Fréttablaðið - 16.09.2022, Page 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Þegar ég var átta ára stal ég bíl.
Mér til varnar bjó ekki einbeittur
brotavilji að baki glæpnum. Að
mínu mati var, á því augnabliki,
góð hugmynd að þiggja bíl sem
nágranni okkar systkina ákvað að
gefa okkur. Nágranninn var mikill
grínisti, jafnvel hrekkjalómur. Á
þessum tíma var hvorki búið að
finna upp mikilvægi gagnrýnnar
hugsunar fyrir börn – né vara
þau við gylliboðum ofurhressra
nágranna.
Hvað um það. Ég þáði gjöfina
og sótti systkini mín. Enda þurfti
ég hjálp við að sækja kerruna:
appelsínugula Volkswagen-bjöllu.
Gjöfin stóð stolt fyrir utan hús
annars nágranna, eldri konu ofar í
götunni. Engar viðvörunarbjöllur
sem hringdu þar.
Bróðir minn var sjálfskipaður
bílstjóri, enda tíu ára og hafði
fyrr um sumarið keyrt traktor í
sveitinni. Hinn örláti nágranni
gleymdi að láta okkur fá lykilinn
en við vorum lausnamiðuð. Trak-
torskeyrandi stóri bróðir kunni
á handbremsu og beinskiptan og
hafði að auki séð hvernig koma
ætti farartæki af stað með því að
láta það renna niður brekku. Við
systur, klæddar í tríkot, ýttum.
Aumingja konan fann bílinn í
garðinum heima og réttlætið sigr-
aði að lokum. Við vorum skömm-
uð, en það var nú hvorki í fyrsta né
síðasta skipti. Ótínt sönnunargagn
er að finna á skilti fyrir framan
Hólagötu 19 í Vestmannaeyjum
og á því stendur: Varúð – Börn. Og
upphrópunarmerki á eftir. Okkur
til ævarandi háðungar.
Lærdómurinn? Það getur verið
hentugt að koma bíl í gang með því
að láta hann renna niður brekku.
Það er hægt að ýta bíl inn í garð ef
maður er í tríkoti.
Góðar stundir. n
Varúð – Börn
Hið einstaka bláköfl ótta Hästens-áklæði er táknrænt fyrir heimspeki
okkar: að búa til svo fullkomið rúm að það haldi þér meira vakandi.
Tilfi nningin sem þú færð þegar gormar, hrosshár, ullartrefjar, bómull,
hör og viður vinna saman er í raun ávöxtur nærri 170 ára linnulausrar
vinnu. Því það er það sem þarf til að leggja grunn að betri degi.
ICONIC?
CHECK.
Hästens Blue Check
Since 1978
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
FRÉTTAVAKTIN
Fréttaumfjöllun fyrir alla
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
KL.18.30 ALLA VIRKA DAGA