Merkúr - 01.09.1939, Side 66
64
hjer völ á allskonar skólum. En hið opinbera getur ekki
gert betur en gefa mönnum kost á að nema þar; það er
alveg undir manni sjálfum komið, hvort hann vill færa
sjer það í nyt. Á skólaárunum má maður ekki slá slöku
við, heldur læra eins mikið og unt er. Menn geta líka aflað
sjer sjálfsmentunar. Menn geta notað kvöldin til þess,
þótt þeir hafi allan daginn unnið í verksmiðju, í húð eða
skrifstofu. En það vil jeg brýna fyrir þjer, að læra fvrsl
tungumál, einkum ensku og þýsku. Helgaðu því námi,
þótt ekki sje meira en 10 mínútur á dag. Þótt þú lærir
lítið í senn, þá safnast þegar saman kemur. Það klingir
oft við: Gerðu Möllers-æfingar í 10 mínútur á hverjum
degi. Jeg vil bæta við: Lestu framandi tungumál í 10
mínútur á hverjum degi. Það er alveg ótrúlegt, hvað
menn geta lært mikið á þann liátt. Hafðu altaf litla
kenslubók í vasa þínum og líttu í liana i hvert sinn, sem
þú hefir tima til. Og komdu þjer svo í kynni við útlend-
inga, og talaðu þeirra mál við þá. Kærðu þig ekkert um
það, þótt þú talir ambögulega. Ef iilegið er að þjer, þá
ldæ þú líka. Útlendingum þjTkir altaf vænt um að mega
tala sitt eigið tungumál, og þeir munu leiðrjetta þig. Hverj -
um útlending þykir vænt um hvern þann, sem metur þjóð
hans svo mikils, að vilja læra mál hennar. Og áður en þú
veist af, ertu farinn að taia málið sæmilega.
Ef þú rekst á eitthvað í námi þínu, sem þjer finst þjer
ofvaxið, þá sýndu það að þú hefir fullan vilja á því, að
gefast aldrei upp. Maður á aldrei að hætta við hálfnað
verk. Einu sinni hafði jeg skrifað ljelegan stíl, en kennari
minn skrifaði neðan á hann þennan málshátt úr sans-
krít: „Að byrja ekki á einhverju er lnnn f}Trsti vísdómur,
en hafi maður byrjað á einhverju, þá að ljúka því, það
er hinn annar vísdómur“. Ef þjer finst að þú getir ekki
lært eitthvað, þá minstu orða Grants hershöfðingja: „Get
ekki, það finst ekki í orðabók minni.“
Vertu iðinn við námið, og eins við starf þitt seinna í
lifinu. Geymdu aldrei til morguns það, sem þú getur gert