt tækifæri fyrir
nána samveru. Margir kjósa því
að hafa rólegan baðtíma á kvöldin
sem hluta af háttatímarútínu
barna sinna, og þess vegna hefur
Childs Farm þróað vörur sínar
með þetta að leiðarljósi.
Róandi fyrir svefninn
Ein af þessum vörum er Bedtime
Bubbles sem er milt og léttfreyð-
andi bubblubað sem inniheldur
róandi tangerínuolíu ásamt öðrum
rakagefandi innihaldsefnum og
hefur því ekki þurrkandi áhrif á
viðkvæma ungbarnahúð.
Vissir þú?
n að baðferðir geta haft mjög
þurrkandi áhrif á húð okkar
allra? Þess vegna skiptir máli
að hugsa vel um hvað við
setjum í baðið og passa að
bera gott rakagefandi krem
eða olíu á húðina strax á eftir.
Nudd og notalegheit
Eftir baðferðir, hvort
sem þær hafa verið
rólegar eða fjörugar,
er tilvalið að ná enn
meiri ró og tengingu
við barnið með því
að gefa því létt nudd.
Childs Farm Massage
Oil er létt nudd-
olía í úðaformi sem
inniheldur blöndu
fjögurra mismun-
andi olía sem gefa
húðinni einstakan
raka ásamt því að
hafa bólgueyðandi
og græðandi eigin-
leika. Blandan gerir
það að verkum að
nuddolían getur
minnkað húðert-
ingu og þurrk.
Vissir þú?
n að ungbarna-
nudd er almennt
talin góð leið til þess að sýna
barninu ást og umhyggju í
gegnum snertingu sem er
mikilvæg fyrir vöxt og vel-
ferð barna síðar.
En Childs Farm nud-
dolían er ekki bara góð
fyrir ungbarnanudd,
heldur er hún frábær sem
rakakrem á alla þurra
húð. Sumar mömmur hafa
meira að segja stolist til
þess að bera hana á fótleggi
sína eftir rakstur!
Þrjóskir þurrkublettir
Ekki gleyma að bera á
þurrkublettina! Eins og
margar Childs Farm vörur
er bossakremið ekki bara
ætlað til þess að halda bleyju-
bossum mjúkum og sætum,
heldur er kremið svo græðandi
að það hentar einmitt vel á
exem og erfiða þurrkubletti.
Bossakremið er ilmefnalaust,
inniheldur græðandi aloe vera
og ofurrakagefandi shea- og
kakósmjör. Kremið inniheldur
ekki sink og smýgur því hratt inn
í húðina og má nota á alla þurrku-
bletti ásamt því að vera öruggt
fyrir taubleyjur. n
Childs Farm fæst í Hagkaupum,
Krónunni, Fjarðarkaupum og
apótekum um land allt.
Í háttinn með Childs Farm
Þegar börn skynja regnbogann
8 kynningarblað 16. september 2022 FÖSTUDAGURFYRSTU ÁRIN