Fréttablaðið - 16.09.2022, Page 25
n Skrítin staðreynd vikunnar
16.
sept
17.
sept
18.
sept Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hvað er að gerast um helgina?
n Gugusar og Kusk
Kex Hostel kl. 20.00
Tónlistarkonurnar gugusar og
Kusk koma fram á Kex Hosteli
laugardaginn 16. september.
Viðburðurinn hefst klukkan
20.00 og það er frítt inn. Gu-
gusar þarf ekki að kynna fyrir
neinum og Kusk vann Músíktil-
raunir í ár og stefnir hátt.
n GDRN og Magnús Jóhann –
Útgáfuhóf
Reykjavik Record Shop
kl. 17.00
Útgáfupartí plötunnar Tíu ís-
lensk sönglög með þeim GDRN
og Magnúsi Jóhanni. Í tilefni
útgáfunnar verður lítið útgáfu-
gill í Reykjavík Record Shop á
Klapparstíg 35. Plötur áritaðar
og drykkir í boði.
n Mammút og Kælan mikla
Gamla bíó kl. 20.00
Í fyrsta sinn leiða böndin saman
hesta sína á þessum magnaða
viðburði þar sem þau munu
spila það helsta af sínum ferlum
á tónleikum sem viðburðar-
haldarar lýsa sem kraftmikilli,
þungri og ærandi veislu fyrir
augu og eyru gesta.
n Saga Garðars og Snjólaug
Bæjarbíó kl. 20.99
Saga Garparsdóttir og Snjólaug
Lúðvíksdóttir sameina krafta
sína og halda uppistandssýn-
inguna Allt eðlilegt hér með
splunkunýju og bráð-
fyndnu gríni fyrir djók-
þyrsta áhorfendur.
Hljómsveit Sögu
tekur nokkur lög.
n Kveðjupartý Skuggabaldurs
Skuggabaldur kl. 17.00
Djassbúllunni Skuggabaldri
verður lokað og staðarhaldarar
vilja þakka gestum fyrir frá-
bæran tíma og allan djassinn
með djass-sessjóni langt fram
eftir kvöldi.
n Nýdönsk í 35 ár
Eldborgarsalur Hörpu
kl. 18.00
Nýdanska þarf ekki að kynna
fyrir neinum og sveitin hefur
átt fjölda slagara sem lifa munu
með þjóðinni um ókomna tíð.
Eldborgarsalur Hörpu fyllist af
fólki af þessu frábæra tilefni og
ljóst að dyggustu aðdáendurnir
láta sig ekki vanta.
n Haustfagnaður Árbæjar og
Pallaball
Fylkishöllin kl. 20.00
Páll Óskar mætir í Árbæinn þann
17. september en þá eru 9 ár
síðan hann var síðast með ball í
Fylkishöllinni. Eftir ballið þurfti
víst að styrkja húsið þar sem
þakið ætlaði nánast að rifna
af kofanum, slíkt var stuðið.
Staðarhaldarar eiga von á ein-
hverju svipuðu í ár.
n Frumsýning: Á eigin vegum
Borgarleikhúsið, Litli
salur kl. 19.00
Á eigin vegum byggir á
rómaðri skáldsögu met-
söluhöfundarins Krist-
ínar Steinsdóttur sem
kom út árið 2006. Leik-
stjórn er í höndum
Stefáns Jónssonar og
Sóley Stefánsdóttir
sér um tónlistina. Sig-
rún Edda Björnsdóttir fer
með aðalhlutverk.
Spætur geta vafið
tungunni í kringum
heilann til að koma í
veg fyrir heilahristing
þegar þær höggva í
trjástofna.
Líttu við á BeLLadonna.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
ZHENZI kjóll
Fæst í fleiri litum
Stærðir 42-56
Verð 11.990 kr
ZHENZI kjóll
Fæst í fleiri litum
Stærðir 42-56
Verð 11.990 kr
ZHENZI Kjóll
Stærðir 42-56
Verð 11.990 kr
með Siggu Kling
alla sunnudaga kl. 21.00
SÆTA SVÍNIÐ Borðapantanir og nánari upplýsingar á saetasvinid.is
Skemmtilegir
vinningar
Frí bingóspjöld
Hrikalega
gaman
Geggjað fyrir saumó,
vinahópinn eða
starfsmannadjamm
n Ormsteiti bæjarhátíð
16.-24. september
Ormsteiti 2022 er uppskeru-
hátíð á Egilsstöðum og vítt og
breitt um Fljótsdalshérað.
n Sögusmiðja
Listasafnið á Akureyri
kl. 12.00
Þriðja rafræna listasmiðja
Listasafnsins á Akureyri undir
yfirskriftinni Sköpun utan línu-
legrar dagskrár er nú komin
í loftið. Að þessu sinni hefur
Vilhjálmur B. Bragason, leikari,
leikskáld og tónlistarmaður,
umsjón með smiðjunni. Nánari
upplýsingar hjá: heida@listak.is.
n Heimsókn í gíga Kröflugosa
kl. 8.00
Ferð á vegum Ferðafélags
Akureyrar. Brottför klukkan 8
að morgni á einkabílum frá FFA
við Strandgötu 23. Þóroddur
Þóroddsson er fararstjóri og
vegalengdin er 20 km. Verðið er
4.500 krónur. Skráning á ffa.is.
n Haustkransanámskeið í
Elliðaárdal
15.–18. september kl. 10.00
Lokadagur haustkransanám-
skeiðs Elliðaárstöðvar í sam-
vinnu við Halldóru Lísu Bjargar-
dóttur, eiganda blóma- og
hönnunarstúdíósins Litahlíðar
og fatahönnuðar frá LHÍ. Nám-
skeiðið er geysivinsælt og hefst
á stuttri skógargöngu. Verð er
12.500 krónur og skráning á
elisabetj@or.is.
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 16. september 2022